Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 8

Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 8
8 VIKUBLAÐIÐ hafði verið spurð og spurð. En hún kvaðst ekkert vita. Charles fagri hefði sagt sér að hann væri næturvörður. „Hvernig hafði hann ráð á því að gefa yður svo dýra skartgripi?“ spurði leynilög- reglumaðurinn og aðgætti hina dýru hringa er Charlotta bar. „Hann var svo sparsamur “ svaraði hún sakleysisleg á svip og leit niður fyrir sig. „Hann sagði mér, að þetta væri aðeins gler, þó að það liti vel út.“ Hún brá vísi- fingri, sem ekki var sérlega hreinn, á bláan stein er var í hálsfesti hennar, um leið og hú*n sagði þetta. Henni þótti auðsjáanlega vænt um hálsfestina, þó að hún vildi telja mönnum trú um að hún væri ódýr. Steinninn, sem Charlotta benti á var ekta safír. „Kærastinn minn sagði, að steinninn væri frá Wool- worth og þar er ekki dýrt.“ „Hm. Það virðist vera arð- söm atvinna, að vera nætur- vörður,“ sagði vörður lag- anna þurrlega. „Hvað vinnið þér sjálf?“ „Ég vinn hjá Brown & Winslow,“ svaraði Charlotta. „Jæja. Það lítur út fyrir að þér hafið góðar tekjur.“ Charlotta svaraði ekki. Hún fór að kjökra. Hún bar sig eymdarlega. Það hafði þau áhrif, að yfirheyrslunni var hraðað, og Charlottu sleppt fyrr en ella. Þetta $ bragð hafði hún viðhaft í hvert sinn er hún kom fyrir rétt. Hún lét sem hún vissi ekkert um glæpaverk Charles fagra. Charlotta skellti hurðinni aftur og sagði: „Hefurðu séð blaðið, tengdamamma?“ Sara stóð upp frá borðinu, sem mórauður, blettóttur umbúðapappír hafði verið breiddur á. Hún tróð á blað- inu eins og hún með því hygð- ist að ógilda dóminn. Hún svaraði: „Je-á. Þetta eru vondir menn, sem dæma því- lí-ka dóma.“ Charlotta fékk sér sæti, tók kaffibolla, er áður hafði verið drukkið úr, hellti kaffi í hann og drakk. Hún bleytti molasykurinn í kaffinu eins og sumra er siður. Hún mælti: „Annað kvöld fæ ég leyfi til þess að sjá hann. Það verður í síðasta sinn.“ , l Sara sagði: „Já.“ Charlotta tók aftur til máls: „Þetta verður hörmulegt. Hann lifir í mörg ár án þess að ég fái að sjá hann. Ég verð hér, en hann verður fluttur eitthvað burt. Svo kemur unginn til sögunnar. Ég er líka viss um að „Hálfeyrað11 fer aftur að draga sig eftir mér.“ „Já,“ sagði Sara. „Að líkindum giftist ég „Hálfeyranu.“ Hann er vel eigandi. Ég er viss um að hann verður góður við barn- ið.“ Hún slokaði í sig kaffið, og lá við gráti. „Ég vildi, að Charles væri dáinn,“ sagði Charlotta að lokum. Sara mælti: „Já. Hann hef- ur sagt, að hann vildi heldur láta lífið en vera í fangelsi ævilangt.“ Charlotta leit upp og sagði: „Sagði hann þetta?“ „Já,“ svaraði Sara. „Þetta hefur hann oft sagt.“ „Það væri ekki að haíis skapi að vera alla ævi í fang- elsi,“ sagði Charlotta. Hún lagði hendurnar á borðið og glennti út fingurnar. Negl- urnar voru lakkaðar með rauðu lakki og virtist sem fingrunum hefði verið stung- ið niður í blóð. „Jæja,“ sagði Charlotta hugsandi. „Hvað varstu að segja?“ spurði Sara. „Ekkert, tengdamamma,“

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.