Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 2
o
Bólsturgerðin
Bólsturgerðin
Eftirtalin húsgögn ávallt á boðstólum:
DAGSTOFUHOSGðGN:
Útskorin sett
Hringsófasett
Armstólasett
Lítil sett
Sett með póleruðum sökkli
Sett stoppuð undir arma
Svefnsófar
Stakir stólar
Sófaborð úr teak
Kringlótt borð úr teak
Blómaborð
Reykborð
Borðstofuhusgögn úr teak:
Húsgagnaáklæöi, margir litir. — Öll okkar húsgögn
eru fyrsta flokks, og unnin af færustu fagmönnum.
Greiösluskilmálar eftir samkomulagi þannig, aö við
gerum viðskiptavinunum mögulegt að verzla við okk-
ur þó kaupgeta sé lítil. — Sendum gegn póstkröfu.
Bólsturgerðin h.f.
Skipholti 19 — Sími 10388
PÓSTURINN
Einn um þjónustu.
Kæra Vika!
Vænt þykir mér um að þú veitir rúm athuga-
semdum um þjónustuna við almenning. Ekki er
nokkur vafi á því að stórlega þarf þar um að
bæta. Ég hefi lesið frásögn þina í Póstinum um
gildaskála í miðbænum, og bréfið frá frænda
okkar Færeyingnum. Nú vildi ég spyrja. Hefur
þú ekki fengið neinar athugasemdir frá viðkom-
andi aðilum. Reyna þeir ekkert að bera í bæti-
fláka, eða skýra málin?
Jóhannes G. J.
SVAR: Pósturinn hefur ekki fenijið neinar at-
hugásemdir frá viðkomandi aðilum, enda kannski
ekki við því að búast þar sem ekki eru nefnd
nein nöfn. Pósturinn hefur ekki enn séð ástæðu
til þess að birta nöjnin, en hinsvegar get ég
sagt þér til gamans, að þjónustustúlkur á „gilda-
skála í miðbœnum“ hafa sent mér kveðju og
sagst ekki mundu afgreiða mig. Ég hefi hins-
vegar ekki haft tíma til þess að sannreyna hvort
þeim er alvara, en sé svo, mun ég skýra nánar
frá „Gildaskála i miðbœnum.“ Pósturinn mun
enn um sinn veita frásögnum manna af þjónustu.
—O—
Mickey Mouse.
Kæra Vika!
Viltu gera svo vel og segja okkur hvort teikn-
arinn heimsfrægi, Walt Disney, er lífs eða liðinn.
SVAlí; Disney er fæddur í Chicago árið 1901 %
desember. Gerðist auglýsingateiknari og stundaði
það starf frá árinu 1919 til 1922. Byrjaði skömmu
síðar að teikna kvikmyndir. Hann hefur skapað
margar heimsþekktar teikniverur, og hefur marg-
oft hlotið Oscars-verðlaunin. Mjallhvít var fyrsta
langa teiknimyndin hans, en sú frœgasta mun
vera Fantasia. Hann hefur einnig tekið venjúleg-
ar kvikmyndir og hann hefúr lagt mikla áherzlu
á að gera myndir sem sýna okkur lífið í nátt-
úrunni.
—O—
Kæra Vika!
Ágæt grein um prestana í Landakoti. Við mót-
mælendur þekkjum allt of lítið til starfs kaþólsku
prestanna hér. Vel að verið. örn.
—O—
Vikan mín!
Fer hún ekki að hætta þessi framhaldssaga ?
Hún er kynlega leiðinleg. Finnur
—O—
Ágæta Vika!
Óvenjulegt og alveg nógu langt viðtalið við
hann Kristin Hallsson. Skemmtileg hlið á þess-
um ágæta söngvara. Kemur ekki meira af við-
tölum í sama dúr? Jóhanna
SVAR: Við höfum fullan hug á því.
—O—
Vika. Ég sakna mjög frumsamins efnis í þessu
blaði ykkar. Sögur, greinar ljóð, gamlar minn-
ingar og fleira væri vel þegið. Árni.
—O—
Milli tveggja elda.
Kæra Vika!
Þú verður að hjálpa mér. Þannig er mál með
vexti, að ég er búin að vera lengi með sama
stráknum. Við kynntumst strax í barnaskóla og
vorum „vinir“, sem kallað er. Svo fór hann í
annan gagnfræðaskóla en ég, en svo erum við
bæði í menntaskóla núna. Hann býr ekki í sama
bæ og ég, og fer þess vegna alltaf heim í fríum,
þegar ég vildi helzt hafa hann hjá mér. Svo var
það núna i jólafríinu, að ég fór á ball og þar hitti
ég sérstaklega- huggulegan strák, sem ég varð
dálítið skotin í. Hann segist vera voða hrifinn af
mér og ég held, að hann segi það satt. Svo er
það bara hinn, sem kemst að þessu og segir, að
nú sé öllu lokið milli okkar, úr því ég geti ekki
beðið hans undir svona lítilmótlegum kringum-
stæðum. Hinn strákurinn veit, að ég hef verið
með „vininum", en hefur fundizt á mér, að ég
væri búin að gefa hann upp á bátinn. Ég veit
svei mér ekki hvað ég á að gera, því ég finn, að
„vinurinn" er ennþá hrifinn af fnér og sennilega
á ég erfitt með að slíta að fullu og öllu samband-
inu við hann, vegna þess að við þekkjum hvort
annað mjög náið. En hinn er á margan hátt
miklu betri strákur, hann er skapbetri og ekki
eins tilætlunarsamur og hinn. Jæja, Vika mín,
þú hlýtur að geta sagt mér, hvað ég á að gera,
þú hefur ráðið mörgum svo vel, sem hafa verið
staddir í vandræðum. Þín S.
—O—
Kœra S.
Mér virðist þú gera allt of mikið úr þessu
„vandamáli“ þínu. Ef pilturinn þinn, sem þú hef-
ur verið svo lengi með, gerir veður út af slíkum
smámunum sem þessum, finnst mér ekki mikill
i