Vikan - 18.02.1960, Qupperneq 26
Á ég að láta þröngva mér til að opinbera?
Kæra Aldís.
Ég er átján ára og er mikið meS strák sem ég
er mjög hrifin af. En nú er ákveSiS aS hann
fari til útlanda og verSi eitt ár í burtu. Nú vill
hann endilega aS við setjum upp hringana áSur
en hann fer. Mér finnst aftur á móti aS viS
ættum að bíSa meS þaS þangaS til hann kemur
aftur. Mér finnst ég vera of ung. Nú er ég ást-
fangin, en þaS hef ég veriS áSur og mér finnst
satt aS segja aS þaS væri betra fyrir okkur
bæSi að hafa þennan tíma til að átta okkur á
hlutunum. En þá segir hann að ég sjái sig ckki
framar, það sé nú eSa aldrei. Mér finnst liann
nú hafa falliS dálítiS í áliti hjá mér viS þetta.
Get ég ekki í þessu tilfelli gert eins og ég vil?
Ein á báSum áttum.
Svar: Mér finnst mjög skynsamlegt af þér
að láta ekki þröngva þér út í trúlofun, því
að auðheyrt er að þú ert alls ekki viss um
tilfinningar þínar gagnvart piltir.um, sem
alls ekki er von, svo ung sem þú ert. Oft
hefur maður heyrt vonsviknar konur segja
„hann var alveg brjálaður á eftir mér, og
hótaði að svipta sig lífi ef hann fengi mig
ekki“. Þetta tóku þær sem einskonar skjall,
og voru jafnvel upp með sér af því, en það
átti eftir að koma í ljós síðar að sömu að-
ferðinni átti að beita til að koma öðru oft
miður þægilegu í gegn.
Nei, vertu ákveðin núna. Það mun borga
sig.
Kær kveðja,
Aldís.
Kæri Ljósálfur.
Þakka þér kærlega fyrir gott og skemmtilegt
bréf, og sérstaklega fyrir vingjarnlegt orð um
þáttinn minn. Alltaf þykir manni lofið gott.
Mér þykir reglulega leiðinlegt að mega ekki
birta bréfið þitt, því að það var svo bráðsmell-
ið, og hefði verið gaman að lofa lesendum Vik-
unnar að sjá það.
Þú minnist á þessar brjóstaðgerðir, Ljósálfur
minn, og ég get glatt þig með þvi að þær eru
framkvæmdar í Danmörku. Það er þó styttra
að fara en til Ameríku.
Það er nú einu sinni svo, að fæstir eru full-
komlega ánægðir með útlit sitt. Margar konur
þekki ég, sem eru alveg eyðilagðar yfir því, hvað
þær hafa stór brjóst. Ekki skalt þú samt ör-
vænta inín kæra, yfir hinum flata barmi þín-
um, því að ég veit um eina konu scm var alveg
brjóstalaus eins og þú segist vera. Eftir fyrsta
barnið, sem liún eignaðist, varð engin breyting,
en nú, eftir að hún hefur eignazt þrjú börn, er
liún búin að fá reglulega falleg brjóst og er
þetta engin undantekning. Svo var það spurn-
ingin um hvað þú getir gert til að fitna. Brauð
og aftur brauð með miklu af smjöri og osti,
kartöflur eins og þú getur torgað og sósur og
súpur. Sem sagt allt þetta sem liinir verða að
fara varlega í sem eru að berjast við spikið.
Svo er heillaráð að leggja sig eftir matinn, helzt
eftir hverja máltlð. Ekki skaltu neita þér um
sætar kökur eða sælgæti, hnetur eða hunang,
rjóma eða sultutau. Já, mikið að margir fari
að öfunda þig sem mátt láta allt þetta í þig með
góðri samvizku.
Þá var það varaliturinn. Mér finnst ágætt hjá
þér að nota þennan ljósa lit sem þú notar, enda
eru þessir ljósu litir mjög í tízku núna, en alltaf
finnst mér að maður þurfi að eiga dálítið úrval
af litum, því að það fer ekki lijá því, að taka
verður tillit til hvernig fötin eru lit sem mað-
ur klæðist og velja varalit og naglalakk í sam
ræmi við það í hvert skipti. Mig langar til að
stinga upp á því að þú reynir einn lit sem ég
er viss um að fer vel við Ijósa hárið þitt og
bláu augun, hann heitir Surprise, og er frá
Elisabeth Arden.
Að endingu langar mig til að segja þér að ég
dáist að ldmnigáfu þinni. Svo margir taka sjálfa
sig allt of alvarlega.
Með beztu óskum og kveðjum.
Þín Aldfs.
Finnor stœrstu pnppírsútílytjtndur Evrópu
Pappírsútflutningur Finnlands 1958:
585.000 tonn Blaðapappír
385.000 — Pappír til umbúða
350.000 — Pappi til iðnaðar
180.000 — Bóka- og skrifpappír
20.000 — Pappírspokar.
Samtals 1.520.000 tonn
Finska Pappersbruksföreningen, Helsingfors,
Finska Kartongföreningen, Helsingfors,
Finska Pappers- och Kartongförádlares Förening,
Helsingfors,
Enso-Gutzeit Osakeyhtiö, Kraftliner-avd., Helsingfors.
Umboðsmenn:
S. ÁRNASON & CO.
REYKJAVÍK
26
VIKAN