Vikan - 01.10.1959, Síða 3
Þegar ung stúlka trúlofast, — 6 hún þá at5
slita kunningsskap við alla karlmenn, sem hún
hefur þekkt? Þetta er spurning, sem margar
stúlkur vilja gjarnan fá svar við. Hér kemur
bréf frá Guðrúnu:
Vinur minn og ég höfum þekkzt i tvö ár,
og ætlunin er, að við giftum okkur innan
skamms. Áður en ég kynntist honum, þekkti ég
pilt, sem nú er búsettur erlendis. Við skrif-
umst á, þvi að við vorum góðir vinir. Nú
heimtar vinur minn, að við hættum þessum
bréfaskriftum, — segir, að ég sé aðeins að gefa
piltinum undir fótinn með þessu. Hann er vist
hræddur um að vera talinn rola, ef hann bann-
ar mér þetta ekki. Það gagnar ekkert, þó að ég
segi honum, að ekkert sé' á milli þessa pilts og
min nema vinátta, svo að nú hef ég fallizt á að
hætta að skrifa. En ég verð að segja, að mér
finnst vinur minn mjög ósanngjarn, — eða
hvað finnst þér? Með fyrir fram þakklæti
fyrir svarið,
Guðrún.
Svar: Ég tel, að vinur Guðrúnar hafi engan
ritt til að heimta, að hún sliti alveg sambandi
vlð þennan pilt, sem hún skrifast á við. Ekkert
væri skemmtilegra en hann yrði sameiginlegur
vinur þeirra beggja. Vinátta er alltaf dgrmset,
og i þessu tilfelli gœti hún orðið eign ykkar
allra. Við vitum ekki nema pilturinn, sem er-
lendis bi)r, sé einmana. Kannski eru þessi bréf
að heiman honum mikils virði, og fundist mér
illa gert og ástæðulaust að svipta hann þeim
einungis vegna eiginqirni unnustans, — þvi
að ekki mundi hann hafa neitt á móti þessnm
bréfaskriftum, ef það væri stúlka, sem i hlut
ætti.
Með kveðju, Aldis.
Skrautritun og erlend blðð.
Mig langar til að vita, hvort Þú getur gefið mér
upplýslngar um, hvort einhvers staðar hér á landi
sé hasgt að læra að skrautrita. Og ef svo er, hver
kennir bað?
Einnig langar mig til Þess að vita, hvort bú getur
útvegað mér utanáskrift til einhvers útbreidds dag-
blaðs i Ameriku og Englandi eða Þýzkalandl.
Með Þökk fyrir mjög skemmtilegt lestrarefni
siðustu vikifrnar.
Dedda.
Ekki veit ég neinn annan stað, þar sem kennt
er að skrautrita, en Handíðaskólann hér i Reykja-
vík. Þar er kennd alls konar leturgerð, — e«
skrautritun með garnla laginu má nú kallast komin
úr tizku.
1 hverju erlendu blaði má finna smáklausu, þar
sem getið er ritstjórnar, aðseturs og utanáskriftar.
Og þar sem úrval erlendra dagblaða er á boðstólum
í flestum bókabúðum, ráðlegg ég yður að athuga
þessi blöð, þvi að þá getið þér líka eflcmst fundið,
hvert þeirra Vientar yður bezt i þessu sambandi.
VIKAK
1
I
1
!
!
!
!
I
!
!
!
!
!
!
!
!
!
Jónas Jónsson frá Hriflu er
ekki blindur aðdáandi nú-
tímalistar og nýtizku hús
fara mjög í taugarnar á hon-
um. Kennir hann þau við
hómark alls Ijótleika, Nes-
kirkju, og nefnir hinn nýja
stíl einu nafni „Neskirkju-
stíl“.
