Vikublaðið - 03.03.1950, Page 17
VIKUBLAÐIÐ
17
eins og verið hefði.
Þetta var látið gott heita,
þó að venja sé, að kvik-
myndaleikarar skipti umnöfn.
Ráðamenn Warner Broth-
ers hljóta að hafa haft mikið
álit á Alexis Smith. Hún fékk
eitt mesta kvenhlutverkið í
fyrstu kvikmyndinni, er hún
lék í hjá félaginu. Myndin
hét „Dive Bomber.“ Errol
Flynn var mótleikari hennar.
En hann er einn frægasti
kvikmyndaleikari í Holly-
wood, sem kunnugt er.
I næstu tveim kvikmynd-
um, sem Alexis lék í, fékk
hún stór hlutverk. En í fjórðu
kvikmyndinni var henni út-
hlutað aðalkvenhlutverkið.
Sú mynd heitir „The Con-
stant Nymph“. Charles Boyer
og Joan Fontaine léku einnig
í kvikmynd þessari.
Alexis leysti hlutverk sitt
svo vel af hendi í kvikmynd
þessari, að hún fékk stjörnu-
nafnbótina 1 kaupbæti.
Hér skulu nefndar kvik-
myndir, sem Alexis hefur
leikið í: Night and Day, Of
Human Bondage, Stallion
Road, The Two Mrs. Carrolls,
The Woman in White, Whip-
lash, One Last Fling og The
Decision of Christoper Blake.
Alexis Smith hefur um átta
ára skeið leikið í kvikmynd-
um. Að lokinni hverri mynd
er hún ýmist sorgmædd eða
sæmilega ánægð. Hún full-
yrðir, að hún hafi ekki enn
leikið eins vel og henni sé
mögulegt.
Alexis hefur spurt um það,
hvort áhorfendur mundu
þola svo áhrifamikinn leik,
sem henni væri unnt að sýna.
Svo hlær hún að þessari hug-
mynd.
Maður Alexis, Craig Stev-
ens, segir hana vera mjög
hláturmilda og hlátur henn-
ar sé smitandi. Þau Alexis og
Stevens giftust árið 1944.
Alexis Smith hefur alltaf
sama áhugann á dansi og
söng. Æfir hún dans dag
hvern hjá sérfræðingi. Segist
hún heldur vilja dansa og
syngja en leika. Sönglistina
hefur hún efst á blaði.
Alexis er ljóshærð og blá-
eyg. Hún er fimm fet og sjö
þumlungar á hæð. Hún er
ekki skrautgjörn né sundur-
gerðarkona í klæðaburði. Þó
vill hún ganga sómasamlega
til fara og láta sér líða vel.
Uppáhalds íþróttir Alexis
eru: bogfimi, skautahlcup á
ís; badminton og knattleikur.
Hún elskar hljómlist.
Þegar þetta er ritað, er
verið að sýna kvikmyndina
„Any Number Can Play. í
þessari mynd leikur Alexis
Smith konu Clark Gable.
Heimilisfang Alexis Smith
er svohljóðandi: c/o Warner
Brothers Studio, Burbank,
California, U.S.A.
----o----
Ég elska þig ekki vegna auðæfa
þinna. Ég elska þig sjálfs mín vegna.
Ást á auðæfum er orsök helmings
allrar mannvonzku. En hinn helm-
ingurinn stafar af fátækt.
Arturo Toscanini
AÐ eru liðin h. u. b. fimm-
tíu ár frá því Toscanini
varð heimsfrægur fyrir söng
og hljómsveitarstjórn. Marg-
ar sögur hafa verið sagðar af
þessum mikla snillingi.
í þýzka tímaritinu „Stimm-
en“, segir Arthur Holde frá
því er hann fékk að vera á
æfingu hjá Toscanini. Nefnir
Holde grein sína „Töfrar æf-
ingarinnar.“
Toscanini er nú áttatíu og
þriggja ára. En þrátt fyrir
hinn háa aldur, þarf hann
ekki nótnabók, er hann
stjórnar æfingum, jafnvel þó
um nýtt tónverk sé að ræða.
Toscanini kann allt utan-
bókar. Minni hans er svo gott
að undrum sætir. Þó kemur
það fyrir að hann grípur
„nóturnar“ til þess að líta í
þær. Hann er svo nærsýnn,
að hann þarf að halda þeim
alveg upp að augunum.
Toscanini er mjög örgeðja,
og verður oft fokvondur ef
þeir, sem hann stjórnar,
skilja ekki tilsögn hans þegar
í stað. Hann rífst þá stundum
og skammar viðkomandi
menn heiftarlega. Hann
stappar í gólfið, patar óskap-
lega eða baðar út höndunum.
En er orðin ekki nægja og
ólætin, tekur hann að syngja
það, sem hann var óánægður
með.
Hann sagði eitt sinn: „Þeg-
ar ég hef tónsprota í hendi
verð ég annar maður.“