Vikan


Vikan - 06.08.1959, Qupperneq 4

Vikan - 06.08.1959, Qupperneq 4
Hundadagakonungur í Albaníu Fyrir nokkrum árum brá yfirvöld- unum í Vestur-Þýfkalandi lieldur illilega í brún, þegar maður nokk- ur i Vestur-Berlín reyndi að koma á fót nýjum stjórnmálaflokki. í sjálfu sér var þetta ekki í frásögur færandi, því að sótt var um að fá að mynda sex þúsund nýja flokka á árunum 1946—1956. Það var undirskriftin á umsókn- inni, sem kom yfirvöldunum til þess að reka upp stór augu. Undir bréfið liafði skrifað „Otto I. fyrrverandi Albaniukonungur". Umsóknin var bersýnilega send í fyllstu alvöru, var skrifuð á úrvals- pappir með Albaníufána í einu horn- inu og kórónu í hinu. En þý/ku yf- irvöldin vissu ekki betur en ár og aldir væru síðan nokkur Albaníu- konungur liefði búið i Þýzkalandi. Eftir nánari eftirgrennslan kom það upp úr kafinu, að Otto Albaníukon- ungur hafði raunar aldrei verið til. Maðurinn, sem umsóknina hafði sent, hlaut að vera genginn af göfl- unum. En þessi „Otto I. uppgjafakonung- ur“ var síður en svo úr sögunni hér með, og maður sem kynnti sér málið nánar, rakst um síðir á mann ná- lægt sjötugu, sem bjó í vesældarlegu húsnæði í hliðargötu, þar sem ófagurt var um að litast. En mað- urinn var bæði stoltur og reigings- legur. — Ég ætlaði að finna Otto Witte, sagði David Gille undirforingi. Otto Witte reis á fætur og hneigði sig. — Gjörið svo vel að setjast, sagði hann, — og ég bið yður vin- samlegast að kalla mig „Yðar há- tign“. Gille vissi í fyrstu ekki hvaðan á sig stóð veðrið, og þóttist viss um, að maðurinn hlyti að vera snarvit- laus. En þegar hann hafði talað við gamla manninn i tíu mínútur, var hann alls ekki viss um hvor þeirra væri vitlaus, því að Otto Witte sannaði, að hann hefði í rauninni einu sinni verið Otto I. Albaniu- konungur — i fimm ógurlega sólar- hringa, sem hel'ðu orðið hverjum heilbrigðum manni hin voðalegasta þolraun. Og Otto Witte hafði gert meira en að vera kóngur i l'imm dægur. Á hinni atburðaríku ævi sinni hafði hann komizt í kynni við meira en flestir geta státað sig af. Ævi hans er einna líkusl furðuævintýri eða lygasögu. Þegar hann varð Albaníukonung- ur árið 1912 hafði hann — en hann var þá skráður í þýzka manntalinu sem listamaður — lent i fjölmörg- um ævintýrum, en sérstaklega voru það tveir atburðir, sem urðu minn- isstæðir. Samkvæmt yfirlýsingum Bonn-stjórnarinnar, eru kröfur hans sem fyrrverandi Albaníukonungur, á rökum byggðar, þótt hann hafi reyndar orðið konungur vegna ein- staks áræðis og dirfsku, sem langt má til jafna. Um þessar mundir eru liðin 150 ár frá valdadögum Jörundar Hundadagakonungs á íslandi. Hann er raunar ekki einn um þvílík afreksverk og skal hér greint í'rá öðrum ævintýramanni, Þjóðverjanum Otto Witte, sem lék þennan leik í Albáníu. Hann krafðist þess að vera kallaður „Yðar hátign“ og opnaði ein- ungis bréf, sem voru stíluð „Hans hátign Otto konungur“. Það gekk á ýmsu þessi fimm dægur, sem hann réði yfir Albaníu — og 368 hjákonum í kvennabúri sínu. ■e 7 /I J, o g® H. lí h vj? ij/ J 4

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.