Einu sinni ræddi Jónas um
það, „að Pálmi heitinn Hann-
esson átti sér ekki fastan
samastað meirihluta rekt-
orsára sinna og varð að
hrekjast úr einu leiguhús-
næðinu í annað. Það kom þó
að lokum, að ráðamenn f
þjóðfélaginu sáu, að ekki
mátti við svo búið standa og
byggðu hús yfir rektor suð-
ur í móunum. En þeir þurftu
auðvitað að hafa það f Nes-
kirkjustíl, sko, og húsið var
svo ljótt, að Pálmi dó“.
Gkkur finnst tilhlýðilegt að birta hér mynd af „Konu með
kött“ eftir Sigurjón Ólafsson, af því að Jónas og „Neskirkju-
listin“ er í dálkinum til hægri. Myndin er höggvin í grá-
stein, og mörgum finnst hún allt að því hneykslanlega ljót.
Konan getur að vfsu ekki talizt fögur eftir venjulegum
skilningi, en náttúrleg stæling hefur alls ekki vakað fyrir
listamanninum. Nú er myndin komin á Listasafn ríkisins.
Kona með kött
Þau ætla að fara að
skemmta sér, blessuð hjón-
in. Þau eru að verða allt
of sein, því að krakkarnir
svo seint. En nú
herða sig með
og „meikið“,
hann kannski við
vangann á henni, eftir að
hann var búinn að sápa
sig? Yið skulum vona, að
skemmti sér vel.
V R KA \
Útgefandi: VIKAN H.F.
Ritstjóri:
Gfali Sigurðsson (ábm.)
Auglýsingastjóri:
Áabjörn Magnússson
Framkvæmdast j óri:
Hilmar A. Kristjánsson
Verð i lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr.
216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram.
Ritstjórn og auglýsingar:
Skipholti 33.
Símar: 35320, 35321, 35322.
Pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Miklubraut 15, simi 15017
Prentun: Prentsmiðjan Hilmir h.f.
Myndamót: Myndamót h.f.
Seinni part sumars eru haldin stórmót erlendis, og garparnir
ferðast á milli landa til að taka Þátt í þeim. Það er nú orðið
opinbert leyndarmál, að þeir beztu Þiggja að launum stórfé,
þótt Þeir eigi að heita áhugamenn. Myndin er frá byrjun í 1500
m hlaupi i Þýzkalandi, en þar sigraði hinn frábæri, þýzki hlaup-
ari Valentin á 3:40,2 mín., en annar varð Hermann, landi hans,
á 3:40,9.
- •:.* I r.— 7. r* J **
Sumariö
er búið
Þó að almanakið segi, að
enn sé sumar í nokkrar
vikur, þá er það þó f raun-
inni búið, og jafnvel er
hæpið að gera ráð fyrir
sumarveðráttu, úr þvf að
september er kominn. Hér
sunnan lands hefur sum-
arið. verið heldur sólarlft-
ið, og mörgum finnst sorg-
legt, hversu munurinn á
sumri og vetri er lítill. Þeir
vilja heldur harðan vetur
og sólríkt og hlýtt sumar.
Stúlkan á myndinni er
sænsk og er að sóla sig í
einum af görðum Stokk-
hólms. Þar er hitinn stund-
um óþægilega mikill, og þá
er gott að bregða sér f
kalda sturtu.
Konur I Marokkó eru
óðum að leggja niður
gamla siði og taka
upp aðra eftir evr-
ópskum fyrirmynd-
um. Blæjurnar eru
að hverfa frá andlit-
unum, og þær vilja
jafnrétti við karl-
menn. Kóngurinn í
Marókkó á Þrjár
dætur, og hin elzta
(til vinstri) er mikil
kvenréttindakona og
heldur auk þess æs-
ingaræður gegn
Fransmönnum.
— Sæll ver þú,
Sandy, hvað ert
þú að gera hér?
— Ég er f brúð-
kaupsferð.
— En hvar er
konan þín?
— Hún varð að
vera heima og
gæta verzlun-
tirinnar.