Vikan


Vikan - 06.08.1959, Qupperneq 21

Vikan - 06.08.1959, Qupperneq 21
Var hann ekki fastari í sér en ])að, að við gátum losað liann með rek- um, og kom stundum fyrir að dálítið hrundi inn á okkur. Töluvért hafði nú safnast fyrir af litlu kössunum fullum af sandi og mold, Hlóðum við þeiní upp næst stærri dyrunum i ytri skúrnum. Einn dag konm þau boð frá J., að næst þegar veðrið væri vont, ættum við að raða kössunuin á lóð- ina fyrri framan skúrinn, og var- ast að hafa liávaða við það verk. Skildi ég að það átti að velja vonda veðrið til þess, að siður yrði tekið eftir því, að þarna væri verið að vinna um nótt. Nú vildi svo til að einmitt næstu nótt var livassviðri og dynjandi rigning, og framkvæmd- um við þá þetta verk, sem ekki var þægilegt í svarta myrkri. Við hættum nokkru fyr en venju- lega þessa nótt, og var ég kominn á fætur um klukkan tvö næsta dag. Mætti ég þá Helga með fjórhjólaða vagninn, og þekkti ég kassana á vagninum lijá honum. Það voru sand- og moldarkassarnir, sem ég og grimumennirnir tveir höfðum fyllt. Um klukkustund síðar gekk ég nið- ur að höfn. Sá ég þá aftur Helga á ferðinni með sandkassa, og sá að liann fór með þá út á Löugubryggju. Nokkru siðar gekk ég þar framhjá og sá að kassarnir voru yzt á l»ryggjunni, austanmegin. Næstu nótt var ég einn við vinn- una. En að henni lokinni gekk ég eins og svo oft áður meðfram liöfn- inni, og báru fæturnir mig (eða var það forvitnin?) út á Löngubryggju. Bjóst ég við að kassarnir væru þar enn, þvi að ég hafði ekki séð neitt skip bætast við það eina skip, sem lá þar, sem var saltskip, sem al' einliverjum orsökum ekki hafði ver- ið byrjað á að skipa upp úr fyr en þennan sama morgun. En mér til mikillar undrunar, voru kassarnir allir liorfnir. Hvað hafði orðið uin þá? Höfðu þeir verið settir í mótor- bát? Hvað er orðið um Jón á Klapparstígnum? Þennan liálfa mánuð liafði ég að- eins einstaka sinnum séð Sjöfn. Hún kom nú ekki eins oft á Borg og áður. Daginn eftir var enn ný fyrirskip- un: sein var að rýma til í fremri skúrnum, en láta fulla sandkassa vera næsta dag ofan á fjölunum, sem voru yfir stigaopinu. Þessa nótl vánn Guðmundur með mér, og gerðist ekkerl markvert. Daginn eftir gleymdi ég að gá i pósthólfið (ég hafði gáð á skrif- stofuna, en þar voru engin boð til min). Ég fór til vinnunnar á venjuleg- um tima, og strax er ég kom inn í klefann, fann ég megnan sótthreins- unar-jþef, og virtist sem að allsherj- ar sótthreinsun hefði farið fram í skúrnum, stigaþrepunum og göng- unum, en allra sterkastur virtist mér þefurinn i stigaþrepunum, og hafði rerið kalkað í samskeytin milli borðanna. Ný sending af kössum var kom- in, og hún svo stór, að skúrinn var langt til fullur, og var ég i vand- ræðum með að koma frá því, sem var við vegginn milli skúranna, svo ég gæti komizt i innri skúrinn, og sandkössunum varð ég að hlaða upp þar. Ég var einn við yinnu þeasa nótt. Daginn eftir gáði ég i póstliólfið, og var þar þá þykkt bréf og ritað utan á það til mín með ritblýi. Ég opnaði það, en innan í þvi var ann- að umslag. Ég þurfti að rifa upp þriðja umslagið áður en ég komst að innihaidinu, sem var bréf og seðíar, aðallega scðlar, því þar voru 930 krónur, (af þvi það var þessi Al- þingistala, er mér hún minnisstæð). Bréfið var á þessa leið: „Er skyndilega kallaður á burt, og með- starfsménn yðar líka, sém vinna á nóttinni. Haldið áfram þangað lil gangurinn er 50 metrar, en bíðið þá átekta, hafið þér ekki heyrt frá mér áður. Sýnið mestu gælni. .1.“ Bréf þetta var hripað upp með blýanti, eins og utanáskriftin, og sýndist mér að þetta myndi liafa verið gert í mesta flýti. Peninga- uppliæðin benti líka á að hún væri það fé, sem .1. liafði við hendina, þegar hann ritaði bréfið. Hvað var orðið um J. Hafði hann orðið að fiýja i hili? Ég var nú einn við vinnuna á hverri nóttu. En ég hafði einhvern samstarfsmann, sem vann.á daginn, ])ví kassarnir með sandinum voru negldir aftur og fluttir fram á hverj- um degi, en ég bar þá nú ekki nema rétt upp fyrir stigaþrepin. Smátt og smátt var fært þannig til i skúrnum, að auðvelt var að komast að efni, sem þurfti að nota, og greiður gang ur að þvi að bera fram fullu kass ana, og raða þeim upp i þann enda skúrsins, sem næstur var útidyr- unum. Eina nótt þurfti ég að byrja vinn- una á því, að bera upp alla kassana, er ég liafði fyllt nóttina áður, en ekki var það venjuleg aðferð min, þvi ég bar venjulega upp jafnótt. Varð ég nokkuð þreyttur af að bera þá svona upp alia í einni lotu, og niun sú þreyta hafa valdið þvi, að ég gáði ekki að mér þegar ég fór að moka sandi i nýja kassa og hrundi sandstálið á mig sem var fyrir endanum á göngunum. Fékk ég dálítið slæma þj'ltu, og flumbr- aði mig að auk. Lenti sandurinn of- an á fótunum á mér, hérumbil upp að hnjám, þar sem ég lá flatur, og þurfti ég því að brjótast nokkuð um, áður en ég varð laus. Kenndi þetta mér að sýna þarna liina mestu gætni. Nóttina eftir að þetta varð, kom ég á venjulegum tima i mjóa sund- ið. Ég staldraði við þar eins og vani minn var, til þess að gæta' þess að enginn væri nálægur. Fannst mér þá ég heyra, að einliver væri inni á afgirtu lóðinni, og var ég fyrst að hugsa um að fara ekki inn. En við nánari athugun sá ég, að mér myncti það óhætt, þar eð algert myrkur væri undir hálfþakinu. En ég batt til vara klút fyrir andlitið fyrir neðan augun, og studdi iiægt á tvinnakeflið og fór inn með mestu gætni. IJver var þarna á ferð? Var það samstarfsmaður minn eða njósnari? Eða var það bara þjófur? Mér fannst það ekki geta verið samstarfsmað- ur minn, því hann lilyti að vita að ég (eða réttara sagt: einnver félagi lians) væri að koma á þessum tíma, og hann ætti þessvegna ekki að vera þar. Framhald í nœsta blaSi. MERKI OIÍKAR TRYGGING YÐAR Þær vélar, sem endurbyggðar eru hjá okkur, eru nieð „merkiplötu“ sem tilgrein- ir öll mál á þeim slitflötum sem endurnýjaðir hafa verið, og hvenær verkið var unnið. ATH.: Endurbygging- vélarinnar kostar aðeins brot af verði nýrrar. önssnn BRAUTARIIOLTI 0 — SÍMAR 19215 — 15302. VTKAN 21

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.