Vikan - 10.03.1960, Síða 3
árangur en fjölmargir aÖrir útvapsþœttir. Hann
hefur leitt i ijós merkilegt fyrirbæri i þjóðlífi
voru hér á hvers manns vörum, og að sjálfsögðu
inn eða ekki, sem sé — að unga fólkið er, hvað
alþýðlega músikmenningu snertir, algerlega slit-
ið úr tengslum við fortiðina, kannast ekki einu
sinni við þau sönglög, sem fyrir nokkrum árum
voru hér á hvers manns vörum og að sjálfsögðu
þaðan af siður við textana, sem margir hverjir
voru og eru listrænar perlur, að minnsta kosti
samanborið við dæguriagatexta á okkar timum.
Nu vildi ég skjóta því að háttvirtum for-
ráðamönnum ríkisútvarpsins, hvort elcki mundi
tfmabært að efna til þáttar í svipuðu formi og
þessu, en á mun víðara sviði. Ég á við þátt, þar
sem könnuð yrði almenn þekking fólks í ýms-
um aldursflokkum — alls ekki með erfiðri próf-
un, eins og verið hefur í spurningaþáttum Sveins
Ásgeirssonar, enda yrði ekki keppt til hárra
verðlauna, þótt þátttakendur fengju ef til vill
eitthvað fyrir ómak sitt, heldur yrðu leiddir
hópar fólks fram fyrir hljóðnemann, iikt og í
þætti Svavars, og reynt að komast að þvi með
auðveidum, einföldum spurningum hvaða breyt-
ing hefur orðið á þekkingu fóiks og hugðarefn-
um, hverju hefur verið varpað fyrir borð, hvað
nýtt hefur verið innbyrt og hvert stefnir. Ég
geri ráð fyrir að slíkur þáttur gæti ekki aðeins
orðið skemmtilegur, heldur og bæði fróðlegur
og gagnlegur, ef hann væri vel undirbúinn og
vei með farinn. Vil ég gera það að tillögu minni,
að jjrem mönnum yrði falin umsjá hans, en sið-
an veldu þeir menn sér til aðstoðar, svo þar
skapaðist líka nokkur fjölbreytni, því að það
getur orðið þreytandi að sami maðurinn spyrji
til lengdar.
Við skulum taka til dæmis, að hópur manna
yrði látinn skrifa sömu málsgreinina, og þannig
yrði reynd kunnátta þedrra i kommusetningu.
Eða að hópur húsmæðra væri spurður um slát-
urgerð og prjónles; háskólaprófessorar og börn
úr efsta bekk barnaskóla látin sýna þekkingu
sína í umferðarreglum, og svo framvegis.
Með beztu kveðjum.
Halldór.
Mér lízt prýðilega á þessa tillögu, og mér
er það ánægja að koma henni á framfæri. Nú
er aðallega eftir að vita, hvernig þeim lízt á
hana, sem hafa töglin og hagldirnar í þess-
urn málum ...
OG AÐ LOKUM — LÍTIÐ ÁSTARÆVINTÝRI
Kæra Vika.
Hvað á ég til bragðs að taka? Ég er átján
ára, og hef verið með sama manni í rúmt ár,
og hann er tuttugu og eins. Þetta er prýðilegur
maður, og okkur fellur ákaflega vel saman;
hann er bæði skenuntilegur og hugulsamur og
vill í öllu gera mér til hæfis — en það er bara
eitt, ég get aldrei fengið hann til að segja neitt
ákveðið um samband okkar. Þegar ég spyr hann,
fer hann undan i flæmingi, og svo þykir inér
hann líka lielzt til hlédrægur að öðru leyti, það
er eins og hann sé alltaf liræddur við að gera
eða segja nokkuð bindandi. Mér þykir vænt um
hann, og ég vil hafa þetta allt á hreinu, og ég
held að honum þyki líka vænt um mig.
Með fyrirfrain þökk.
