Vikan - 02.09.1954, Page 2
^4^p6stlriisiim
Geturðu sagt mér eitthvað um
sœnsku leikkonuna Ullu Jacobsson og
Folke Sundquist. Hvað eru þau göm-
ul ? Eru þau gift og þá hverjum ?
Er hún ný kvikmyndastjama?
Svar: Ulla Jacobsson er 21 árs. Hún
vakti almenna athygli og aðdáun fyr-
ir leilc sinn í „Sumardansinn", þegar
sú mynd var sýnd á kvikmyndasam-
keppninni í Cannes. ViS höfum ekki
heyrt að hún sé gift. Folke Sundquist
er 28 ára gamall og ógiftur. Hann er
mcsti fjörkálfur og einstaklega við-
feldinn maður. Hann lék á móti Ullu
Jacobsson i Sumardansinn, og eins
og kunnugt er, leikur hann hlutverk
Arnalds í Sölku Völku, og var þar af
leiðandi hér á landi um tíma í sumar.
Fyrir „þrjár heillaðar", Sílu, Rúnu
og Hönnu o. fl. birtum við Lítið lag
eftir örnólf í Vik, sem sungið er undir
lagi eftir Þórhall Stefánsson. Haukur
Morthans hefur sungið það inn á His
Master’s Voice plötu.
Eitt fátækt ljóð við lítið lag
mér líður seint úr minni.
Það fæddist sumarfagran dag
við fyrstu okkar kynni.
Og ljóðið það var ljúft og milt
um litla stúlku og ungan pilt,
er höfðu saman hjörtun stillt
á heillabrautu sinni.
Og ljóðið mitt við lagið þitt
fær líf í höndum þínum.
Það hefur marga stund mér stytt
og stefnir huga mínum
að öllu því, sem áður var,
er okkar fundum saman bar.
Það geymir margar minningar
í munarómi sínum.
0, láttu litla ljóðið mitt
sem lengst í hug þér búa,
og litla þýða lagið þitt
með líknsemd að því hlúa.
Því Ijóðið það er ljúft og milt
um litla stúlku og ungan pilt,
Píanóharmonikkur
24 - 32 - 48 - 80 - 120 bassa
Hljómfagrar
Glæsilegar
Ödýrar
Verð frá kr. 1185.00
Við erum með á nótunum
HLJÍ9FÆRAVERZLUN
SIGRIÐAR HELGADÖTTUR
Lækjargötu 2. — Sími 1815.
sem höfðu saraan hjörtun stillt
og hvort á annað trúa.
Og fyrir Baldvin í prentsmiðjunni
birtum við Ijóðið Hríslan og lækurinn,
eftir Pál Ölafsson, sem sungið er
undir lagi Rourseaus:
Gott átt þú hrísla á grænum bala,
glöðum að hlíða lækjarnið.
Þið megið saman aldur ala
unnast og sjást og talast við.
Það slítur enginn ykkar fundi,
indæl þig svæfa ljóðin hans.
Vekja þig æ af blíðum blundi
brennandi kossar unnustans.
Eg er Ijóshærð, bláeyg, með frekar
Ijósan hörundslit. Hvaða litir fara
mér bezt?
Og hvað á ég að vera þung, þegar
ég er 160 sm. á hœð og 19 ára gömul.
Svar: Þú ættir að klæðast bláum
og grænum litum. Rauðir, rauðfjólu-
bláir og rauðgulir litir ættu líka að
vera við þitt hæfi og svo svart. Gul-
grænt og eggjaskurngult fer þér líka
vel, ef þú ert svoMtið rauð i kinnum
og með rauðar varir. Þú ættir að
vega 57,5 kg.
