Vikan - 18.02.1960, Page 17
Borðplattur
úr basti
Efnið, sem þarf til þess
að búa til þennan fallega
borðplatt, er tréplata, um
30x30 sm að stærð, nagl-
ar, um 2 sm að lerígd, 1
búnt garðbast (einnig má
nota „Fura-bast“, en það
er miklu dýrara), 1 hönk
af lituðu basti.
Byrjið á að leggja garð-
bastið í bleyti. Takið
pappír, um 24x24, og
skiptið honum í 8 hluti á
kant, hver ferningur 3
sm. Sjáið I. mynd.
Festið nú pappírinn á
plötuna þannig að negla
5 nagla á hvora hlið, eins
og I. mynd sýnir.
Festið nú fyrsta bast-
þráðinn þar, sem merkt
er með x á II. mynd.
Leggið hann niður að
merki 4, og beygið niður
fyrir naglann og upp aft-
ur, eins og sézt á II.
mynd. Þannig er bastþráð-
urinn festur á naglana
koll af kolli. Síðan er
beygt fyrir hornið og
haldið áfram á sama hátt
þvert yfir, eins og sést á
II. mynd. Hafa þá mynd-
azt bastferningar yfir all-
an pappírinn.
Þegar bastþráður er bú-
inn og annar látinn I
staðinn, er nauðsynlegt,
að endarnir standi út af
til hliðanna.
Þessi samskeyti má gera
á grófgerðan hátt, jafnvel
hnýta endana saman eða
festa þá saman með baðm-
ullargarni, því að lokum
eru allir endar klipptir
af, eins og sést á fyrir-
myndinni.
Fallegast er að hafa um
10 lög af þráðum. Þá er
byrjað að sauma með lit-
aða bastinu. Gangið vel frá
endanum og saumið 1 stórt
krossspor, og herðið þétt
að. Gangið frá endanum
á röngu, en klippið ekki
frá, heldur látið hann
liggja á röngunni að næsta
krossspori og þannig nið-
ur og upp á vixl, þar til
mottan hefur öll verið
saumuð. Takið hana þá
upp af nöglunum. Ef það
gengur ekki vel, má losa
naglana á hornunum.
Klippið alla lausa enda
aí allt í kring um platt-
inn. •*-
“1 * V ~
1
Bóndadóttir með blæju
Plumkaka
250 gr rifið rúgbrauð, 25 gr smjörl., 25 gr sykur, 100 gr
þurrkuð epli, vatn og sykur, 2 dl rjómi, ribsberjahlaup.
Gamalt rúgbrauð er rifið og þurrkað í bakarofni. Sykrin-
um er blandað saman við brauðið og það brúnað í smjörlík-
inu á pönnu, — síðan sett á fat. Hræra verður í brauðinu,
meðan það kólnar.
Eplin, sem legið hafa í litlu vatni um nóttina, eru soðin
ineð sykri, þar til þau eru komin hér um bil i mauk. Maukið
á r.ð vera þykkt. Síðan er maukið kælt. A botninn í skálinni
er sett rúgbrauð, ofan á það er sett eplamauk, þá rúgbrauð
og eplamauk og rúgbrauð. Skreytt er með þeyttum rjóma og
ribsbcrjamauki.
250 gr smjörlíki, 225 gr sykur, 4—5 egg, 225 gr hveiti, 25
gr kartöflumjöl, 3 tsk. ger, sítrónusaft og saxaður sítrónu-
börkur, hakkaðar möndlur, rúsínur, súkkat og kokkteilber.
Deigið hrærist, síðan sett í vel smurt form og bakað við jafn-
an hita í ca. 1 klst.
Þetta er salt- og piparsett, sem búið er
til i Gliti h.f. Staukarnir eru úr keramiki,
mjög fallegir í lögun. Stúturinn með
korktappanum í er sérlega þægilegur sein
hald. Staukarnir fást í ýmsum litum og
kosta kr. 73.00 seltið.
Sjálfvirkur ísblandari. Það er fljótlegt verk að búa
til ís, ef þér hafið svona tæki við höndina. Þér þurfið
ekki annað en setja efnið í ísinn ofan í skálina, sem
sést liér á myndinni, láta lokið yfir og stinga liylkinu
inn í frystihólfið í ísskápnum. Síðan er snúrunni
stungið í samband og spaðarnir, sem þeyta isinn, fara
í gang. Og eftir stutta stund er ísinn tilbúinn fyrir-
hafnarlaust að kalla.
VIKAN
17