Vikan - 26.11.1959, Page 24
Hún heitir Angie Dickinson, og ÞaO er
enginn vafi á, aO það nafn eigum við eftir
að heyra oft nefnt á komandi árum. Angie
er nefnilega óvenjuleg stúlka á fleiri en
einu sviði.
1 fyrsta lagi er hún falleg, i öðru lagi
hefur hún persónuleika, í þriðja lagi er hún
gáfuð, í fjórða lagi vel vaxin, og í fimmta
lagi hefur hún hæfileika. Með svo marga
góða eiginleika hlýtur hún að hafa mikla
möguleika, jafnvel í sjálfri Hollywood.
Angie hefur nýlega fengið fyrsta tækifærið
á hvita tjaldinu, og hún mun áreiðanlega
kunna að nota sér það.
— En ekkert liggur á, segir hún sjálf. —
Ég hef tekið það rólega og undirbúið mig
af nákvæmni til þess að vera betur undir-
búin, þegar tækifærið loksins kæmi.
Það kom I John Wayne-myndinni Rio
Bravo, þar sem söngvararnir Dean Martin
og Ricky Nelson léku með henni. Þar lék
hún léttklædda og, að því er virtist, létt-
lynda stúlku og mun hafa verið heillandi
frá fyrsta til síðasta andartaks myndarinn-
ar, að því er við lesum í erlendum blöðum.
Saga hennar er óskön venjuleg. Hún
fæddist í Kulm i Norður-Dakóta, en fjórtán
ára fluttist hún með foreldrum sínum til
Kaliforniu. Þegar skólagöngu lauk, fékk
Angie starf sem einkaritari, en þegar hún
vann fegurðarsamkeppni í sjónvarpi, ákvað
hún að verja launum sínum til að komast
á leikskóla á kvöldin. Árið 1955 fékk hún
fyrsta hlutverk sitt, smáhlutverk í Four
Star Playhouse, einum af kunnustu sjón
varpsþáttum Bandaríkjanna. Fleiri smáhlut
verk í sjónvarpi komu á eftir. En 1957
fékk hún hlutverk í myndinni Ég
kvænist góðri konu, sem John Wayne
framleiddi. Þar veittu ráðamenn
Warner Bros. henni athygli. Hún fékk
annað aðalhlutverkið í mynd-
inni Rio Bravo, og þar með var
hafinn ferill hennar sem leik-
konu.
Nú hefur hún fengið hlutverk
í myndinni Brumberjarunninn, J||
en þar veröa mótleikarar henn-
ar Barbara Rush og Richard
Burton. Angie leikur þar hjúkr-
unarkonuna Fran, en þarna fær
hún ekki sömu tækifæri og í
P„io Bravo til að sýna fagurskapaðan
líkama sinn og granna fótleggi, sem
að þröng skuli vera á þingi, þar sem æf-
ingarnar fara fram!
Angie Dickinson segir frá þvi, að hún
hafi búið í Burbank, rétt hjá kvikmynda-
verum. Warner Bros., i sex ár, og á þeim
tíma hafi henni ekki boðizt eitt einasta
hlutverk hjá félaginu. Síðan hafi hún flutt
og fengið sér íbúð í 17 mílna fjarlægð frá
kvikmyndaverunum, og þá hafi ekki liðið
á löngu, þar til hún var búin að fá hlut-
verk. Svona er lífið, segir hún.
sumir halda fram, að séu fegurstu leggir
í allri Hoilywood, — hún kemur nefnilega
fram í einkennisklæðum hjúkrunarkonu
mestalla myndina. 1 staðinn mætír hún á
æfingunum í prjónasamfesting, sem fellur
þétt að líkamanum. Það er ekki að undra,
Það er ekki ýkjalangt síðan - fáir menn höfðu
hugmynd um, hver Sacha Distel vár. Það rann
ekki upp fyrir fólki utan Frakklands, fyrr en
heimspressan tilkynnti einn góöan veðurdag feitu
letri: Brigitte Bardot hefur trúlofazt! Það var sem
hulu væri lyft af honum, þegar hann var kynntur
umheiminum.
Að vísu hafði hann áöur verið allkunnur í
heimalandi sínu. Hann var talinn allgóður pianó-
leikari sjö ára gamall. Það var 1940. Sama ár var
móðir hans handtekin, en hún var framarlega í
flokki í andspyrnuhreyfingunni frönsku. Sacha
litli var látinn í fóstur til móðurbróður síns,
hljómsveitarstjórans Ray Ventura,
Þetta var atburður, sem átti eftir að verða af-
drifaríkur fyrir drenginn. Allt stríðið var bókstaf-
lega troðið inn í hann músík, og eftir stríðslok
kom fyrir alvöru skriður á músíkferil hans. Þá
gat Ventura nefnilega á ný farið að koma fram,
livar sem honum þóknaðist, — og hvert sem hann
fór, fylgdi Sacha litli honum eftir. Það var þó
ekki af Því, að hann væri svo sérstaklega hrifinn
af frænda sínum, — miklu íremur hreifst hann
innilega af gítarleikara hljómsveitarinnar og leik
hans.
