Vikan - 18.02.1960, Qupperneq 19
m
4*
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Þú
skalt ekki skemmta þér allt of mikið í
þessari viku, heldur reyna að sinna íjöl-
skyldu þinni — þú færð miklu meiri
skemmtun af því. Vinur þinn mun verða
þér að ómetanlegu liði í vikunni, og skaltu eftir
megni reyna að votta honum þakklæti þitt.
Nautsmerkiö (21. apr.—21. mai): Ein-
hver breyting verður á hógum þínum, og
vafalaust verður hún til bóta. Þú munt
lenda í deilum við einn kunningja þinna,
og ekki er víst að þið náið sáttum i bráð.
E'n allt bendir til þess að þú hafir á réttu að standa,
svo að þú ert með pálmann í höndunum.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Um
helgina verður þér komið þægilega á ó-
vart. Gamall kunningi þinn kemur
skyndilega fram á sjónarsviðlð, og mun
flest snúast i kringum hann í vikunni. Ef
þú ætiar að ráðast í stórræði, er þetta einmitt vik-
an til slíks. Þú munt lenda i kiandri út af gamalli
skuld. Heillatala 5.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Ef
lífiö leikur ekki við þér í vikunni, skaltu
leita ráða þér eldri manna, og þar með
verður vandinn leystur. Vikan er karl-
mönnum til mikilla heilla, en ekki er
sama að segja um konur, þó einkum ógiftar konur.
Helgin verður þó öllum til ánægju.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág.): Liklega
munt þú koma fram opinberlega í vik-
unni, og skalt þú undirbúa þig vei -—
ellegar kannt þú að mæta harðri gagn-
rýni. Þér finnst einn kunningi þinn gera
á hlut þinn, en ef svo er, er það algeriega óafvit-
andi. Fimmtudagur verður dagur óvæntra atvika.
Meyjarmerkiö 24. ág.—23. sept.): Þú
munt lenda í sérkennilegum félagsskap
í vikunni, og þótt þú kynnist ekki fólk-
inu nánar, munu kynni þín af því verða
þér til mikillar ánægju síðar meir. List-
rænir hæfileikar þínir fá að njóta sín í vikunni.
Þér munu græðast peningar óvænt. Heillalitur
blátt.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú
munt sinna einu áhugamáli þinu mikið í
vikunni, og er það vel. Þessi ástundun
þin mun leiða af sér skemmtilegan at-
burð i lok vikunnar. Vinur þinn mun
leika skemmtilega á þig, en þú mátt ekki taka Það
illa upp, því að þetta er aðeins græzkulaust gaman.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Um
helgina rnunt þú tefla á tæpasta vaðið í
máli, sem þér er mjög annt um, og eí þú
ferö ekki að öllu með gát., munt þú iðr-
ast þess mjög. 1 samkvæmi kynnist. þú
konu, sem gæti orðiö þér að miklu liði. f-’ú virðist
einum of eigingjarn þessa dagana.
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Vikan
verður einstaklega tilbreytingarlítil, og
hætt er við að þú verðir gripinn lifsleiða,
nema þú gerir þér litið að góðu. Þó ger-
ist eitthvað á laugardag, sem kemur þér
i gott skap. Þú ert of kröfuharður þessa dagana og
ætlast til of mikils. Heillalitur rautt.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú
færð skemmtilega hugmynd í lok vik-
unnar, og telja stjörnurnar sjálfsagt að
reyna að hrinda henni i framkvæmd. En
til þess skalt Þú leita liðsinnis kunningja
þíns. Vertu á varöbergi gagnvart fólkí. sem þú
þekkir ekki of vel, því að einhver vill þér miður
vel. Heillatala 4.
aVatnsberaraerlúö (21. jan.—19. feb.):
Þetta verður vika mikilla öfga: Þú munt
annars vegar skemmta þér mikið og
einnig verða fyrir miklum vonbrigðum.
Gamall kunningi þinn bregzt liklega
trúnaðartrausti þinu, en liklega stafar það af mis-
skilningi, svo að þú mátt ekki taka það of illa upp.
