Vikan - 01.10.1959, Síða 9
þess i mörg ár og tiltekinn jólamán-
uð birti hann ritdóma um nœr allar
bœkur, sem út komu og lætur nærri,
að hann hafi lesið 500—1000 bls.
dag hvern — í hjáverkum.
Eftir næstsíffustu alj)ingiskosning-
ar varð ekki lengur hjá j>ví komizt
að gera Helga aff formanni Mennta-
málaráðs. Nýlega var svo efnt til
kjörs í það á nýjan leik, og lá Helgi
tvivegis i hlutkestisglímunni við
komma, enda var maðurinn sjálfur
í saklansri skemmtiferð um norffan-
land, með þarlenzkum sæffingar-
meistarai. Stjóm hans á Mennta-
málaráði varð furðu farsæl og enn-
fremur hefur hann reynzt mörgum
klæölitlum og snauðum skáldmenn-
um hinn bezti drengur í áthlutunar-
nefnd lislamannalauna, en dijntir
hans hafa lika stundum leitt hann
nokkuff af réttri leið. Hclga Sæm-
undssgni hefur nefnilega aldrei ver-
ið laginn hinn gullni meffalvegur,
stundum hefur honum þó tekizt að
fara bil beggja og lika gamnaff sér
við aff leika tveim skjöldum.
Þekking og blekking.
Þótt ýmsir beri nokkrar brigður
á djúptœka þekkingu Helga á mörg-
um þeim málum, sem hann hefur
komiö nálægt, leyfir enginn sér aff
efast um einstaka rithæfni hans og
afburða skemmtilegan stil á stund-
um. Hnökróttan að vísu, þvi maö-
urinn nennir ekki alltaf að vanda
sig, en þegar hann leggur sig reglu-
lega fram, standa fáir honum á
sporði. Þannig reit hann fræga pall-
dóma í heimahéraðsblað sitt, ,,Suff-
urland" fyrir nokkrum árum og gaf
þá síöan út og ók þeim sjálfur i
bókaverzlanir. Margir voru dóm-
arnir eitursnjallir og listilega
slungnir og gerffir sumir í argri ó-
þökk viökomenda. Aö launum fékk
hann samt verðlaun úr móðurmáls-
sjóði Björns Jónssonar.
Þá hefur hann auk ritstjórnar
fjölda blaða og timarita, þýtt fjölda
bóka, auk kristilegra kærleiksblóma
fyrir filadelfíuforlagið. Ennfremur
skal getið framboðs hans i Árnes-
og Rangárvallasýslum, en þegar
hann bauö sig fram i Árnessýslu lét
hann þess getiö, að hann heföi þótt
friöari en 2. frambjóöandi flokksins
i það skiptið. Sá vai' séra Ingimar!
Þótti Ilelgi metfé á fundum fyrir
skemmtan ágæta og hnittin tilsvör.
Ghana-svertingjar, sem keyptu
skreiö af íslendingum, héldu, aö
hauslaus skreiöin hefði upphaflega
haft mannshaus. Þótti islenzkum
kaupsýslungum súrt undir aö eiga
og buðu sendinefnd þarlendra hing-
að til lands, til að kynnast skreið-
arverkuninni af eigin raun. Að lok-
um liafnaði nefndin í samkvæmi og
meöal viðstaddra var Helgi nokkur
Sæmundsson. Þegar fagnaðurinn
stóð sem hœst, gekk einn nefndar-
manna til framámanns i samlagi
skreiðarframleiðenda, laut að hon-
um lágt og sagði: Það er þá alveg
satt, sem við höfum alla tíð haldið
og það, sem þið hafið sýnt okkur
er tóm blekking, þvi aö nú hef ég
sjálfur séð skreið með mannshaus.
Undarlegt sambland.