Hann fór í fyrstu gítartímana. Framför hans
var mikil þegar í byrjun. Fljótlega var lagður
grundvöllur að jazzhljómsveit, sem 15 ára gamalt
ungmenni stjórnaði. Nú var hann orðinn hljóm-
listarmaður. Fjölskyldan settist á rökstóla til að
ræða framtíð drengsins. Öllum var ljóst, að tón-
VIKAN
TVEIR
„í TOPPIHUH”
p AÐ er ekki auðvelt að ná frama
í kvikmyndaborginni Holly-
wood. Menn þurfa að hafa sitt af
hverju til að bera til þess að ná
þar „á toppinn", eins og kallað er,
og samkeppnin er hörð. Og hafi
menn líka heppnina með sér, eru
því heldur engin takmörk sett, hve
langt má ná. Sem dæmi þess má
nefna Tony Curtis, sem nú á — til-
Tony Curtis og Sammy Davis
tölulega ungur að árum — heilt
kvikmyndafélag og er einn eftir-
sóttasti og tekjuhæsti leikarinn I
Hollywood. Og að auki er hann
kvæntur fallegri konu, dansk-banda-
rísku leikkonunni Janet Leigh, og
eiga þau tvö börn. Tony er áreið-
aniega „á toppnum“.
listin var honum allt, og auðvitað átti hann að fá
að stunda hana áfram. En hann varð að læra
eitthvert fag líka, og þess vegna var hann sendur
til Ameríku til að leggja stund á hljómplötufram-
leiðslu.
Á hálfu ári náði hann að kynna sér allar grein-
ar framleiðslunnar, frá innpökkun til kaupa á
höfundarrétti, en á kvöldin lék hann sér til gam-
ans á næturklúbbum í Harlem. Þannig hélt til
veran áfram, eftir aö hann kom heim til Parísar,
— hljómplötuútgáfa á daginn, jazzklúbbarnir á
kvöldin.
Hann var líklegur til frama, — utan alls annars
hafði hann orðið þess áskynja, að hann gat sungið
laglega. Á þessum tíma hitti hann Brigitte Bardot.
Slúðurdálkar blaöanna gerðu hann frægan á met-
tíma, en hann vildi bara ekki verða frægur sem
„unnusti Bardot". Hann vildi vinna fyrir frægð-
inni með söng sínum og leik.
Og nú — löngu eftir ævintýrið með fallegu
leikkonunni — er hann vel þekktur og í áliti í
sinni grein, ekki sízt fyrir eina nýjustu hljóm-
plötu sína, sem farið hefur eins og eldur í sinu um
allt meginlandið, og heitir Scubidu. Á hálfum
mánuði hafði það lag verið leikið inn á plötu í 21
útgáfu í París einni.
VIK A N
CUMMINS dieselvélin er öruggasti afl-
gjafinn við hverskonar framkvæmdir.
CUMMINS dieselvélin er léttbyggð, gang-
viss og sérlega sparneytin.
CUMMINS dieselvélin er notuð að stað-
aldri af yfir G0 framleiðendum i vega-
gerðarvélar og önnur tæki sem þeir
framleiða.
CUMMINS PT oliukerfið er einfaldasta
olíukerfið i notkun. 1 því eru aðeins 188
hlutir samanborið við yfir 450 hluti i
öðrum olíukerfum.
■
CUMMINS
■
Simi 17450.
C N það var enginn barnaleikur
fyrir hann að komast þangað
frá öngstrætunum í Brooklyn, þar
sem hann eyddi dögunum fyrir
líklega sex árum. Það var löng og
ströng barátta. Hjá Universal-kvik-
myndafélaginu, þar sem hann fékk
fyrstu smáhlutverkin, töldu menn,
að hann væri ósköp venjulegur ung-
ur maður, fremur snoppufríður. En
svo tókst honum að sýna fram á,
að hann gæti með góðum árangri
leikið gamanhlutverk. Hlutverk hans
urðu stærri með hverri nýrri mynd.
Sama gilti um launin. Jafnvel hinir
grimmustu gagnrýnendur hafa nú
viðurkennt, að Tony hafi ótvíræða
leikhæfileika. En það eru ekki að-
eins hæfileikarnir, sem hafa gert
það að verkum, að hann hefur náð
svo langt. Viljakraftur hans og
menntaþrá hafa átt sinn þátt í því
líka. Á undanförnum árum hefur
hann leitazt við að bæta upp mennt-
unarskort æskuáranna, og honum
hefur tekizt það framar vonum.
NGI negrasöngvarinn Sammy
Davis yngri er einnig gott
dæmi þess, hve langt má komast,
þegar vilji og þolinmæði eru annars
vegar. Árum saman kom hann fram
í næturklúbbum Bandaríkjanna á-
samt föður sínum og gömlum
frænda, og enda þótt hann ætti kost
á betra starfi einn sins liðs, neitaði
hann ávallt að yfirgefa föður sinn
og frænda, sem höfðu kennt hon-
um allt. Hann hélt áfram, allsendis
ódrepandi, og nú hefur hann upp-
skorið árangur erfiðisins. Nú ákveð-
ur hann sjálfur laun sín, og nú ríf-
ast menn um að fá hann til að starfa
fyrir sig. Hann á tvær kvikmyndir
að baki, Anna Lucasta og Porgy og
Bess, sem báðar hafa náð miklum
vinsældum. Hann hefur svo sannar-
lega náð upp „á toppinn".
í næsta blaði: Kvikmyndasagan
„HERSHÖFÐINGI DJÖFULSINS“.
(ory 09 Sophio
Houseboat nefnist ný
bandarisk kvikmynd frá
Paramount Internati-
onal kvikmyndafélag-
inu. Aðalhlutverk mynd-
arinnar leika þau Sop-
hia Loren og Cary
Grant. 1 myndinni eru
þau hjón og eiga þrjú
mannvænleg börn. Auð-
vitað kemur hjónunum
vel saman. En það er
lika sagt, að þeim Sop-
hiu og Cary komi ó-
venjulega vel saman í
einkalifinu og séu væg-
ast sagt mjög „svag“
hvort fyrir öðru. Hvort
meira verður úr þvi en
orðin tóm, skal hins
vegar látið ósagt hér,
en bæta má því við, að
Cary er nýskilinn, en
Sophia harðgift.
25