Vikublaðið - 03.03.1950, Qupperneq 3
1. árg.
Föstudagur 3. marz 1950
5. tbl.
OF MIKILS KRAFIST
JjEGAR karl og kona ætla
að gifta sig og búa saman
alla ævi, er ekki nóg að þau
séu hrifin hvort af öðru,
hugsaði Inger. Ástin verður
að vera svo heit og takmarka-
laus, að hún kólni aldrei,
hvað sem fyrir kemur. Inger
hafði veitt því athygli, að erf-
iðleikar og strit hversdags-
lífsins kældu ástina og eyði-
lögðu. Hjónabandið varð svo
leiðinlegt, er til lengdar lét.
Hún þurfti ekki lengra að
leita en til foreldra sinna, til
þess að fá sönnun fyrir þessu.
Þau stældu og voru ónotaleg
hvort í annars garð. Þetta
var daglegt brauð. Inger vildi
ekki búa við þvílíkt hjóna-
band.
Það var af þessum ástæð-
um, að hún dró á langinn að
játast Kjell. Kjell var'falleg-
ur maður, hár og grannvax-
inn. Hárið var brúnt, augun
blá og fögur. Hann var við-
mótsþýður og kom fram við
Inger eins og hún væri úr
postulíni, eða veikbyggt
blóm.