Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 22

Vikublaðið - 03.03.1950, Blaðsíða 22
22 VIKUBLAÐIÐ Svo hægði lestin á sér. Það var ekið mjög hægt. Járnbrautarstöð sást í grennd- inni. Nú varð Gomez að fara af þakinu áður en kyndarinn kæmi og berði hann. Gomez reyndi að rísa á fætur. En hann komst að raun um það, sér til mikillar skelf- ingar, að hann var frosinn við járnþakið. Hann var fastur eins og fluga á flugnaveiðara. Hann reyndi eins og hann gat til þess að losna. En buxurnar voru fast frosnar við þakið. Hann rykkti og rykkti í til að losna. Nú ók lestin yfir sporskiptin og inn á illa lýsta járnbrautarstöð. Kyndarinn stökk út úr lestinni og kom í áttina til Gomez með stóran járnskörung. Gomez áleit að dagar sínir væru taldir. Hann reif sig lausan frá þakinu, en buxna- setan varð eftir, flýtti sér niður af því og tók til fótanna. En það var of seint. Hann komst ekki nógu fljótt niður af þakinu. Skyndilega var Gomez barinn með krepptum hnefa og ruddaleg rödd sagði: „Þú skalt nema staðar, drengur minn!“ Önnur rödd sagði: „Þetta er vafslaust drengurinn, sem auglýst var eftir í útvarpinu. Hvað heitir þú?“ Gomez stamaði út úr sér nafni sínu. iSkömmu síðar sat Gomez í skrifstofu stöðv- arstjórans. Þar var hlýtt og notalegt. Gomez varð að gefa skýrslu um ferðalag sitt. Stöðvar- stjórinn ávítaði drenginn ekki, en gerði ráð- stafanir til þess að hann kæmist heim. Það leið ekki langur tími þar til Gomez var á heimleið undir eftirliti lögregluþjóns, sem hélt þrumandi áminningarræðu yfir drengn- um. Hann skammaði Gomez fyrir það að hlaupast að heiman og ætla að gerast flæk- ingur. Hann kvað þetta lubbahátt gagnvart foreldrunum. Þessi ræða var óþörf. Gomez hafði strengt þess heit, að verða góður og iðinn drengur er heim kæmi. Ferðalag hans á þaki járnbrautar- vagnsins hafði breytt honum til batnaðar. Hann varð góður drengur. Barnasagan, sem birt verSur í næsta blaSi lieitir Ég hef týnt úrinu mínu. í New York er litonesíki af riddara á hestbaki og teymir kona hestinn. Líkneskið er af frægum hershöfð- ingja, er tók þátt í frelsisstríðinu. Á myndin að tákna sigurinn. Stúlka úr Suðurrikjunum stóð og horfði á myndastyttuna með fyrir- litningu og mælti. „Þetta er líkt þessum bölvuðu Bandaríkjamönn- um, að láta stúlikuna ganga og teyma hestinn." ★ Ef kjarnorkusprengja væri látin falia á London mundu 75.000 manns láta lífið, 20.000 hús jafnast við jörðu, 30.000 skemmast mikið og 50.000 hús skemmast meira og minna. Julian Huxley hitti, í veizlu einni, stjómmálamann, sem hann ekki fyrr hafði kynnzt. Huxley sagði stjórnmálamanninum hv-er hann væri. „Juli-an Huxley, frá Unesco," mælti hann. Stjómmálamaðurinn sagði: „Un- esco. Það er lítið land, byggt fá- mennri en duglegri þjóð.“ ★ Ameríkönsk blaðakona eða frétta- ritari, hafði fengið leyfi til þess að tala við Jean Sibelius, mesta tón- skáld Fi-nna. Sibelius mælti: „Flýtið yður, u-ng- frú. Ég er 80 ára og á því ekki -eftir margar mínútur af lífinu." Sálsýkislæknir var að rannsaka andlegt heilsufar, eða sálarástand hermanns. Læknirinn mælti: „Heyrið þér nokkru sinni raddir án þess að geta sagt um hver er að tala, eða hvaðan röddin kemur?“ „Já, annað slagið," svaraði her- maðurinn. „Hvenær kemur þetta fyrir?“ spurði læknirinn. „Þegar ég gegni í sima.“ ★ Mexico er -eina -landið í Ameríku, sem bannar her.nönnum i einkenn- isbúningi að fara í kirkju, og fyrir- býður prestum að ganga úti í hempu eöa prestaskrúða. ★ Barnið hatar þann, sem gefur því allt það, sem það biðux um.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.