Vikan


Vikan - 01.10.1959, Blaðsíða 26

Vikan - 01.10.1959, Blaðsíða 26
1 „Connoisseur' t mat, þá biðjið þér kaupmanninn yðar um k r y d d NEGULL heill og stelttur KANILL PIPAR ALLRAHANDA KARDIMOMMUR heilar og steittar ENGIFER MUSKAT f bréfum og boxum. í bréfum með uppskrift: HUNANGSKRYDD BRtNKÖKUKRYDD Heildsölubirgðir: Sltipkolt Vr SKTPHOI.TI 1 REYKJAVlK — Mikið hefuröu breylzt, Gunna min — þegai' ég sá þig siðast varst þú lítil lelpa með freknur og útistandandi tennur. Hvert ert þú að góna, Jón! — Jói elskar mig ekki lengur — hann hefur ekki barið mig i heilan mánuð. EGILL STERKI. Framh. af bls. 5. legri, góðri lykt, — bjórlykt. Ég kyngl, geng varlega inn í geymsluna og horfi lengi á bjórkass- ana í horninu. Ljósmyndarinn býr sig undir að taka nokkrar myndir. — Það getur ekki hver sem er komið og sagt bér að afgreiða bjór? spyr ég Jóhannes. — Óekki. Fyrst er pöntunin send skrifstofunni. Ef um sendiráð er að ræða, verður pöntunin að vera undirskrifuð af ráðamanni sendiráðsins og með stimpli bess. Síðan fæ ég pöntunina í minar hendur, undirskrifaða af prókúruhafa ölgerðar- innar. Þá og fyrr ekki læt ég flösku af hendi. Jóhannes Elíasson lætur sér fátt um finnast, læsir vandlega þessum dyrum gleðinnar, og við höldum út i bjórlausa tilveruna, litlu nær um til- ganginn með þessum fáránlegu höftum. Og líklega munu Islendingar, sem ekki eru svo heppnir aö vera í utanríkisþjónustunni, halda áfram enn um langa hriö að drekka þunnan bjór. — Það er ekki öll vitleysa eins Fyrir nokkru reit ungur listamaður grein i timarit hér og kvartaði yfir þvi, að Reykjavík vantaði þennan samstæða svip sem brezkar borgir hefðu. Hér hafið þið sijnishorn af þess- um samstæða svip, sótsvört múrsteinshús svo langt sem augað eygir, húsin nákvæmlega eins hundruðum og þúsundum saman. Engin undur eru þótt hugsunarháttur fólksins, sem þar býr, sé litt skiljanlegur. En vonandi verður lista- manninum okkar aldrei að ósk sinni og raunar á sá brezki hugsunarháttur litla fótfestu hir, að cngu megi breyta frá því sem var í tið afa og ömmu Það varð heldur en ekki kalt strið milli Banda- rikjamanna og Rússa út af sýningarhúsi, sem Bandaríkjamenn komu upp i Moskvu og kölluðu einkennandi fyrir bandarískan almenning. Það vildu Rússar ekki viðurkenna (.Vikan, 23. júll, 1959) og Krúsjeff og Nixon áttu harðar orða- sennur um það mál. Nokkru siðar fundu Rússar mynd af bandaríslcu hússkrifli og heldur tötra- legri fjölskyldu fyrir utan það. Pravda var ekki sein á sér að birta myndina og kvað sönnu nær, að þannig lilu út húsakynni almennings í Bandaríkjunum. Heldur er hún dularfull gatan sú og mætti þar við öllu búast. Enda eru það Tyrkir, sem þarna eru á ferð og ufhhverfið er Algiersborg. Þetta er sjálfsagt úr gömlu hverfi, því borgin er viða reisuleg og ný. En þessi gata mun frá tímum Hundtyrkjans, sem rændi hér við land fyrir rúmlega þrjúhundruð árum. Það voru sjóræn- ingjar frá Algier. 20 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.