Vikan


Vikan - 06.08.1959, Síða 10

Vikan - 06.08.1959, Síða 10
HrútsmerkiS (21. marz — 20. apr.): Þér fer flest vel úr hendi, sem þú tekur á þessa viku, og heppni þin verður alveg einstök. Þö kann að vera, að fimmtu- dagurnn verði þér ekki til mikilla heilla, og þess vegna skaltu varast það að leggja út í stórræði að óhugsuðu máli þann dag. Þú ferð í stutta ferð, líklega með flugvél. Nautsmerkiö (21. apr. — 21. maí): Ekki liggur fortíð þín ljós fyrir, og að því er virðist fara þeir, sem fæddir eru undir þessu merki öfganna á milli. Annað hvort græða þeir mikla peninga eða verða fyrir óvæntum fjármálahnekki. — Þú munt fá óvænta heimsókn — líklega verður það kona — en láttu gestinn ekki glepja þig. Tvíburamerkiö (22. maí — 21. júní): Þú ert of dreyminn og lætur ímyndunarafl þitt hlaupa með þig í gönur. Reyndu að vera sem mest úti, en klæddu þig samt vel. Ef til vill verður þú ástfang- inn þessa viku, en sú ást á sér ekki djúpar rætur. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Skapið verður ekki sem bezt þessa viku, en það kann að rætast úr því seinni hluta vikunnar. Sennilega verður þú mikið heima við, enda er það þér fyrir beztu eins og stendur. __ Ljósmerkiö (24. júlí — 23. ág.): Líkur iUM eru á giftingu í fjölskyldu þinni, sem kemur öllum á óvart. Það verður allt fgB i uppnámi í kunningjahóp þínum — og líklega mun það stafa af.þessari gift- ingu. Líklega verður einnig skyndilega breyting á högum þínum þessa viku, MeyjarmerkiÖ (24. ág. — 23. sept.): Þú átt eftir að tapa peningum þessa viku, ef þú ferð ekki gætilega. Fyrir alla alla muni skaltu forðast peningaspil. Kunningjahópur þinn er of lítill — reyndu að kynnast fleirum, svo að þú forpokist ekki og farir á mis við lifsins gæði. Vogarmerkið (24. sept. — 23. okt.): Hætta er á hjónabandserjum, sem eiga ekki djúpar rætur. Ökvænt fólk ætti að fara að öllu með gát í samskiptum sín- um við hitt kynið. Þú ert helzt til bjartsýnn og væntir þér of mikils. Drekamerkiö (24. okt. — 22. nóv.): Happatalan þín verður 3 þessa viku. Karlmönnum verður föstudagurinn til mikils láns —ef til vill mun þeim græð- ast peningar. Fórnfýsi þín er virðing- arverð, en þú ert sjálfum þér verstur. Starfsfé- lagi þinn mun hætta fyrra starfi sínu, og þú munt sakna hans mjög. Bogmaöurinn (23. nóv. — 21. des.): Forðastu neyzlu áfengis eins og eitur. Líklegast mun þér græðast talsvert fé, þótt þú eigir engan þátt í því sjálfur. Þér er villugjarnt og þú lítur ekki á hlutina sanngirnisaugum. Fyrri hluta vikunnar hættir þér við skapillsku, en stutt ferðalag getur hæglega breytt því til batnaðar. Geitarmerkiö (22. des. — 20. jan.): Þú getur sjálfum þér kennt um þetta slen. Þú ert í sannleika sagt latur. Þú telur sjálfum þér trú um, að þú hafir allt of mikið að gera, en þú tekur bara starfi þínu ekki réttum tökum. Vatnsberinn (21. jan. — 19. febr.): Taktu ekki mark á þessum slúðursög- um, sem ganga um vin þinn. Þessa viku munt þú skipta þér eitthvað af opin- berum málum, jafnvel koma sjálfur am opinberlega. Farðu þér hægt og reyndu að Eirvega allar stórákvarðánir. Fiskamerkiö (20. febr. —■ 20. marz): Sjúkrahús kemur eitthvað við sögu, en ekki er víst, að þú leggist sjálfur inn á sjúkrahús. Eitt er víst, að heilsan verð- ur ekki með bezta móti. Því meira sem þú ferðast þessa viku því betra. Þú hefur góða dómgreind en hættir til að reiða þig of mikið á loforð og góð orð annarra manna. 'Pi o o Það er sagt að manneskjan megi ekki án ]jcss vera að trúa og tilbiðja. Það kvað ekki skipta svo miklu máli á hvað er trúað, því að ef trúin er sterk og tilbeiðslan einlæg, þá verður hún innri styrkur og lifsuppspretta, sem ekki má án vera. Það eru heldur engin takmörk fyrir því, hvað manninum getur dottið i hug að trúa á. Til dæmis trúir konan niin á móðurbróður sinn, hann Jón Friðjón. Ég hef ekki í eitt skipti heyrt hana ákalla guð almáttugan né fara með bænarkorn eða sálm- vers. F.n ég hef margsinnis heyrt hana segja sem svo: .Ta, hann .Tón Friðjón. Ekki á hann sinn líka. Ég veit ekki hvar við værum stödd ef við ætt- um