Vikan


Vikan - 18.02.1960, Blaðsíða 9

Vikan - 18.02.1960, Blaðsíða 9
Egyptar i flesta fedayin-hermenn sína. Megin- ibækistöð fedayin-sveitanna var lengi brezk lög- reglustöð við landamærin milli Gaza og Egypta- lands. Þegar Israelsmenn snerust til varnar, var stöðin eyðilögð af Gyðingum. Sumarið 1956 hafði Egyptaland tekið við miklum vopnasendingum 'frá ríkjunum austan járntjalds, og fjöldi tækni- lærðra Rússa hafði komið E'gyptum til aðstoðar. Nasser ógnaði nú ísrael bæði í orði og riti. Fedayin-sveitirnar voru nú styrktar til muna. En sveitirnar létu sér ekki nægja að ráðast að Isra- elsmönnum frá Egyptalandi, heldur réðust þeir til atlögu frá nágrannalöndum ísraels: Jórdaníu, Sýrlandi og Líbanon. Oft héldu sveitirnar í gegn- um Israel á milli landa þessara. Það kom í ljós, að Egyptar áttu von á um 1000 tæknimenntuð- um Rússum í desember sama ái. Þessir menn áttu nú að hjálpa Egyptuni að skipuleggja árásina á Israel. En Ben Gurion og Moshe-Dayan létu fyrr til skarar skriða. Nú var skipulögð árás gegn Egyptum haustið 1956, Operation Kadesh", og þetta átti að riða fedayin-sveitunum að fullu, einkanlega á Gaza-svæðinu. Bækistöðvar fedayin- manna fundust nú í Gaza og Sinaí og voru þegar herteknar. Þar komust Israelsmenn að því, að 2500 fedayin-hermenn höfðu nýlokið ,,námi“ og ætlunin væri að ráðast inn í Israel, sem skipt var í þrjú svæði. E’innig fundu Israelsmenn mikl- ar vopnabirgðir. Israelsmenn óttuðust nú, að þetta landsvæði yrði aftur meginstoð fedayin-sveitanna, ef þeir héldu þaðan. Og enn í dag bendir ekkert til þess, að Egyptaland og Sýrland hafi í hyggju að hætta árásum sínum á Israel. 1 átökunum í Líbanon virðast fedayin-sveitirnar einnig hafa skorizt i leikinn. Samkvæmt banda- rískum og líbönskum skýrslum hertók strand- gæzla Líbanons skip frá Gaza. Um borð voru 11 egypzkir skæruliðsmenn. sem höfðu meðferðis peninga, 6000 riffla og skotfæri. Fleiri skip frá Gaza fluttu sama dag 100 fedayin-menn til suður- strandar Líbanons. Þeir voru allir teknir hönd- um. í skýrslu utanríkisþjónustu Bandaríkjanna 2.—4. júní segir meðal annars: „Hermenn frá Gaza eru sendir í þrjátíu manna hópum inn í landið tvisvar á viku. Flestir halda aftur til Gaza, en 4. júni voru 150 þeirra í Libanon." Hinir miskunnarlausu og harðskeyttu fedayin- hermenn hafa orðið til þess, að enn er hatur milli Gyðinga og Araba. Þótt sveitirnar séu að ein- hverju leyti svipaðar landvarnarsveitum, er aug- ljóst, að meira vakir fyrir þeim en vernda ein- ungis land sitt. Og fedayin-hermennirnir hafa brotið friðhelgi ísraels á ófyrirleitinn og óafsak- anlegan hátt. • . . ★

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.