Fiskamerkið (20. feb.—20. marz): Úti-
vera er þór bráð nauðsyn í vikunni. Þú
ert orðinn heilsutæpur og veitir ekki af
hreinu lofti. Vinir þínir nokkrir koma
þér skemmtilega á óvart um helgina. í
sambandi við einhvern merkisatburð í fjölskyld-
unni kernur dálítið einkennilegt fyrir, sem á eftir
að breyta framlið þinni.
Minnkandi velta hjá gripdeildinni
Við vissum, að það var unun að verzla
í Egilskjöri, en við fórum þangað ekki til
þess, heldur til þess að hitta að máli Kolbein
Kristinsson. Það var rétt fyrir lokunartíma
og mikil ös í búðinni. Kolbeinn er verzlunar-
stjóri i þessari fallegu kjörbúð, og hann var
önnum kafinn við að leiðbeina viðskiptavin-
um. Hann kvaðst sannfærður um ágæti kjör-
búða; meðal annars væri hægt að komast af
með færra starfsfólk. Hann er þó ef til vill
þekktari sem frækinn íþróttamaður en verzl-
unarfrömuður og var fyrir nokkrum árum
toppmaður í hástökki og stangarstökki. Stökk
hann vel yfir hæð sína í hástökki, og hefur
það alltaf þótt virðingarverður árangur. Það
var, meðan Kolbeinn átti heima á Selfossi og
starfaði hjá Kaupfélagi Árnesinga. Hann var
þá potturinn og pannan í íþróttalífi á Selfossi,
og kom þá um tíma hver afreksmaðurinn
af öðrum frá Selfossi, meðan handleiðslu
Kolbeins naut við. Nú hefur mjög dofnað
yfir íþróttafrægð Selfyssinga, og Kolbeinn á
litið sem ekkert við æfingar, en hann er jafn-
léttur i spori og tággrannur eins og þegar
Iiann var í landsliði Islendinga.
Við spurðum Kolbein, hvort erfitt væri að
hafa umsjón með svona stórri verzlun, Hann
kvað það ekki með öllu erfiðleikalaust —
eins og öll önnur störf, sem unnin væru af
kostgæfni.
— Mikið um gripdeild'r i kjörbúðinni?
— Þið eruð alltaf ólmir í gripdeildir. Ég
get sagt ykkur, að þær eru ákaflega sjald-
gæfar og þó mun minna núna í vetur en
áður. Það getur líka verið af því. að maður
sé misjafnlega vakandi. Auðvitað á starfs-
fólkið að hafa augun hiá sér, án þess að beri
á því. Við megum bókstaflega til með það.
— Er þá tekið strangt á því, ef stuldur
kemst upp og einhver er staðinn að verki?
— Sá hinn sami er að sjálfsögðu yfirheyrð-
ur, en ekki kærður, — það er að segja, —
ekki við fyrsta brot, og ég veit ekki til Þess,
að ítrekuð brot hafi komið fyrir.
— Hvort eru það fremur karlmenn eða
kvenfólk, sem fellur fyrir þessari freistingu?
— Það verður að gæta þess, að af við-
skiptamönnum hér eru alltaf 70—80% kven-
fólk, svo að ekkert er að marka, þótt það sé
í meiri hluta, — já, raunar mjög miklum
meiri hluta Svo kemur það fyrir, að börn
taka ófrjálsri hendi, stundum er það af óvita-
skap og þá hringir maður heim til foreldra
þeirra. Framhald á bls. 33.
Þessi fegurðarsamkeppni fór
raunar fram á árinu sem leið,
og það er ekki seinna vænna að
birta úrslitin, áður en fegurðar-
kappmót ársins 1960 hefjast. En
sem sagt, — þetta var Miss World-
keppnin, ekki á Langasandi, held-
ur í London, og sigurvegari varð
ungfrú Corine Rottschaffer frá
Hollandi. Hún er í miðið og þykir
minna á hina frægu furstafrú í
Monaco, Grace Kelly. Það er ekki
leiðum að líkjast. Lengst til
vinstri er Anne Thelwell frá
Englandi, þá kemur Maria Ross-
ell frá Perú, og hinum megin við
fegurðardrottninguna er Ziva
Shomrat frú fsrael og Kirsten
Olsen frá Danraörku.
