Vikan


Vikan - 04.06.1959, Síða 25

Vikan - 04.06.1959, Síða 25
M A. K WÆ GAMAJA Glúmur tröllkarl (er í sjúkravitjun. Uppstoppaði bangsinn Bjössi sá hann fyrst. — Það er Glúm- ur tröllkarl, hrópaði hann. Kristján, sem sat á gólfinu við hliðina á trédúkkunni Her- manni og skoðaði oddinn á tré- ör, leit upp. Hermann lagði ör- ina á streng. Glúmur kom frá bústað sín- um á bak við bókaskápinn. Hann hló og kinkaði kolli til vina sinna þriggja. Góðan dag, sagði hann. Kristján, Hermann og Bjössi störðu forviða á hann. Á höfðinu á Glúmi tröllkarli vó salt stór kringlóttur ostur. Á öðru eyranu var saltbaukur og á hinu piparstaukur. Á nef- inu var hann með disk og á kinnunum hníf, gaffal og skeið. Þar að auki var tröllkarlinn búinn eins og þjónn, í hvítum jakka og svörtum buxum, og á öðrum handleggnum lá pentu- dúkur. Eg ætla að framreiða mið- degisverð fyrir einn vina minna, sagði Glúmur, áður en Kristján, Hermann og Bjössi fengu ráð- rúm til að spyrja harm, hvert hann ætlaði. Því næst hélt Glúmur áfram og gekk niður kjallaratröpp- urnar. Kristján Bjössi og Her- mann fóru á eftir honum. Hver var þessi vinur hans, sem hann ætlaði að færa mat niður í kjall- ara? Þeir fengu brátt að sjá það. Þeir sáu, að Glúmur tröllkarl fór inn í innsta horn kjallarans. Bak við nokkrar gamlar ferða- kistur og töskur kom hann að litlu gati á veggnum. Það var varla stærra en sprunga. Tröllkarlinn bankaði á litlu dyrnar, sem komu í ljós fyrir innan sprunguna í veggnum. Er nokkur heima? spurði hann. Eftir stundarkom kom ein- hver að dyrunum. Gjörðu svo vel að ganga inn herra Glúmur, sagði einhver. Ég er með miðdegisverð lianda þér, sagði tröllkarlinn. Þá sáu þeir Kristján, Bjössi og Hermann dálítið skrítið koma fyrir. Þeir sáu, að Glúmur tröll- karl varð allt í einu minni og minni, og að lokum var hann ekki stærri en eldspýta. í sama vetfangi þrýsti hann sér inn um sprunguna og hvarf inn um dyrnar með allt það, sem hann hafði meðferðis. Þeir hlupu að til að gægjast inn um sprung- una. Þeir sáu lítið snyrtilegt her- bergi með borði og stólum úr v alhnotuskum og myndir á veggjunum úr frímerkjum. Á gólfinu var ábreiða úr gömlum hanzka. Nú sáu þeir, að Glúmur tröll- karl setti matinn á borð við rúm, og í rúminu lá ungfrú Mús. Ég frétti, að þú værir lasin, góða mín, sagði Glúmur. Þess vegna kem ég með dálítinn mið- öegisverð handa þér. Ó, hve það var fallegt af þér, hrópaði ungfrú Mús. Augun ljómuðu, þegar hún sá stóra ostinn. Einmitt það, sem lækn- irinn ráðlagði, sagði hún. Ungfrú Mús var nýbyrjuð að borða, og Glúmur tröllkarl hjálpaði henni að skera ostinn, þegar Kristján, Hermann og Bjössi heyrðu skyndilega mjúkt fótatak á bak við sig. Þeir sneru sér við. Það var kötturinn. Farið þið frá, sagði köttur- inn. Eg hef heyrt, að ungfrú Mús sé veik. Ég hugsa, að ég þekki ráð til að koma henni á bataveg. Farðu burt, hrópaði Bjössi. Farðu sjálfur burt, sagði kött- urinn og sló Bjössa með ann- arri loppunni, svo að Bjössi datt kylliflatur á kjallaragólfið. Kristján hljóp nú að til að ná kettinum, en þegar hann fékk að finna fyrir beittu klónum, varð hann að sleppa. Nú stóð Hermann einn fram- an við dyr ungfrú Músar. Hann stóð grafkyrr. Hann tók ör og lagði á streng og hélt fyrir framan sig. Kötturinn leit á Hermann og örina, en síðan sneri hann við og hvarf. Jæja, sagði Glúmur tröllkarl, þegar hann kom út aftur. Ég er feginn, að ég fór með mat til vinkonu minnar, ungfrú Músar. Kötturinn fór vist ekki hér um ? Ég vil ekki láta ónáða ungfrú Mús núna. Nei, hvað er þetta, sagði Glúmur, þegar hann sá Kristján og Bjössa meidda og Hermann, sem miðaði ógnandi með beittu örinni. Þetta er hættulegt, sagði hann, legðu örina niður. Síðan fóru Hermann, Kristján og Bjössi upp í húsið aftur á- samt Glúmi tröllkarli. Og ekki leið á löngu, áður en ungfrú Mús varð aftur heilbrigð. Einu sinni var lítill hvolpur. I>ið sjáið hann neðst til hægri á myndinni, Hann íór út að ganga einn góðan veðurdag. I*á sá hann íkorna og þaut af stað til að elta hann. Því næst sá hann Iítinn kettling, en hann hljóp strax inn í hús, þegar hann sá hvolpinn. Loks sá hvolpurinn stóran hund, sem gelti svo hátt, að hann hljóp heim, en auðvitað ekki beinustu leið. Nú skulið þið reyna að finna leiðina, sem hvolpurinn fór, og þið verðið að fara fram lijá stöðiun merktum 1, 2, 3 i þeirri röð. Getið þið getið upp á, hvað vantar í þessa mynd? Þið fáið að vita rétt svar, ef þið dragið strik á milli punktanna í réttri númeraröð frá nr. 1 tll 2, 3, 4 o. s. frv. A eftir skulið þið lita myndina. VIKAN 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.