Vikan


Vikan - 26.11.1959, Blaðsíða 16

Vikan - 26.11.1959, Blaðsíða 16
Andstæðu-tízkan er hún nefnd í París, þessi samsetning á hvítu og svörtu. Fötin eru ýmist sam- sett úr efnum, sitt af hvorum litnum, eins og myndirnar hér að neðan sýna, eða að hvít efni eru puntuð með svörtum hnöpp- um, bryddingum eða krögum, sbr. myndirnar að ofan. OG SVA^T Ef kaupmaðurinn yðar er yður velviljaður og þér eruð búin að greiða matarreikning- inn fyrir síðasta mánuð, gætuð þér sennilega fengið nokkra appelsínukassa eða einhverja svipaða trékassa í verzluninni fyrir lítið eða ekkert. Og ef þér getið ekki í fljótu bragði gert yður Ijóst, hvers vegna í ósköpunum þér ættuð að fara að draga heim gamla trékassa til geymslu, skuluð þér líta á myndirnar, sem þessum orðum fylgja. Þér sjáið auðvitað þeg- ar í stað, að þetta eru einmitt hlutir, sem yður vantar til þess að gera inbúið fullkomið, ekki satt ? Setjum svo, að yður grípi nú áhugi á að gerast „húsgagna- smiður", — gætið þess Þá fyrir aila muni, að trékassarnir, sem þér komizt yfir, séu nægjan- lega sterkir. Æskilegastir eru þeir kassar, sem hafa skilrúm í miðju. en gallinn er sá, að sumir slíkra kassa utan af ávöxtum eru stundum gerðir úr mjög þunnum við, — þeir eru ekki heppilegir í húsgögn. En þegar réttu kassarnir eru fundnir, þarf ekkert nema dálitla handlagni ásamt tölu- verðum áhuga á verkinu. Hér eru tvær uppástungur um notkun trékassanna: 1. Litla náttborðið er hvorki meira né minna en trékassi, sem stendur á öðrum gaflinum. Á hliðar og bak að utan og innan er límt veggfóður og I 16 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.