Vikan - 18.02.1960, Qupperneq 22
!
►
— Viltu segja mér þeg-
ar þú verður þrej’ttur á
mér?
— Ég verð aldrei þreytt-
ur á þér.
Aðalpersónur
sögunn r:
Gobillot lögm
Yvette
hjákona lögm.
Viviane eigin-
kona lögm.
Mazecti elskhugi
Yvette
verð að panta hótelherbergi í tíma, þvi að yfir
jólin er margt um manninn uppi I fjöllunum. Ég
komst að því fyrir mörgum árum.
Laugardagur S. desember.
„KvöldverOur hjd forsœtisráöherranum — Vivi-
ane, frú Moriat.“
Jean Moriat, sem er forsætisráðherra eins og
við höfðum búizt við, hefur aðsetur á hótel
Matignon, og býr þar með konunni sinni, en hann
er samt næstum á hverju kvöldi heima hjá Corinu.
Á laugardag bauð hann henni til kvöldverðar og
voru þar saman komnir nokkrir vina hans, auk
nánustu samstarfsmanna. Við hjónin vorum með-
al vinanna, og náttúrlega Corina. Frú Moriat stóð
fyrir veizlunni, og gerði það svo afkáraiega, og
með svo greinilegum ótta við að gera einhverja
vitleysu, að maður fann í sér löngun til að rétta
henni hjálparhönd.
Ég held að hún kæri sig kollótta um ástarfar
manns síns. Hún liggur honum ekki á hálsi fyrir
það, og ef hún telur annaðhvort þeirra ámælis-
vert, tekur hún sökina á sig. Meðan á allri mót-
tökuhátiðinni stóð, og eins við veizluborðið, var
22
VIKAN