Vikan - 26.11.1959, Side 33
!
Sportmenn
Framhald af bls. 19.
— Þú byrjar auðvitað á Því að milda þá
:með neftóbakinu.
— Já. maður tekur upp dósirnar.
— Hvað er það annars, sem Lanunám ríkis-
:ins gerir?
— Annaðhvort kaupir það land eða tekur
Jand, sem hefur verið í eign ríkisins, og kemur
þar upp nýbýlahverfum. Það sér um að full-
rækta 10 hektara fyrir hvert býli, vegarlagn-
ingu, vatns- og skólpveitu. Býlin eru síðan
leigð með góðum kjörum.
— Ég sé, að það er mynd af þér við lyft-
ingar undir glerinu á borðplötunni. Er það
:í sambandi við landnámið?
Milli steins og sleggju
— O-nei, það er i sambandi við sportið, —
■'sleggjukastið. Það er nú önnur saga.
— Þú ert búinn að eiga Islandsmet i mörg
ár. Ertu enn i framför?
— Að visu setti ég nýtt met í sumar. En
að jafnaði kastaði ég lengra í fyrra.
— Og þú ætlar að halda áfram?
— Því ekki það? — Annars eru þessi fé-
lagsmál utan um íþróttirnar plága, sem tekur
allt of langan tima.
— Er ekki erfitt að æfa sleggjukast, •—
sleggjan er svo fjári þung.
— Ekki erfiðara að æfa það en annað. Það
eru hlaup, leikfimi og lyftingar.
— Hvað þarf til þess að ná góðum árangri
í sleggjukasti?
— Hraða, kraft og lag, •—
ekki nauðsynlega þunga, en
þó er það kostur, sé hann
ekki á kostnað annars.
-— Þú hefur alla þessa
eiginleika, eða hvað?
— Þunginn er kannski
nógu mikill. Annars finnst
mér, að fyrst nú í haust hafi
ég náð réttu lagi. Það er
bara svo erfitt að leiðrétta
sig, þegar maður er búinn að
venja sig á einhverja vit-
leysu. +
Hún vissi ekki
meta slétta og hreina húð, fyr en
meta slétta og lireina húð, fyr en
hún fór að nota TOKALON
krem.
D Ö M U R ! Vanrækið ekki liúð
yöar. Fegurð og T O K A L O N
fer saman. Reynið T O K A L O N
strax í dag.
Fæst í helztu snyrtivöruverzlunum
hæjarins.
VIK A N
Fer Katla að gjósa?
Framhald af bls. 5.
hjá okkur, — hin miklu vatnshlaup,
sem fylgja gosunum.
— Það er varla mannhætta af ösku-
fallinu, en ef það kemur á vondum
tima árs og vindur stendur illa, t d.
af austri, og fer yfir Suðurlandsundir-
lendið um sláttinn, getur 'það vaidið
miklu tjóni, — eða ef það fer yfir
Skaftártungu, eins og margsinnis hef-
ur komið fyrir, og lagt hana í auðn
um tíma. Vatnsföllin sópa auðvitað
burtu brúm og vegum. Þau fara yfir
Mýrdalssand. en það er að vísu ekki
miklu að eyða, því að hann er svartur
og gróðurvana, en byggðirnar fvrir
austan hann, bæði Álftaver og Meðal-
land, eru í nokkurri hættu, þvi að
sandurinn er orðinn svo hár, að það
munar svo litlu, að vatnið skelli sér
austur. Það eru nokkrir bæir þar í
hættu Auk þess er hugsanlegt, að
hlaupið fari eitthvað vestur með, —
vestur undir Vík. Hefur nú verið reynt
að sporna við því, að þar sé byggt
alveg niður undir fjöru.
— Er ástæða til að flytja fólk burt
af þessum bæjum, sem i hættunni
eru?
— Ég held, að svo sé nú ekki, þar
sem svo lítið er vitað um það, hvenær
gosið muni verða. Hins vegar, ef kæmi
sterkur jarðskjálftakippur í Vík, svo
að fólk yrði vart við hann, þá má
telja öruggt, að gosið sé alveg að
koma. Ég held, að þegar hafi verið
gerðar ráðstafanir til þess, komi svo
sterkur jarðskjálfti, að þegar verði
stöðvuð umferð yfir Mýrdalssand og
Álftveringum gert viðvart, því að þeir
lenda inni í hlaupinu, ■—; það fer
beggja vegna við Álftaver. Ástæða
væri til, að talstöð væri til taks í
Álftaverinu. Annars ætti hlaupið ekki
að koma svo fljótt, að ógerlegt yrði
að koma boðum í sima, — því að
aldrei hefur, svo að vitað sé, liðið
skemmri tími en svo sem tvær klukku-
stundir, frá því að jarðskjálfta varð
vart í Vík, þangað til að hl^upið var
komið niður á sand og búið að taka
veginn. Auk þess er vegurinn neðar
á sandinum nú en áður var. Þá er og
mjög sjaldgæft, að nokkur jarðskjálfti
komi I Vík nema í sambandi við Kötiu,
og er því sjálfsagt að viðhafa allar
varúðarráðstafanir, ef til slíks kemur.
Tannskemmdir eru eitt af
vandamálum nútímans,
BINACA tannkrem með
CAMILLE er síðasti sig-
ur svissneskra vísinda-
manna. — Hjá lyfjarann-
sóknastofu CEBA í Sviss
liéfur þeim tekizt að
vinna hreinsandi og nær-
andi efni úr kamille
jurtinni sem heldur tönn-
unum óvenju hvitum og
hreinum.
Gjörið meir fyrir tennur
yðar í framtíðinni. Látið
börn yðar hyrja rétt. —
Kaupið túbu af BINACA
með Camila strax i dag.
ÍbinaoaI
1 tandpasta med c;amille |
Einkaumboð: Fossar h.f.
Box 762. Simi 1 61 05.
33