Þótt saga þessi þurfi ekki endilega
aö vera sönn, gæti hún hæglega ver-
ið það, enda er ritstjórinn ekkert
friðleiksmenni, en hinsvegar hin
mesta vitskepna, nœsta herzlulegur
í tali og þráhygginn. Hann getur
brngöiö sér í flestra kvikinda líki,
talað hæglega tungum tveim með
glöggum hreim, er eldsnöggur að
glöggva sig á mönnum og komast
aö viöhorfum þeirra og er hörku-
greindur að náttúru. Hann er und-
arlegt sambland af bóhem, slótlug-
iim ref og original hugsjónamanni,
á erfitt með að hala nokkurn mann
af heilum Iiuga, en jafn óvist, hvort
honum þykir frekar vœnt um marg-
an hlut. Sagt hefur verið um klaufslc-
an stjórnmálamann, að ekki vœri
til svo litil spýta, að honum
tækist ekki aö gera úr henni axar-
skaft. Hætt er liinsvegar við, að
Hclga dygðu engir smáviðir til smið-
anna. Hann er oröinn æföur í her-
mennskulist stjórnmálanna og er
ekki sljóskyggn á brjóstheimsku
andstæöingsins. Því er honum sér-
lega lagiö að henda vopnin á lofti
og koma rétta boðleið til baka.
Stundum reiðist hann illa, lætur
stjórnast af heldur dyntóttum
skapsmunum, er lengi þykkjuþung-
ur og hugsar þegjandi þörfina.
Helgi Sæmundsson kann vel aÖ
meta glaðan hóp og tekur gjarna
lögg í glas og fær sér ofurlitla
krummaolíu í kollinn. Þá minnist
hann gjarna greina, sem hann reit
í bindindisblað skólakrakka,
,,Hvöt“; stundum verður hann bald-
inn og ofurlítið hvinnskur, en ger-
ist eigi að heldur djarftækur á vog-
rek annarra. Hann kann prýðilega
að skopast aö sjálfum sér, og gerir
sér sáralítinn mannamun.
Um framtíð Helga Sæmundssonar
má ef til vill segja það, sem ofl var
sagt um gömul barómeter: Stendur
á óstöðugu.
það væri ekki munur, ef maður ætti
nú eins og hálft hangikjötslæri til
þess að sletta í sig undir svefninn.
Strákur nokkur, með afbrigðum
montinn og grannvitur, sigldi til
Færeyja sem „spéskorinn kampa-
kjaftur og kokkur á fiskijakt“ og
dvaldist þar stuttan tíma. Þegar hann
kom aftur heim f sveit sfna, þóttist
hann mikið sigldur og forframaður
og talaði dönskublending, sem líkt-
ist svonefndri „prentsmiðjudönsku"
og sveitafólkið átti örðugt með að
skilja, enda dró það dár að dreng-
kjánanum. Einu sinni kom strákur
út á engjar, þar sem fólk var að
sæta hey. Hrífa lá þar, og sneru
tindarnir upp. Strákur spyr þá með
miklum svip:
— Hvað heitir nú þetta verkfæri,
íslendingar góðir ?
Um leið og hann sleppti orðinu,
steig hann óvart á tindana, svo að
hrffan skall á skoltinn á honum. Þá
öskraði hann upp yfir sig:
— Því lætur andskotans hrífan
svona?
Samvinna og skólanám
Haustheimtur.
Borgin breytir um svip, þegar
unglingar hverfa heim frá sumar-
vinnu sinni og framhaldsskólarnir
opna dyr sinar á ný. Hávöxnu
drengirnir eru orðnir dálítið þrekn-
ari siðan í vor, þeir tala með merk-
issvip um atvinnu sína, og sumir
hafa lært að reykja. Nankinsbux-
urnar eru dálítið þéttar um mjaðm-
irnar á telpunum, þær hafa eignazt
nýja púðurdós og ilmvatnsglas. Öll
svifa þau milli saknaðar og til-
hlökkunar rétt eins og í vor. Aðeins
skólinn hefur skipt um hlutverk.
