Vikan - 06.08.1959, Qupperneq 14
Hér hafið þið lúxus-baðherbergi með
tvíbreiðu baðkeri, sturtum og snyrti-
borði. Þvílíkt og annað eins er ekki
við hæfi hins almenna borgara, en ekki
sakar að vita, hvað hægt er að gera,
hafi menn efni á því.
.
J Á hinni miklu
Æ húsa- og hús-
W búnaðarsýn-
^ ingu H55 í Sví-
þjóð, sumarið
1955, sýndu Svíar
þetta baðherbergi.
Þar er venjulegt bað-
ker með sturtu í
veggnum fyrir ofan
og hægt að draga
fyrir. Þar er einnig
sjálfvirk Westing-
house-þvottavél og
þvottavaskur. Á
veggjunum eru
Mosaik-veggflísar.
í íbúðum, sem byggðar hafa verið
á síðari árum, skipar baðherbergið
veglegan sess, hérlendis sem erlend-
is. Það þykir jafn sjálfsagður hlutur
og eldhús og sverfnherbergi. Stærðin
er að sjálfsögðu mismunandi og fer eftir stærð íbúðarinnar og efnahag
þess sem byggir. Amerískir milljónerár hafa það gjarna eins og myndin
til vinstri sýnir: Stóran sal með löngum snyrtiborðum og nuddbekkjum.
En snúum okkur fremur að einhverju því, sem hagkvæmara er fyrir al-
menning. Hér á landi tíðkast að hafa salerni og bað saman og fer oftast
vel. Þjóðverjar og raunar fleiri hallast að ,því að hafa lítið, aðskilið sal-
erni. Svíar hafa mikið velt fyrir sér hinni hagkvæmu hlið þessa máls
og í sýningaríbúðum, sem byggingarsamtök hafa komið upp, hafa þeir haft
þvottavélar og aðstöðu til frágangs á þvotti með baðinu, en salernið sér.
Þannig er þessum málum háttað; sumir hafa þetta þrennt saman, en aðrir
sitt i hverju lagi.
Sjálft baðið er aðallega með þrennu móti: Venjulegt baðker, setker eða
sturtubað. Sturtur ryðja sér æ meira til rúms og finnst flestum það ólíkt
þrifalegra bað, en liggja i skolpinu af sjálfum sér í baðkeri.
rfXfSfí&L
Einstaka vel lagaður vaskur, spegill og vegg-
Ijós í baðherbergi. Mosaik-flísarnar á veggn-
um eru marglitaðar og geta farið mjög vel.
Þær hafa fengist í verzlunum hér.
Baðherbergi af venjulegri gerð, nema hvað hér eru tvær handlaugar —
ekki vitum við til hvers. Á veggjunum eru svartar postulínsflisar.
Til hægri sjáið þið þýzkt baðherbergi,
sem er óvenjulegt að því leyti, að vegg-
irnir eru klæddir með olíubornum viði.
Hvað það endist lengi skal ekki dæmt
um hér, en óneitanlega lítur það vel út.
f þessu baði er ekki baðker, heldur ein-
ungis sturta inni í endanum og plast
hengi dregið fyrir.
Ef baðherberg-
ið er rúmgott,
er þægilegt að
hafa þar koll til
að geta sezt og
baðvogina má
ekki vanta.
Oft má koma
fyrir sturtu, þar
sem aðeins er
baðker fyrir.
Þá er nauðsyn-
legt, að koma
fyrir hengi úr
plasti, sem fell-
ur innan á bað-
kerið.
mm
ÉSl!
. ■