Vikan


Vikan - 18.02.1960, Qupperneq 3

Vikan - 18.02.1960, Qupperneq 3
Ég hef ekki heyrt þess getíð, en þaS má vel vera fyrir því. Hitt er áreiðanlegt, að slíkt skyldi enginn reyna nema samkvæmt læknissamþykki og að undangenginni skoð- un, þvf að flug í mikilli hæð reynir mjög á hjartað. Fluggjaldið hjá Birni fer víst nokkuð eftir því hvert á land er flogið. En sem sagt — ræðið um þetta við lækninn og hlítið úrskurði hans. VERÐANDI LJÓSMÓÐIR? Kæra Vika, Ég leyfi mér að snúa mér til þin í vandræð- um mínum, i von um að þú hjálpir mér. Mig langar mjög mikið til að verða ljósmóðir, en vandræðin eru að ég veit svo lílið um það, ég á við námið, og hvernig því er háttað. Viltu vcra svo góð að benda mér á cinhverja eða einhvern, sem ég gæti svo skrifað til og spurt um þetta allt saman. Með l'yrirfram þökk. Anita. Þú skalt skrifa til skrifstofu landlæknis í Reykjavík, og þaðan getur þú eflaust fengiö allar upplýsingar þessu viðvíkjandi. ÚR KAUPTÚNI N ORÐANLANDS. Kæra Vika. Innilegar þakkir fyrir alla skemmtunina og fróðleikinn, sem þú liefur veitt mér. Nú langar mig svo mikið að leita ráðlegginga hjá þér. Ég fer í mjög fint samkvæmi bráðlega og mig lang- ar til að lita sérstaklega vel út. Ég fór þvi á stúfana og keypti mér allskonar krém, — nær- ingarkrcm, hreinsikrém og eitthvert „make- up", — en nú koma vandræðin. Ég kann nefni- lega ekki að nota nei.t af þessu, hef satt að segja aldrei gert það, og er þó orðin 25 ára. Geturðu nú ekki gefið mér góð ráð'? Á ég til dæmis að púðra mig mikið eða Iítið yfir meik- ið o. s. frv. Svo sendi ég beztu þakkir fyrirfram og vona að ég fái svar sem fyrst. Blessuð æviniega. Stclla. Heyrðu, Stella — þetta er nú ekki öldungis eins einfait og þú virðist haida. Fyrst og fremst þyrfti ég að sjá framan í þig, svo þyrfti ég að sjá allar krukkurnar, svo þyrfti ég að sjá framan í þig aftur — hugsa mig um og setja upp spekingssvip, landslag and- litsins, nýjustu tækni og tízku í andlits- snyrtingu, sennilega annaðhvort orð á ensku og svo eitt og eitt á latínu. Að því búnu mundi ég svo koma með niðurstöðuna af öllu saman — ef þú á annað borð notar fegurðarlyf, þá gerðu það á þann hátt, að engum detti fyrst og fremst í hug þegar hann lítur þig, að þú sért undir áhrifum þeirra. Sem sagt, Stella, ef ég væri kominn norður — nema ég segði sem svo: Heyrðu, Stella, þurrkaðu allt þetta böivað ekki sen meik framan úr þér á stundinni, eða ég skal ... CHRISTINE KAUFMAN ... Kæri jjóstur. Þú hei'ur oft gefið mir góð ráð, og enn skrifa cg þér; Geturðu sagt mér hcimilisfang hinnar ungu leikkonu, Cliristine Kaufman, eða hvernig ég get náð sambandi við hana. Hún hefur leik- ið í mörgum kvikmyndum, l. d. „Sumar i Napoli“ og mörgum öðrum. Með fyrirfram þökk. Roy. Nú hefur einn lesenda Vikunnar — eða öllu heldur tveir — komið henni til aðstoðar með upplýsingar um Elvis Presley og John Saxon. Hver vcit nema einhver geti líka hiaupið undir bagga með þetta. Kæra Vika. Heimilisfang Elvis Prcsley: 30 th. Ccntury Fox — Beverley Hills, Hollywood — California, U.S.A. ... John Saxon. — Universal Studios — Universal City Cal. Útgefandi: VIKAN H.F. RITSTJÓRI: Gísli Sigurðsson (ábm.) AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásbjörn Magnúason FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hiimar A. Kristjánsson Verð í iausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr. 21(5.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Simar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Miklubraut 15, sími 15017 Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Myndamót h.f. —........... .1 ...........I FORSÍÐAN Við helgum forsíðuna Símoni Dalaskáldi í til- efni af því að „Hrímn- ir“ hefur sett saman merkilega ritsmíð um flakkarana íslenzku, sem reikuðu bæ frá bæ og áttu hvergi heimili. Siðari hluti greinarinn- ar birtist i næsta blaði. Myndin er teiknuð af Halldóri Péturssyni. Brauðostur 45% Brauðostur 30% Schweizerostur 45% Goudaostur 45% Kúmenostur 45% Gráðaostur Mysingur Rjómamysuostur Góðostur Smurostur Rækjuostur Tómatostur Hangikjötsostur Ostnr er bollnr er óiýr jæðo Húsmæður, úr ostum gerið þér vínsælustu ábætis og smáréttina þegar þér hafið gesti

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.