Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 14

Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 14
14 VIKUBLAÐIÐ Serafinersjúkraliúsið Framhald af bls. II. þessum geðveikiskurðlækningum vænta, og vísindin hafi fengið nýtt vopn í hendur gegn þessum sjúkdómi, sem telja má ömurlegastan allra sjúkdóma. Heilameinsemdaskurðfræðin er nú komin á fastan grund- völl, þó er ekki útilokað, að enn meiri tækni fáist er um mjög illkynja meinsemdir er að ræða. Heilaskurðaðgerðir hafa fengið víðtækari merkingu hin síðustu ár. Skurðaðgerðir á mænu og taugum teljast nú til heilaskurða. Sameiginlegt heiti á þessum lækningum er „neurokirurgi.“ Prófessor Olivecrona gerir tvo heilauppskurði á dag. Fyrra sjúklingnum er ekið inn í skurðlækningastofuna kl. 8,40 f. h. Hann er staðdeyfður og breitt sótthreinsað áklæði yfir andlit hans. Áður en uppskurðurinn hefst líta tveir læknar eftir því að allt sé í röð og reglu. Röntgenmyndirnar eru athugaðar, og hjúkrunarkona rannsakar hjartaslög, andardrátt og blóð- þrýsting sjúklingsins. Útlendir læknar eru viðstaddir til þess að læra af snillingnum sænska. Samtöl fara fram í hálfum hljóðum. Þarna heyrast mörg tungumál töluð, svo sem enska, þýzka, franska, sænska og latína. Prófessor Olivecrona kemur inn í skurðstofuna. Hann ber hvíta húfu og munnbindi. Hann er á gúmskóm, eða hálfháum /stígvélum, með græna, síða plastsvuntu. Á leiðinni til sjúkl- ingsins staðnæmist prófessorinn augnablik og aðgætir rönt- genmyndirnar. Hann setzt á kringlótta óryðgandi, baklausa stólinn. Hann byrjar uppskurðinn án þess að gefa merki. Orustan við dauðann er hafin. Það heyrist urg eða urr í bornum. Svo beitir hann söginni. Augu prófessorsins eru eins og litlar rifur. Skoltvöðvarnir hreyfast. Hann hefur lokið við að saga beinflöguna úr höfuðkúpunni yfir meinsemdinni í heilanum. Lopalegt, grátt efni með krók- óttum æðum, kemur í ljós. Það er heilinn. Það heyrist suða í rafknúna hnífnum, og hvæsandi hljóð í glerpípunni, sem sýgur blóðið burt úr sárinu. Prófessorinn talar fátt. Ljósið í loftinu er slökkt. Allir beina athygli sinni að uppskurðarblettinum. Lampinn, sem er á enni Olivecrona, varpar birtu y'fir heilann. Margir af nemendum prófessorsins eru viðstaddir. „Hreyfið ekki höfuðið,“ segir prófessorinn við sjúkl- inginn. Kýlið er komið í ljós. Það er ekki illkynja og næst algerlega. Olivecrona gerir atlögu að meinsemdinni með ýmsum á- höldum eða verkfærum. Hann nær kýlinu án þess að skadda heilann á nokkurn hátt. En það er liðin hálf fjórða klukkustund frá því er sjúkl- ingnum var ekið inn í skurð- stofuna. Prófessor Olivecrona hef- ur 58 sjúkrarúm til umráða. í það skipti, sem hér um ræðir, skar prófessorinn burt kýli, 5—6 ára gamalt. Stærð þess var álíka og meðalstórr- ar appelsínu. Öll heilamein, sem burt eru skorin, eru geymd í vínanda, og notuð tilvísindalegrarann- sókna. Um 4000 þvílíkra meina geymir prófessorinn. Sjúklingurinn, sem þessi heilaskurður var gerður á, varð albata að mánuði liðn- um. Af þeim tíma dvaldi hann aðeins 14 daga á sjúkra- húsinu. ----O----- Það er heimskulegt að slíta af sér hárið þó menn verði fyrir sorg. Sorgin verður jafn þungbær fyrir hina sköllóttu. ★ Eiginmaðurinn er fyrsta barn konunnar. Á „Ég get ekki farið út síðari hluta dagsins," sagði Per við félaga sína. „Ég hef lofað pabba því, að vera heima og hjálpa honurm með heimadæmin mín.“ ,

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.