Þá voru þau leið á honum, e. t. v.
líka dálítið þreytt á háreysti hóps-
ins, en nú dregur skólinn þau að
sér, og háreysti félaganna er þægi-
lega æsandi.
Umtalsefnið er líka breytt. Ein-
kunnanöldur og prófhræðsla eru
gleymd, en hugurinn fullur af
margvíslegri starfsreynslu, frá tog-
aravinnu og síldveiðum, frá hey-
skap og vegagerð, frá hraðfrysti-
húsi og hafnarvinnu. Unglingarnir
hafa kynnzt margvíslegu fólki, og
mannþekking þeirra hefur vaxið
óðfluga. I nýju umhverfi sumar-
vinnunnar byrjuðu margir þeirra
að skoða tilveruna út frá eigin
sjónarmiði, án
beinna áhrifa frá
foreldrum sinum. . ,
Þeir f engu að P ý
skyggnast inn
í fjölbreytileik __
mannlegrar til-
veru og uppgötv- ,
uðu þá, að margir DSmiO
rækja annað líf-
erni og stefna að L. J
öðrum markmið- pitl
um en foreldrar
þeirra.
Sumarvinna og námsvilji.
Sumarvinnan reynist unglingum
misholl. og samstarfsfólkið hefur
margvisleg áhrif á auðmótaðan hug
þeirra. Mörg störf eru til þess fall-
in að efla likamshreysti og stæla
viljaþrek unglingsins. Á þeim verð-
ur honum sýnileg sú nauðsyn að
leggja sig stundum fram af alefli,
— nauðsyn, sem oft vill gleymast
yfir lexíunum. En vilji unglingslns
til að leggja sig þannig fram i starfi
er oftast háður því fordæmi, sem
samstarfsfólkið gefur. Margoft er
það slæmt fordæmi. Nemendur
verða að sæta tækifærisvinnu, sem
býðst í sumarleyfinu, og lenda þvi
oft með misjöfnum starfsfélögum,
sem hafa tamið sér lélegar starfs-
venjur og ástunda jafnvel bein
vinnusvik. Það einkennir fólk af
þessu tagi. að það þykist alltaf geta
leiðbeint unglingum. Áhrif þess
snerta ekki aðeins hið sameiginlega
starf, heldur einnig lífsstefnu og
daglegar venjur unglingsins. Þessi^
nafnlausi áróður smýgur djúpt inn,J
I hugskot unglingsins og getur ráð-
ið afstöðu hans í mikilvægum at-
riðum, m. a. til náms og skóla.
Margir af vinnufélögunum eiga
heldur óglæsilegar minningar um
afrek sin í skóla og reyna að rétt-
læta sig með því að úthúða skólan-
um sem kostnaðarsamri forheimsk-
unarstofnun. Þannig tekst þeim oft
að vekja andúð hjá unglingnum á
námi og skólasókn. Um unglinga,
sem flosna upp úr skóla og fást
ekki til að ljúka lögboðnu námi, á
það lika langoftast við, að þeir hafa
komizt undir slík afvegaleiðandi á-
hrif.
Unglingar temja sér ýmsar góðar
venjur í sumarvinnunni, en margir
sjá fyrir sér og taka eftir slæmar
venjur, sem verða þeim til hindr-
unar siðar, bæði i námi og starfi.
Þetta á ekki aðeins við um augna-
þjónustu og bein vinnusvik, sem
auðvitað dregur úr afköstum I
námi eins og starfi. Af lélegum
vinnufélögum lærir margur ung-
lingur að neyta tóbaks og áfengis
og að lesa sóðalegar og lágkúruleg-
ar bækur. Það er beint samband
milli hinnar almennu sumarleyfis-
vinnu unglinga og þess einstæða
vandamáls í íslenzkum skólum, að
hálfvaxnir unglingar leiðast út 1
ofdrykkju.
Ofbreyta og nám. *
Hvort sem unglingarnir voru
heppnir með vinnustaði og félaga
eða val þeirra tókst miður, þreytan
Framh. á bls. 24.
VIKAN
9