Gefðu mér nú góð ráð. Eg á garð
og í honum eru basði birki og reyni-
hríslur (plöntur). Ég tók eftir þvi um
daginn, að laufið er farið að fölna og
blöðin að detta af, og þegar ég gœtti
betur að, sá ég hina svokölluðu
„berjaorma“ á blöðunum. Hvað á ég
að gera til að ná þeim burt ? Er óhœtt
að strá eða sprauta skordýraeitri á
plöntumar. Eg er hrœdd við ormana
og vil helzt losna sem fyrst við þenn-
an ófögnuð.
Hvemig er skriftin og réttritunin.
Svar: Við höfum leitað upplýsinga
hjá Jónasi Sig. Jónassyni garðyrkju-
manni, og fengið eftirfarandi svar:
Að öllum líkindum er hér um birki-
MUNHÐ
NCURA MAGASIN
Karl G. Sölvason
Ferjuvogi 15 Sími 7939
Reykjavík.
öll gluggahreinsun
fljótt og vel af
hendi leyst.
maðk að ræða. Það er hægt að nota
skordýraeitur, en það er ekki ein-
hlítt. Arsinik og nicotin eru betri, en
batan bezta meðalið. Það er öruggt,
og eftir nokkra daga eiga maðkarnir
að vera dauðir.
Skriftin er ljómandi falleg og rétt-
ritunin ágæt, nema að eitur er ekki
skrifað með y.
Viltu vera svo góð að svara nokkr-
um spurningum fyrir mig?
1. Hvað standa matreiðslunám-
skeið lengi yfir og hvað kostar að
fara á þau?
2. Er hœgt að komast á saumanám-
skeið og vinna þar fyrir sér ? Ef
ekki, hvað kostar það þá?
3. Er sítt hár komið í móð aftur?
j. Hvað á ég að vera þung. Eg er
165 cm. á hœð.
Svar: 1. Það er um of mörg og
misjöfn matreiðslunámskeið að ræða,
til að hægt sé að svara þessu í stuttu
máli. En þú getur t. d. leitað þér upp-
lýsinga í Húsmæðraskóla Reykja-
víkur eða Húsmæðrakennaraskóla
Islands, sem báðir hafa haft hús-
mæðranámskeið.
2. Við getum ekki sagt þér hver
kjörin eru við saumanám á sauma-
stofum. Viðskiptaskráin nefnir einn
saumakennara: Einöru Jónsdóttur,
Skólavörðustíg 21 (sími 1954). En
þú nefnir ekki í bréfi þínu hvort þú
vilt vera í Reykjavík eða úti á landi.
3. Það lítur út fyrir að hártízkan
ætli að fara að síkka, en því er
reyndar búið að spá á hverju hausti
í síðastliðin tvö ár.
4. Ef þú ert innan við tvitugt áttu
að vera 61 kg.
1. Hve langt er tryggingafræði-
nám?
2. í hvaða löndum og í livaða liá-
skólum er bezt að læra trygginga-
frœði ?
3. Eru nokkrar bækmr til um þau
frœði í bókaverzlunum hér?
4. Hve margir og hverjir eru starf-
andi tryggingafrœðingar i Reykja-
vík? — B. G.
Svör: Tryggingafræðinám mun
vcra um 6 ára nám við Kaupmanna-
hafnarháskóla, en þar hafa allir ís-
lenzku tryggingafræðingarnir stund-
að nám. Eftir því sem við bezt vitum
eru fjórir tryggingafræðingar starf-
andi í Reykjavík: Brynjólfur Stef-
ánsson framkv.stj. Sjóvátrygginga-
félags Islands, Guðmundur Guðmunds
son framkv.stj. hjá Islenzk endur-
trygging, Árni Björnsson hjá Sjóvá-
tryggingafélagi Islands og Guðjón
Hansen hjá Almennar tryggingar. —
Einhver þessara manna mun vafa-
laust geta sagt þér hvar þú munir
geta fengið heppilegar bækur.
FORSÍÐUM YNDIN
Friðrik Jesson tók hana
við Friðarhöfn í Vest-
mamiaeyjum. Annar þess-
ara heiðursmanna er báta-
smiður, liinn útvegsbóndi.