Vikan


Vikan - 18.02.1960, Blaðsíða 35

Vikan - 18.02.1960, Blaðsíða 35
ríkum mæli, — til dæmis Símon Dalaskáld, sem orti flestum lof, en þó einkum dauðum köppum og ung- um, bráölifandi konum; kvað hann dýrar rímur af köppunum og afrek- um þeirra, en ungu konunum ást- lieita mansöngva, þar sem hann dáði dyggð þeirra og fegurð. Þótti þeim flestum lof lians gott, en lakara, þegar liann gaf í skyn í kveðskapn- um, að þær liefðu reynzt sjálfum honum greiðviknar á blíðuna. Mjög flíkaði Símon kvensemi sinni og ásthneigð, — krafðist þess jafnan, þar sem hann var nætursakir, að ijreitt væri ofan á hann kvenpils og þá helzt nærpils einhverrar vinnukonunnar, sem honum leizt vel á, eða jafnvel heimasætunnar, og lézt undir engri ábreiðu eiga vær- ari svefn eða ljúfari drauma. Mátti hver sú mey, er sýndi lionum slíka greiðasemi vænta þess, að hann launaði henni það í ltveðskap, sem halda mundi nafni hennar, dyggð, fegurð og öðrum þeim kostum, er hún vildi lielzt vera búin, á loft, lcingu eftir að pilsgopinn var slit- inn. — Og ekki dró það ilminn úr kveðskapnum, ef Símon gamli fékk að halda i liönd henni, meðan liann orti. Yfirleitt þótti Símon aufúsu- gestur á bæjum og var vel tekið. Mæður fengu hann til að yrkja um börn sín, og þótti betur en ekki, er hann bað þeim gæfu í stuðluðu máli. Ungu stúlkurnar roðnuðu upp i hársrætur við mansöngva hans og fingrakálkn, en eldri griðkur ógift- ar fussuðu og sveiuðu fjölþreifni karlskrattans, og var þó ekki eins leitt og þær létu. Greindum bænd- um og jafnvel lærðum mönnum þótti nokkur fengur í rímnakveðskap hans, enda þótt „listaskáldið góða“ liefði 'þá með einu greinarkorni komið þvi í tizku meðal menntaðra manna að andhyglast við sjlikan kveðskap og kalla hann „leirburð- arstagl og holtaþokuvæl". Framhald I næsta blaði. BrúðkaupsnóUÍn Framhald af bls. 7. Hún reikaði af stað. Gekk fyrir vökina og stefndi út á ísinn. Hún rakti meiðaförin, özlaði fannirnar skjálfandi af ótta og kulda og renn- vot upp að mitti. Hún reyndi að herða gönguna, og loks kom hún þangað, sem fákurinn blakki hafði fælzt. Hún sá, að snjórinn var þar troðinn og bældur, og víða sá í dökkgrænan ís- inn, og þaðan lágu skiðaslóðir og hurfu út í myrkrið. Þar lá Jónas. Andlit hans var blóðstokkið, og hann dró andann Þungt og erfiðlega. Hún neri andlit hans úr snjó, annað augað var stokkbólgið og löng, blóðug rák lá yfir ennið og niður annan vangann. Hinu auganu starði hann út i myrkrið og bölvaði. Hún reisti hann á fætur, leiddi hann þangað, sem fákurinn blakki stóð fyrir sleðanum, sagði honum allt, er gerzt hafði, en hann svaraði henni engu orði. Hún lagði hann út af á sleðann, vafði feldinn að honum, sett- ist hjá honura, tók i taumana og ók fyrir oddann. Þegar þau komu inn í þorpið við víkina, stóð móðir Jónasar úti fyrir dyrum með skriðljós í hendi. Hún brosti til Lenu og bauð hana vel- komna. — Loksins eru þið þá komin heim, mælti hún fagnandi. SKAKÞATTUR Riga, 1900 Musióbragð. Hvítt: Niemzowitsch. Svart: Áhugamaður. I. e4, eö, 2. í'4, exí'4, 3. Rf3, g5, 4. Bc4, g4, 5. o—o, gxf.3, (i. Dxf3, DfG, 7. d3, R«7, — 7. . . fíliG er vcnjulef/rci oc/ betra svur viö j>cssu tnjöc/ svo óvenjulec/a ot/ sjaldséöu brac/ði scm fáir bcila m'iorðið. 8. Íic3, RcG, 9. Bxf4, Rd4, 10. Df2, d(i, — Svartur má ekki leyfa e5 — 11. Rd5, Dd8, 12. e5, — Eftir þenn- an leik er erfitt nm vctrnir hjá svörlum. — 12. . . cG, 13. Bg5, Dd7, 14. Rc7f, DxRc7, 15. Bxf7t, Kd7, 1G. Df5t Likt og þetta vicri 2ja lcikja þraut. — 1G. . . RxDl'5, 17. e5—eG mát. Sikileyjarvörn. Hvítt: G. Welch Svart: L. Adams 1. e4, c5, 2. Rf3, RcG, 3. (14, cxd4, 4. Rxd4, RxR, 5. DxR(14, RfG, — Þetta er (jreinileya rangur leikur, því riddarinn verður að hörfa strax heim aftur. — G. e5, Da5t, 7. c3, Rg8, 8. Be3, eG, 9. Rd2, Re7 — Svartur er þegar glataður, því ef hann leikur t. d. fíc5, kem- ur 10. Ðgh, hótar Dxg7. — 10. Rc4, Dd5, — fíijður upp á mát i 3ja leik eða drottningartap. — 11. RdGt, Kd8, 12. DbGt, a7xb6, 13. 'BxbG mát. Fallegur endir. Skákþraut. F. Gamage. Ilvítur mátar í 2. leik. 'O 'h l 7, ‘spa '■ 'i jh 'tqa ■?, i " -i .171 'B/Ui Eoa -n;ioi| ‘j,pQ' ■[ :usnv.‘i Lausnarleikurinn á síðustu þraut er 1. Dgl. Nýtíxku RftFH Æ eldavél í nýtízku eldhús Nýtízku gerðir Rafha eldavéia fullnægja óskum sérhverrar hús- móður um útlit og gæði, og svo er verðið við hvers manns hæfi. Islenzlcar húsmæður velja islenzk heimilistæki. H.F. RAFTÆKJAVERKSHIDIAN HAFNARFIRÐI — SlMAR: 50022 OG 50023

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.