Vikublaðið - 03.03.1950, Side 11
VIKUBLAÐIÐ
11
DRAUMAR
Níu mögur ár.
J^YRIR fimmtán árum var
ég fátækur, óþekktur
listmálari. Ég átti mjög erf-
itt uppdráttar og hafði mikl-
ar áhyggjur. Ég þráði viður-
kenningu og betri fjárhag.
Oft var ég kominn á
fremsta hlunn með að leggja
árar í bát. Að ég ekki gafst
upp, var að þakka frægum
listamanni. Hann hældi mér
og talaði kjark í mig, þegar
öll sund virtust lokuð. Eitt
sinn á þessum erfiðleika ár-
um dreymdi mig draum
þennan:
Mér þótti ég fara inn í síma-
turn og hringdi til þessa
manns. Hann sagði: „Þér haf-
ið valið erfitt hlutskipti. En
að níu árum liðnum mun allt
breytast til batnaðar.“
Ég mundi drauminn er ég
vaknaði, og mér virtist það
einkennilegt, að maðurinn
skyldi segja það ákveðið, hve
mörg mögru árin yrðu. Svo
braut ég ekki heilann frekar
um drauminn.
Nú er ég kominn á græna
grein. Ég er orðinn vel metinn
listmálari og hef miklar
tekjur. Mig dreymdi draum-
inn sem sagt fyrir fimmtán
árum. Nú eru liðin sex ár
frá því að ég náði viðurkenn-
ingu. Draumurinn rættist
bókstaflega. — Mögru árin
voru níu:
Serafinersjúkrahúsið
í Stokkhólmi
Hin heimsfræga skurðlækningastofnun
prófessors Herberts Olivecrona
OÆNSKI prófessorinn, Herbert Olivecrona, hefur getið sér
heimsfrægð, sem einn af beztu heilasjúkdómalæknum
nútímans. Til hans koma sjúklingar með heilamein hvaðan-
æva úr heiminum. Hvern dag gengur hann á hólm við dauðann
í Serafinersjúkrahúsinu í Stokkhólmi.
„Það eru ekki meiri líkur til þess að menn deyi af heila-
kýlum en að þeir vinni hæsta vinning í happdrætti.“
Þessi ummæli eru höfð eftir prófessor Herbert Olivecrona.
Hann getur djarft úr flokki talað.
Heilakýli og ýmsar aðrar meinsemdir má lækna með skurð-
aðgerðum. En þær eru vandasamar. Hvað Olivecrona við-
víkur, virðast þær leikur einn. Frá því farið var að beita
skurðaðgerðum við heilameinsemdum, hefur dauðsföllum af
völdum heilasjúkdóma fækkað úr 80% í 10%. En það eru ekki
liðin nema tuttugu og fimm ár frá því heilaskurðlækningar
hófust.
Á þessu tímabili hefur skurðlækningum á Serafinersjúkra-
húsinu í Stokkhólmi fjölgað frá 2—3 á ári, upp í h. u. b. tvö
hundruð og fimmtíu. Og þessi aukning á heilauppskurðum er
að mestu leyti einum manni að bakka.
Þessi maður er Olivecrona prófessor.
Hann fékk áhuga fyrir heilaskurðlækningum í námsför til
U. S. A. árið 1919—20.
Þrettánda nóvember 1922 gerði prófessorinn fyrsta heila-
uppskurðinn. En nú hefur hann gert yfir tólf þúsund heila-
skurðlækningar.
Aðalástæðan til þess, að sjúklingur með heilameinsemd er
ekki framar dauðadæmdur, er hinar miklu framfarir, sem
orðið hafa í sjúkdómafræði Með því að blása lofti inn á heil-
ann og taka röntgenmyndir af honum, er innan handar að
marka meinsemdinni stað (lokalize) með 100% öryggi.
Á síðustu árum hafa læknar gert heilaskurðaðgerðir í því
augnamiði að lækna geðveiki. En það er ekki búið að sann-
prófa gildi þessara skurðaðgerða. Menn hafa enn of stutta
reynslu í þessu efni. En vonir standa þó til, að mikils megi af
Framli. á bls. 14.