Vikan


Vikan - 06.08.1959, Page 19

Vikan - 06.08.1959, Page 19
BARNAGAMAN Strdkurínn sem dt i hipp rið trollið Saga cftir Helgu Laxdal. Það var einu sinni bóndi, sem átti þrjá syni. Hann var fátækur, gamall og veikburða, en drengirnir þungir til vinnu. í nánd við bæinn var stór og mikill skógur. Þar vildi hann láta drengina sína vinna að skógarhöggi, cn þeir voru tregir til. Loksins tókst honum að nudda þeim elzta af stað. En þegar hann kom í skóginn og var farinn að höggva eitt gamalt og fúið tré, kom til hans ógurlegt tröll. „Ef þú heldur áfram að höggva í ntínum skógi, skal ég sjá um að þú verðir ekki ellidauður!" sagði tröll- ið. Þegar strákurinn heyrði þetta, kastaði hann frá sér öxinni og hljóp heim eins og fætur toguðu. hræðslunni og hlaupunum sagði Þegar hann náði sér aftur af hann frá því scm fyrir hann hafði borið í skóginum. En gamli maðurinn sagði að hann væri ekki hugrakkari en héri, aldrei hefði hann látið tröllin hindra sig frá verki, þegar hann var ungur. Næsta dag fór næstelzti sonurínn af stað. En það fór á siimu leið. Þriðja daginn vildi yngsti sonur- inn reyna sig. „Það held ég sé til nokkurs,“ sögðu eldri bræðurnir, „þú scm alltaf hefur legið við hlóðirnar ataður í ösku og óþverra/ Strákur svaraði fáu, en lngði af stað með malpokann á þakinu. Þegar hann var búinn að höggva um stund, korn tröllið og sagði: „Ef þú heggur í mínum skógi lengur, þá verður þú ekki cldri cn þú erl orð- inn.“ En strákur lét sér hvergi bregða. Hann tók ostbita úr malnum, kreisti svo mjólkin rann úr honum og sagði:‘ „Ef þú þegir ekki eins og steinn skal ég taka þig og kreista hvíta steini hérna.“ „Elsku, bezti, vægðu mér,“ hróp- eins og ég kreisti vatnið úr þessum aði þursinn sem leízt nú ekkí á blik- una, „Þá skal ég hjálpa þér að höggva skóginn.“ Með þeím skilmálum þyrmdi strákur þursanum og svo h.tuggu þeir til kvölds. Þegar kvölda tók bauð þursinn st.rák heim til sín, „því ég á skemmra heim en þú,“ sagði hann. Strákur þáði boðið. Þegar þeir koniu heim i bergið þar sem þursinn bjó, fór strákur að srekja vatn, en þursinn að gera upp eldinn á meðan. En vatnsföturnar voru svo slórar og þungar að strákur gat ekki valdið þeim. „Hvað ætli ég sé að sækja vatn í þessar fingurbjargir," sngði hann, „ég fer og sækji brunninn með því sem í Iionum er,“ sagði liann við þursann. „Nei, nei, fyrir alla iiiiini,“ sagði þursinn og varð nú ekki um sel, „kveik þú eidinn, en ég skal sækja vatnið því brunnínn má ég ekki missa." Þegnr þursinn var koininn með vatnið var pottur settur á hlóðirn- ar. En þegar grauturinn var soðinn sngði strákur: „Ef ég má ráða, þá förum við í kappát.“ Þursinn var fús til þess, því át var íþrótt, sem honum var lagin. Strákur tók malpokann og hengdi liann framan á sig, milli fata en lét opið nema við hálsmálið. Síðan settust þeir til borðs og byrjuðu að háma í sig. En strákur jós helmingi meiru í malpokann, en sjálfan sig. Þegar pokinn var orð- inn fullur dró hann sjólfskeiðung upp úr vasa sínuni og risti á hann svo grauturinn vall allur út. Hélt hann vo áfrani að éta ein og ekkert hefði í skorisl. Þrgar þeir liöfðu étið góða stmid. sagði þursinn: „Nó er ég þrotinn." En strákur kvaðst ckki vera hálf saddur. „Farðu að eins og ég,“ sagði hann, „og ristu þig á kviðinn og þá get- urðu étið eins og þig Iystir.“ „Er það elcki sárt?“ spurði þurs-. inn, en strákur kvað það vera ó- karlmannlegt að kveina sér. Þá tók þursiun stóra sveðju, risti sig á kvið- inn og lét þar líf sitt. En strókur tók allt það gull og gersemar seni hann fann í hellin- um og liélt hróðugur heim. Upp frá því var aldrei skortur í Garðshorni, og þólti jafnan mikið til stráks koma. Svo er ætíð ef íncnii láta ekki bugast þegar á nióti blæa. Sögulok. Sendandi: Ungfrú Helga Laxdal, 15 ára, Túnsbergi, pr. Svalbarðseyri, S.-Þing. Ps. Varðandi það, livað ég æt/la að verða þegar ég er orðin stór segi ég: Engin veit sína ævina fyrr en öll er! VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.