Erna.
Ekki er það gott, Erna, og tvísýnt, hvort það
mundi verða betra þótt þú færir að setja hon-
um tvo kosti. Það er einmitt þarna, sem hin
nafntogaða kænska kvenna og óbrigðult hug-
boð reynist oftast bezt. Þér er þá illa í ætt
skotið við Evu gömlu, ef þú kannt ekki ein-
hvert ráð sem dugar. Reyndu fyrst að koniast
eftir því hvað veldur hlédrægni hans og und-
anfærslum — þar getur svo margt komið til
greina — og þegar það er fengið, mun ég
ekki þurfa þér ráð að kenna. Farðu samt að
öllu með gát, hlédrægnir menn eig'a það til
að vera tilfinninganæmir og stökkva út und-
an sér . . .
I’ENNAVINIK
Elinborg Ingólfsdóttir og Ölöf Erla Árnadóttir
vilja skrifast á við pilta 18—23 ára. Heimilisfang
þeirra beggja er: Sygehjemmet í Tárnby,
Englandsvej 333, p.r. Kastrup, Köbenhavn, Dan-
mark. — Petra Erlendsdóttir, Pollý Ólafs, Vatlý
Garðarsdóttir, allar á Húsmæðraskóla Suðurlands,
Laugarvatni. Þær vilja bréf frá piltum 18—24
ára. — Iðunn Stefáns, Iða Hvanndal, Hulda Gunn-
ars, Rún Krúger, Unnur Frímanns, Öla Kristjáns,
allar á Húsmæðraskólanum Varmalandi, Borgar-
firði, vilja allar skrifast á við pilta 18—22 ára. —
Sigríður Einarsdóttir, Rósa Finnsdóttir, Guðbjörg
Jónsdóttir, Helga Sigþórsdóttir, allar að Reyk-
holtsskóla, Borgarfjarðarsýslu, og vilja skrifast
á við pilta 17—21 árs. — Steinþóra Vilhelmsdóttir,
Háveg 5, Siglufirði, Helga Þórisdóttir, Gránugötu
25, Siglufirði, báðar við pilta og stúlkur 16--19
ára. — Elías Magnússon, Veiðileysu, Djúpavík,
Strandasýslu, Ólafur Magnússon, Veiðileysu,
Djúpavík, Strandasýslu, óska báðir eftir bréía-
samb. við stúlkur 18—24 ára. — Þórir Þorláks-
son, við stúlkur 25—30 ára, Ármann Hallberts-
son, við stúlkur 15—18 ára, báðir til heimilis að
Veiðileysu, Djúpavík, Strandasýslu. — Ólöf Bárð-
ardóttir og Sólveig Baldursdóttir, báðar á Hús-
mæðraskólanum Varmalandi, Borgarfirði, og vilja
skrifast á við pilta eða stúlkur 19—22 ára. —
Haraldur Sigmarsson og Sæmundur Ágústsson,
báðir á Hólagótu 20, Vestmannaeyjum, vilja skrif-
ast á við stúlkur 16—18 ára. — Gert Ullentoft,
Lyshof, Skals, Jylland, Danmark, við stúlkur
17—24 ára.
VIKAN
Útgefandi: VIKAN H.F.
RITSTJÓRI:
Gfsli Sigurðsson (ábm.)
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Ásbjörn Magnússon
FRAMIÍVÆMDASTJÓRI:
Hilmar A. Kristjánsson
Verð í lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr
216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram.
Ritstjórn og auglýsingar:
Skipholt 33.
Símar: 35320, 35321, 35322.
Pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Miklubraut 15, sími 15017
Prentun: Hilmir h.f.
Myndamót: Myndamót li.f.
borgai
BORGARýON'
10 stk. af vinnufatnaði
þvegin fyrir
lOO.oo kr.
sendið vinnufatnaððnn
_ SlfAAR »n6°
HÖS®
17161 -
VIKAN
3