Vikan


Vikan - 18.02.1960, Qupperneq 25

Vikan - 18.02.1960, Qupperneq 25
„Mér líkar vel hérna vestan hafs” Segir þýzka leikkonan Sabina, sem leikur aðal-kvenhlutverkið í ,,SPARTACUS” AÐ er eittlivað norrænl við yfirbragð þýzku leikkonunnar Sabinu Betb- mann, segir danskur fréttamaður, seni ræddi við bana í Hollywood. Bæði útlitið og málbreimurinn gætu bent til Norður- landa. Sabina var valin til að leika eina stóra kven- hlutverkið í hinni nýju mynd Kirk Douglas, Spartakus, sem mun kosta hvorki meira né AÐ eru liðin 30 ár síðan Marlene Dietrich kom fram í hinu ógleymanlega hlutverki sínu í „Bláa englinum“. Enn er talað um Jiá kvikmynd og í Þýzkalandi end- ursýna kvik- myndahúsin gömlu nivndina stöku sinnum. Það er því talsverð áhætta því fylgj- andi fyrir hina ungu leikkonu May Britt að taka sér á herðar hlut- verkið, sem gerði Marlene fræga. „Blái engillinn“ segir frá prófess- or nokkrum, sem finuur póstkort með myndum af hinni tælandi danskonu, Lólu, í bekknum hjá sér. Sama kvöldið fer prófessorinn á staðinn, ]iar sem Lóla kemur fram, til þess að ganga úr skugga um hvort nemendur hans haldi sig þar. Þetta verður örlagaríkur fund- ur. Lóla, sem einn- ig er kölluð „blái engillinn", nær prófessornum á vald sitt, og eyði- leggur bæði starfsferil hans og einkalíf. minna en fimm milljónir dollara, en áður hafði kvikmyndafélag hans, Bryna-félagið, leitað um allan heim mánuðum saman að leikkonu, sem félli í hlutverkið. Baeði þekktar kvikmyndaleik- konur og óþekktar ungar stúlkur i mörgum lönd- um voru yfirheyrðar og skoðaðar og Sabina var 33. ljóshærða unga stúlkan, sem var kvikmynd- uð til reynslu, áður en hún var endanlega valin. Sabina var í miðju kafi að leika í þýzkri mynd, þegar framleiðslustjóri Universal kvikmyndafé- lagsins fann hana. Hann sá nokkrar kvikmyndir, sem hún hafði leikið i, og gerði sér þegar ljóst, að þar var á ferðinni leikkona, sem væri þess „Arnar- vængir" Kvikmyndastjórinn John Ford, sem meðal annars sviðsetti „Þögla manninn“ og „Þrúgur reiðinnar“, stendur að baki framleiðslu á kvikmyndinni „Arnar- vængir“, sem er saga liinn- ar undraverðu þróunar flugflotans á tuttugu árum milli heimsstyrjaldanna. En þótt myndin sé að öðr- um þræði alvarleg saga, er hún þrungin glettni frá upphafi til enda. Aðal- persónan, Frank Wead flugsveitarstjóri, en sann- söguleg, og ef trúa skal scgum um liann, hefur hann verið sannkabaður sprellugosi. Til dæmis framkvæmdi hann vægast sagt óvenjulegt flug eftir að hafa lært að fljúga að- eins örfáa tíma — gegnum flugskýli og upp og niður milli húsþaka og lauk ferð- inni síðan með glæsilegri nauðlendingu i húsagarði aðmírálsins. Þessu, og fleiru í sama dúr, kynnast menn betur i kvikmynd- inni. fullfær að taka að sér hlutverk Variníu í Spartakusi. Forstjórinn beið hennar, þegar hún hafði lokið við þýzku myndina. Hún hafði verið að hlakka til þess, að taka sér dálítið frí frá störfum ásamt manni sínum, Herman Bethmann, sem er fyrsti fiðlari í Berlínar filharmóniunni. Þrem dögum síðar sat hún samt sem áður í flugvélinni á leið til Hollywood. — Já, frídagarnir fóru út í veður og vind, segir Sabina, og brosir brosinu, sem hefur átt sinn þdtt í velgengni hennar á kivkmyndatjaldinu. — En þetta var tækifæri, sem ég gat ekki látið ónotað. Þegar maðurinn minn heyrði, að ég hefði möguleika á að leika á móti slíkum listamönnum sem Sir Laurence Oliver, Charles Laughton, Peter Ustinov og Tony Curtis, varð hann strax riijög skilningsrikur. Við höfum þegar vanizt því í hjónabandi okkar, að vera fjarvistum. Bæði at- vinna mín og hans krefjast þess. Hermann er nefnilega oft á flakki með fílharmóníunni. Ég hef nú leikið í 12 kvikmyndum í mörgum löndum Evrópu, og langar til að reyna lika hvern- ig er að starfa í Ameríku. -— Og hvernig fellur yður það, sem af er? — Það er ólíkt því, sem ég hélt að það væri. I fyrsta lagi er Hollywood allt öðru vísi en ég hafði hugsað mér. Menn höfðu sagt mér hve allt væri þar yfirborðskennt. En nú hef ég verið hér í má'nuð, og alls ekki sannreynt það, sem mér var sagt. Mér fellur vel að vera hér. Allir hafa verið mér svo góðir. Mér finnst Bandaríkjamenn vera mjög hjálpsamir. — Og starfið í kvikmyndaverinu? — Þar varð ég ekki heldur fyrir vonbrigðum. Ég bjóst við þvi, að þeir mundu byrja með þvi að gera mig ókennilega með þykku lagi af and- litsfarða, en þeir nota minni farða hér en við gerum heima í Þýzkalandi. Ég mæti í kvikmynda verinu klukkan sjö á morgnana, og á að vera reiðubúin til að ganga fram fyrir myndavélina klukkan níu Það tekur mestan tíma að lagfæra hirið. Hlutverkið krefst nefnilega sérstakrar og vandasamrar liárgreiðslu, en í staðinn fæ ég að lelka það svo að segja ómáluð og með mínu eigin andliti. Og hvílíkur léttir! — Hve lengi ætlið þér að dveljast hér? — Að minnsta kosti hálft ár. Töku þessarar risamyndar verður tæplega lokið fyrr en í júni. — Þá hafið þér auðvitað ieigt höll og með- fylgjandi sundlaug í Beverly Hills? — Nei, minna má nú gagn gera. Mér líður úgætlega í rúmgóðri nýtízku íbúð í hlíðinni norður af Sunset Boulevard. Hins vegar hefi ég keypt mér bíl. Maður er beinlinis neyddur til að hafa bíl hérna, þar sem f jarlægðirnar eru svona miklar. Ég er dálítið rugluð í umferðinni hérna. E’kki af því að hún sé svo mikil — það er hún líka í Berlín, en sérna virðist maður geta farið fram úr bíl bæði hægra og vinstra megin, eftir þvi hvernig á stendur, en það er alls ekki leyfilegt heima. Þetta ruglar mig og ég verð ekki eins örugg. — Voru taugarnar í lagi fyrir framan kvik- myndavélina þegar í stað? — Svolitill fiðringur í maganum fyrst i stað. — Þér saknið þá einskis hér? — Jú, mannsins míns. En hann ætlar að heim- sækja mig strax og hann hefur tíma tii. Og ég hlakka til.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.