hann ekki að. Ekki man ég til hess að hún hafi i nokkurt skipti kippt sér upp við það nð heyra guðs nafn gálauslega lagt við hégóma. F.n ég er viss um að hún gengi af göflunum "f einhverjum yrði á að nefna Jón Friðjón í hennar eyru, öðru visi en með fullkomnustu virðingu. •Tón Friðjón er piparsveinn, húsgagnamálari að atvinnu, langur og mjór, grindhoraður. nef- skakkur og úteygur. Hann kennir daglega til okkar, Tætur svo Títið að tylla sér í bezta stólinn okkar og biður ekki með að kveikja i digrum bognum pipu — sterti, sem fyrir löngu er orðinn iiiuti af honum sjálf- um og ber þvi fremur að skoða sem iíffæri en utanaðkomandi hlut. TTann lætur pípuna taka dýfur uppundir hölk- inn við og við og siðan fljóta til haka i freyð- andi munnvatninu. — Viltu ekki kaffibolla Jón Friðjón, segir kona mín jneð vingjarnlegri lotningu. — Jú, ójú. Ég skal biggja kaffi, segir hann hressiiega og lætur ekki lertda við orðin tóm, þvi að sex til átta kaffibollar er hað minnsta sem hann gerir sig ánægðan með. Hann er ræðinn mjög og flugmæiskur. og ekki barf maður að hiusta lengi á hann til þess að heyra að liér talar maður, sem veit ailt um alia hlnti. milli himins og iarðar oa er ekki i neinum vafa um livernig öiiu verði bezt hagað á bvi svæði eins og það leggur sig. Sannfæringarkrafturinn er svo magnaður, vissan svo örugg, að það væri hreinasta hneyksli að láta sér detta í hug að efast eða hreyfa mót- mælum. En ef svo ólíkiega skyldi vilja til að til sliks Smásaga eftir Einar Kristjánsson kæmi, þá er Jón Friðjón ekki lengi að afgreiða viðkomandi persónu. Þú berð ekkert skynbragð á þetta, segir hann slutt og iaggott og það eru röksemdir lians og dómsúrskurður, sem ekki þýðir að áfrýja. Hann hefur alveg sérstaklega mikinn áhuga fyrir hinni vesöiu tilveru okkar hjónanna og leggur ráðin á hvernig henni verði skárst hag- að i einu og öllu, því að auðvitað veit hann alltaf upp á hár hvernig bezt er að snúa sér i hverju máli og mæta hverjum vanda. Látið ykkur ckki detta í liug að fara i leik- húsið til að sjá þennan leik, sem nú er verið að sýna, sagði hann. Þetta er nauðaómerkileg þvæla eftir einskis- verðan höfund. Það var skítt að þið skylduð ekki heldur sjá þetta sem leikið var næst á undan. Það var sannarlega þess vert. Ég var eiginlega alveg að því kominn að bjóða ykkur á þann lcik, en það varð nú eitthvað til þess að koma i veg fyrir það, og var ég þó búinn að panta miðana og auðvitað á beztu sætum. Nei, varstu virkilega svona vænn Jón Friðjón, sagði þá kona mín. Það var cinmitt þessi leik- ur sem mig iangaði svo óstjórnlega mikið að sjá. Alltaf veiztu hvað mér kenuir bezt, hélt hún áfram og lék við hvern sinn fingur, rétt eins og hún liefði þegar verið á leiknum og skemmt sér sfórkostlega. Það kemur ekki til mála fyrir ykkur að fara norður í land i sumarfríinu, sagði Jón Friðjón. Nei, Krísuvíkin er það eina sem vert er að sjá á þessu iandi, og ]iangað skuiuð þið fara og ekkert annað ef þið viljið fylgja mínum ráð- um. Þar er nú ioftslag sem gerandi er að anda að sér maður. Ef bíllinn minn iiefði verið i iagi iiefði ég ekki séð cftir að skjóta ykkur þangað. En það hittist nú svo illa á að hann er ekki tilkippilegur i langferðir í svipinn. ★ Það eru fleiri nornir í Evrópu ★ en í allri Afríku. Glæpamálasérfræðingarnir við alþjóðalögrcgluna INT- ERPOL vinna ekki aðeins að málum eins og hvítri þræla- sölu, úraníumsmygli, morðmálum, ránum og stórsvikum, heldur vinna þeir einnig að málum, sem ætla skyldi, að ekki væru umfangsmikil nú á dögum: lögreglan á sem sagt í baráttu við galdramenn og nornir! Fjöldi seið- fólksins eykst með hverju ári í Evrópu, og í dag cru fleiri í Evrópu en allri Afríku. HROLLVEKJANDI ATHÖFN. Það er komið undir miðnættj. Tunglið er í fylllngli, og reynir að þrengja daufum bjarma sínum gegnum skýjaþykknið. Hópur manna hreyfist hljóðlaust eftir auðum götum. Þeir eru með sverð! Og þeir draga á eftir sér sjúkt, stynjandi fólk. Fylkingin mjakast hægt í átft- Evrópn í viðjum hjútrúur VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.