Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 10

Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 10
10 VIKUBL AÐIÐ um að glenna út alla fingur til þess að fullvissa sig um það, að hann hefði ekkert í höndunum. En þegar Charles fagri var lagztur niður á legubekkinn, sleikti hann lófana vandlega. Hann lét það ekki aftra sér þó að bragðið væri beizkt. Um nóttina veiktist hann. Hann barðist við þrautirnar og tókst að hafa hljótt um sig. Ef þeir vissu, hvað hann hefði gert myndu þeir dæla upp úr honum. í hvert sinn, er hann heyrði skóhljóð varð- anna úti fyrir klefanum píndi hann sig til þess að liggja kyrr með aftur augun. En er þeir voru farnir engdist hann sundur og saman og beit í ábreiðuna. Charles fagri vissi að Simms hafði fengið Char- lottu smámulið stryknin. Simms hafði borið eitrið í lófa Charlottu. Hún hafði haldið um járnstengurnar þar til allt eitrið hafði festst við þær. Charles var að hugsa um það, hvort Charlotta hefði þvegið hendur sínar nógu vel er heim kom. En hann þóttist viss um, að Simms hefði lagt ríkt á við hana að gera það. Simms og Charlotta mundu bæði þegja um þetta. Ekkert var hægt að sanna á þau. Bæði Charles og Charlotta höfðu verið rannsökuð er þau hittust í síðasta sinn. Kvalirnar voru miklar. En Charles var harður. Hann fann til ískulda í bakinu, en BÖRNIN í AFGHANISTAN T Afghanistan vilja menn heldur láta börnin vinna en vera í skóla. Að minnsta kosti er þessu þannig varið í sveitinni. Sönnun fyrir því fékkst nýlega í Hasarajad. Stjórnin hafði ákveðið að koma á skólaskyldu fyrir börn í þessu héraði. Það var byggt skólahús og tveir kenn- arar ráðnir að skólanum. En börnin komu ekki. Þau voru löglega afsökuð. Þau þurftu að gæta húsdýranna. Bændurnir í Hasarajad fundu ekkert betra ráð, til þess að losna við þetta skóla- fargan en það, að drepa kenn- arana. Síðan tóku þeir hina ráðnu kennara af lífi, og þar sem enginn sótti um hinar lasu kennarastöður, var allt svo var eins og logaði í mag- anum. Honum kom til hugar, að þvílíkar þrautir liðu konur, sem væru að fæða börn. En hér fæddist ekki nýtt líf. Dauðinn var að koma. Nú heyrðist skóhljóðið aftur. Ljósi var brugðið upp. Hann harkaði af sér. En í næsta sinn er hann heyrði fótatak, gat hann ekki borið af sér. Hann æpti. Það kom ekki að sök. Charles fagri var dáinn, er inn í klefann var komið Hann losnaði við fangelsið. skólahald þar með úr sög- unni. Sagt er, að börnin í Afghan- istan séu mjög illa innrætt og framkoma þeirra slæm. Norðurlandabúi, sem var á ferð í Afghanistan, segist hvergi hafa fyrirhitt verri börn en þar. Þó eru þau skemmtileg á meðan þau eru lítil, þá eru börnin borin á bakinu, ýmist af mæðrum sínum eða systkinum. Á því reki hafast þau mikið við í húsum inni. En er börnin stækka eru þau látin gæta búsmalans. Þau nota öll tækifæri til þess að ergja fólk og skemma ýmsa hluti. Ekkert láta þau afskiptalaust, er á vegi þeirra verður. Börnin láta stóra steina á göturnar, eða þjóðvegina, til þess að tefja bifreiðarnar. Þau fleygja smásteinum í höfuð vegfarenda, og gera þeim allt til ills, sem mögu- legt er. í þorpunum flækjast börn- in um í tómstundum sínum, og leita að tækifærum til þess að fremja óknytti. Þau hleypa úr bifhjólum, skamma hluti og kvelja dýr. Það er algeng „skemmtun“ þeirra að veiða gráspörva, rífa af þeim væng- fjaðrir og stél. Að því búnu mála börnin vesalings fugl- ana rauða eða gula. í Afghanistan er margt vandræðabarna. Áminningar og refsingar fullorðna fólks- ins virða þessi vondu börn að vettugi.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.