Vikan - 02.09.1954, Síða 15
í GRANADA...
Framhald af bls. 7.
dauðarefsing lögð við því að
bera rauðu kollhúfurnar, sem
tyrkneskir karlmenn höfðu not-
að öldum saman. Austurlensk
hljómlist var líka bönnuð og frá
og með 1. janúar 1935 var
kristnum nunnum og prestum
harðbannað að sýna sig á göt-
um úti í klæðnaði reglu sinnar.
Fyrir stríð voru menn sekt-
aðir í Tékkóslóvakíu, ef þeir
sáust stíga ut úr strætisvagni
meðan hann var á ferð. Og ef
karl eða kona varð fyrir þeirri
óheppni í Júgóslaviu að detta
í á eða stöðuvatn, var gengið
út frá því sem vísu, að viðkom-
andi hefði verið að reyna að
fremja sjálfsmorð og honum síð-
an umsvifalaust varpað í tugt-
húsið. Aumingja fanginn mátti
síðan gjöra svo vel að reyna að
sanna það, að hann hefði ekki
ætlað að stytta sér aldur!
Hetja í sumarleyfi
Framhald af bls. 6.
ekki villzt á þeim. Kona me3 rauðan
stráhatt, önnur svartklædd með sting-
andi augu og tvær telpur.
Ég starði á hann.
— Þú ferð ekki að eyðileggja sum-
arfríið fyrir erfiðisvinnumanni, sem
er búinn að hafa svo mikið fyrir því.
Fimmtíu vikur á ári tek ég öllu með
mestu þolinmæði. Gleymdu þvi ekki.
Lestin er að hægja ferðina. Nú eða
aldrei!
. Hann tróð bréfinu í hendina á mér
og var horfinn áður en ég gat áttað
mig. Eg sá hann stíga út úr lest-
inni og beið í tíu mínútur, áður en
ég fór að leita að konunni með rauða
hattinn.
Ég fann klefann.
— Þetta sæti er upptekið, sagði
konan. — Maðurinn minn er frammi.
— Hann ætti það skilið að missa
það, sagði tengdamóðirin.
Eg fékk þeim bréfið og forðaði mér
áður en óveðrið skall á.
Því næst fór ég inn í klefann minn,
sem var ennþá nær vélinni. — Hvar
hefurðu eiginlega verið allan þennan
tíma?
— Ef okkur hefði nú vantað eitt-
hvað, þá . ..
Eg veit ekki hvor sagði hvað, kon-
an min og móðir hennar, því ég er
fyrir löngu hættur að veita slíkum
smámunum athygli. — Ég var, satt
að segja, að tala við þann hugrakk-
asta mann, sem ég hef nokkurn tima
hitt. Hann er sannkölluð hetja, sagði
ég-
— Þið hljótið að hafa stungið í
stúf hvor við annan.
Eftirlitsmaðurinn gekk fram hjá
og ég kallaði: — Stanzar lestin nokk-
urs staðar fyrr en í Goombe Regis.
I-Iann svaraði því neitandi. Eg seig
aftur niður í sætið. — Já, þú hefur
rétt fyrir þér, góða min, eins og allt-
af. Við áttum ýmislegt sameiginlegt,
þessi ókunni maður og ég — en ekki
þegar á átti að herða.
Lestin hélt áfram ferðinni.
Tvennar hendur eru ónauðsynlegar
Við meðferð og niðursetningu á báruðum aluminíum-plötum vinnur sérhver
maður á við tvo. Vegna léttleika þeirra og meðfærileika getur einn maður borið
margar slíkar plötur, sem þýðir minni kostnað við niðursetningu.
Báraðar aluminíum-plötur eru öflugar og tærast hvorki af seltu né reyk.
Þær þola hverskonar veðurfar og rotna ekki né ryðga.
Báraðar aluminíum-plötur eru fáanlsgar í eftirfarandi stærðum:
Breiddir: 26 tommur með átta 3 tommu bárum
— 32 — — átta 3 — —
— 26 — — níu 2% — —
— 31 — — ellefu 2% — —
Lengdir: 6, 7, 8, 9, 10, 11 og 12 fet.
Þykktir: 20, 22, 23, 24, 26 (nr. I.S.W. G.)
Ofangreindar plötur fást einnig bognar (á bragga) í öllum þykktum nema 26.
ALUMINIUM UNION LIMITED
THE ADELPHI, STRAND
LONDON W. C. 2
Umboðsmenn:
REYKJAVÍK
15