Þær
dansa
/
í
Las Vegas
Sænskt kvenfólk þykir mjög edtirsóknarvert á er-
lendum skemmtistöðum, og Sviar segja sjálfir, að
kvenfólk só orðið ein helzta útflutningsvara þeirra
og sjálfsagt hin langvinsælasta. Sænskar stúlkur réðu
sig í liópum á næturklúbba í Mílanó á ftaliu, og var
mikið skrifað um það mál í sænsk blöð. Töldu þau
stúlkurnar eiga óglæsilega framtið og spáðu illa fyrir
för þeirra. Hér höfum við mynd af tvíburasystrun-
um Gudrun og Mai-Lis. Þær fóru alla leið til Las
Vegas í Bandarikjunum, en sú borg er einna þekkt-
ust fyrir fjárbættuspil -og hvers konar djarfar
skemmtanir í villta vestrinu. Þær Gudrun og Mai-Lis
hafa mjög gott kaup og telja starfið á engan hátt
áhættusamt, og þær ætla aftur heim til gömlu Svi-
þjóðar, þegar þær eru búnar að græða nóg á Kan-
anum.
Magnús
Jngimarsson
& Co
á æfingu
Við mættum Magnúsi Ingimarssyni lijá Frí-
kirkjunni; hann var að fara á æfingu með
hljómsveit sinni 1 Framsóknarhúsinu og við
slógumst í för með þeim. Þau voru mætt hin
fjögur, einn Pétur, tveir Gunnarar og Sigrún
Jónsdóttir, sönglcona.
Magnús Ingimarsson hefur orðið kunnari
danshljómlistarmaður með hverju árinu sem
líður og útsetning hans á hinum ágætu lögum
Jóns Múla í „Rjúkandi ráð“, var ekki sízt til
þess að efla hróður hans.
Magnús er annars af svarfdælskum og ís-
firzkum uppruna, en uppalinn að mestu i „út-
hverfum“ Dalvíkur. Þar lærði hann lítilsháttar
í orgelspili á sinum yngri árum, en fluttist
suður 1945 og lagði stund á prentiðn að gagn-
fræðanámi loknu. Eftir að Magnús kom til
höfuðstaðarins lék hann á harmoniku með
Gunnari Kristjánssyni og fleirum. Þeir spiluðu
víða um sveitir og þó mest á Snæfellsnesi.
Píanóleikurinn kom svo að sjálfu sér eftir
haldgóða æfingu á magaorgelið og þá byrjaði
hann að leika listir sínar fyrir Reykvíkinga,
fyrst í Vetrargarðinum og ú Borginni. I fyrra-
vetur lélc Magnús á píanó með hljómsvejt
Gunnars Ormslev i Framsóknarhúsinu og nú
er hann sjálfur orðinn forustusauður; spilar
jöfnum höndum á pianó og hormoniku, eftir
þvi sem við á.
Pétur Jónsson er saxofónleikari i hljóm-
sveit Magnúsar. Hann hefur langa æfingu að
baki; átti um tima heima i Noregi og spilnði
þá með ágætri hljómsveit, sem kennd er vjð
Kjell Karlsen. Pétur er útlærður prentari eins
og liöfuðpaurinn og vann um tima við auglýs-
ingateikningar lijá Aftenposten í Oslo. Áður
spilaði Pétur á barryton-saxofón en nú er hann
með alto-sax — það er talið betra í lítilli
hljómsveit.
Gunnar Sigurðsson leikur á bassa. Hann
byrjaði músikferjl sinn með gítarspili um
Framhald á bls. 21.
Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, talið frá vinstri: Pé.ur Jónsson, Gunnar Sigurðsson,
Magnús Ingimarsson (situr), Sigrún Jónsdóttir o ' Gunnar Mogensen.