Vikan - 09.04.1959, Blaðsíða 24
l 1
ARMBANDSTjR
HEFUR ALLA
KOSTINA:
• höggvarið
# vatnsþétt
, glæsilegt
0 árs ábyrgð
PIERPONT fást hjá úrsmiðum m ðl!t land
BLEYJUB UXUR
Byrjað á framstykkinu í mittið.
Fitjaðar upp 75 1. á prjóna nr. 2%
og prjónaðar tvær umferðir 1 slétt
og 1 snúin, þvínæst ein umferð gata-
snar. Þvínæst aftur tvær umf. 1
slétt og' 1 snúin, svo er prjónað
munstrið. Þegar stykkið er orðið 15
cm. eru prjónaðar 28 lykkjur garða-
prjón 19 lykkjur munstur 28 1. garða-
prjón og eftir 8 umferðir eru felldar
af 23 lykkjur hvoru megin. Haldið
áfram með 29 miðlykkjurnar og 5
lykkjur garðaprjón til beggja hliða.
Éin lykkja aukin í á öðru hvorum
prjón, beggja megin fyrir innan
garðaprjónskantinn, og lykkjurnar
sem aukast í prjónaðar með munstri.
Aukið í þangað til lykkjurnar eru
orðnar 81. Þvínæst haldið áfram án
íaukningar 8 umferðir, en 5 lykkjur
garðaprjón til beggja hliða, svo er
prjónað áfram 14 cm, allar 1. munst-
ur. Þá eru prjónaðar 2 umf. 1 slétt
og 1 snúin, og 6 lykkjur teknar úr
jafnt i fyrri umferðinni, svo er gata-
snar og aftur 2 umf. 1 slétt og 1
snúin, fellt af.
Munstur á bleyjubuxum.
1 munstrinu 6x3 lylckjur.
1. prjónn: sléttur.
2. — : snúinn.
3. — : sléttur.
4. — : snúinn.
5. — : 2 1. teknar saman,
slegið upp á 4 sléttar, endurtekið frá
og endag á 2 teknar saman slegið
upp á 1 slétt.
6. — : snúinn.
7. — : sléttur.
8. — : snúinn.
9. — : sléttur.
10. — : snúinn.
11. — : 3 1. sléttar * 2 teknar
saman slegið upp á 4 1. sléttar endurt.
frá *.
12. — : snúinn.
5 M Æ L K I
Þjófurinn: „Ég er nú ekki í
sökinni, herra dómari, ef við
hugsum til þess, að ég var
svangur, vinalaus, hrjáður og
heimilislaus.“
Dómarinn: „Ég samhryggist
yður. Fæði, félagsskapur og
húsaskjól mun verða þitt, a. m.
k. næstu sjö mánuðina."
—O—
Skipslæknir nokkur hafði orð
á sér fyrir að nota mest vatn,
til ýmislegra lækninga, og var
þess vegna í fremur litlu áliti.
Einu sinni í ofsaveðri tók hann
út. Skipstjóri spurði litlu síðar,
hvort enginn vissi um lækninn.
„Jú,“ svaraði einn hásetinn,
„hann brá sér niður í meðala-
kassann sinn, herra skipstjóri."
24
VIKAN