Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 16

Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 16
16 VIKUBLAÐIÐ ALEXÍS SMITH T7" VIKMYNDASTJARNAN Alexis Smith, fæddist 8. júní 1921, í Penticton, British Columbia, Canada. Hún er dóttir forstjóra matvælafélags. Heitir hann Alexander Smith, og ber kvikmyndadísin nafn föður síns. Þegar Alexis var fimm ára gömul fluttu foreldrar henn- ar til Los Angeles. Naut hún því menntunar þar. Var hún námfús, og undrabarn á sum- um sviðum. Tíu ára gömul hafði hún náð svo mikilli full- komnun sem slaghörpuleik- ari, að undrum sætti. Þegar hún varð ellefu ára fór hún að dansa og söng af mikilli kostgæfni. Þrettán ára var hún orðin svo ágæt dansmær, að hún dansaði í hinni frægu Hollywood Bowl. Alexis var ekki gömul þeg- ar hún ákvað að verða leik- kona. Voru foreldrar hennar því ekki mótfallin. Þau studdu hana eftir beztu getu og gættu þess að dóttir þeirra hraðaði sér ekki of mikið við námið, eða kæmi fram opin- berlega áður en hún hefði búið sig vel undir framtíðar- starfið. Eftir að Alexis hafði stund- að nám við tvo skóla í Los Angeles, fór hún í Hollywood High Scool. Á meðan hún dvaldi í skóla þessum tók hún þátt í Cali- fornia State samkeppninni í framsagnarlist, og fékk fyrstu verðlaun. Las hún upp úr „Elizabeth the Queen.“ Þessi sigur gaf Elizabeth byr undir báða vængi hvað leik- listarnámi við kom. Eftir að Alexis útskrifaðist úr Hollywood High Scool innritaðist hún í Los Angeles City College, til tveggja ára náms. Valdi hún leiklistina, sem aðalnámsgrein. Meðal skólafélaga hennar var Donna Reed. Þegar Alexis hafði nær því lokið þessu tveggja ára námi, léku nemendur í hennar deild leik er heitir „The Night of January 16th.“ Alexis hafði verið falið að leika aðalhlut- verkið og tókst henni það prýðilega. Leiklistargáfnaspæjari (a studio talent scout) var við- staddur, eða sá leik þennan leikinn, og fékk að prófa Alexis í laumi. Það tókst svo vel að Warn- er Brothers vildu gera samn- ing við Alexis Smith þegar í stað. En faðir hennar bað hana að ljúka náminu, því það væri bezt að læra sem mest áður en farið væri út í lífið. Alexis fór að ráði föður síns. Þegar náminu var lokið, gaf faðir Alexis samþykki sitt til þess, að hún gerði samning við Warner Broth- Alexis Smith. ers. Áleit hann dóttur sína hafa náð miklum þroska. Hafði hún stundað nám sitt með ágætum. Þegar Alexis réðist til Warner Brothers, urðu all- miklar umræður um það, hvaða nafn hún ætti að taka upp, er hún yrði kvikmynda- leikkona. Var mál þetta einnig rætt á heimili hennar. Faðir Alexis sagði fátt. Skyndilega kom henni til hugar, að honum myndi ef til vill falla það mjög þungt, ef hún breytti um nafn. Hún minntist þess, hve góður fað- ir hennar hafði verið við hana, og hún áleit það óvin- gjarnlegt að fleygja nafni því, er hann hafði gefið henni. Er Alexis kom í vinnustof- ur Warner Brothers sagði hún yfirmönnunum, að hún ætlaði að bera nafnið Smith

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.