Vikan - 10.03.1960, Blaðsíða 33
Húseigendur!
VELVIRKINN
F
ö
T
H
N
H H
L
A
N
D
R
I
Ð
i
Ð
G
R
I
N
D
U
R
SIGTÚN 57 - SÍMI 32032
♦< ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦❖❖♦♦♦<t><fr<>»<><><><>»^<>»»»»» ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»»
hraða sér frá borði, kom yfirmaður
flugvallarins, Hailer, hlaupandi til
min náfölur. „1 guðs bænum, Baur,
hvers vegna komuð þið í þessari flug-
vél? Nú fæ ég á baukinn. Foringi SA,
Röhm, skipaði mér að láta sig undir-
eins vita í síma, þegar von væri á
D-2600. Hann ætlaði að koma sjáifur
og taka á móti Hitler. Hann fær æð-
iskast, um leið og hann fréttir, að
foringinn er kominn, án þess að heið-
ursvörðurinn væri viðstaddur. Vesa-
lings Hailer var skelfingu lostinn. en
ég reyndi að hughreysta hann sem
bezt ég gat. Mér var þá ekki ljóst,
að „heiðursvörðurinn", sem Röhm
hafði undirbúið, að tæki á móti okk-
ur. var hópur alvopnaðra SA-manna,
sem höfðu skipun um að „gera
óskaðlega Hitler og fylgdarlið hans".
En hvað um það, — foringinn var
þegar á bak og burt ásamt sjö nán-
ustu fylgismönnum sínum. Ég fór
heim, og ekki fyrr en um hádegi
vissi ég, hvað fyrir hafði komið.
Hitler hafði haldið rakleitt til
Wies-vatns, þar sem Röhm hafði
bækistöð sína í hóteli nokkru. Þar
hafði foringinn með sínu örlit.la
fylgdarliði afvopnað og tekið fasta
Röhm og um þrjátíu af stuðnings-
mönnum hans. Síðan ók hann af stað
á undan bíl þeim, sem flutti fang-
ana, og hélt i áttina til Múnchen. En
á leiðinni þangað stöðvaði hann sjálf-
ur.— með byssu i hendi — bíla helztu
forsprakka SA, sem voru á leiðinni
t.il Wies-vatns, tók fasta þá, sem hann
grunaði, en fékk hina til að snúa
heim til sín.
Röhm var fluttur í fangelsið í
Stadellain, og þar var hann drepinn
daginn eftir ásamt 7 af stuðnings-
mönnum sínum. Seinna meir sagði
ég Hitler frá því, sem gerzt hafði á
flugvellinum, en að venju lagði hann
það svo út sem þar hefði himnesk
forsjá vakað yfir honum.
Fyrsta árið, sem ég var í þjónustu
Hitlers, flaug ég oft til Marienburg
í Austur-Prússlandi, þar sem hinn
aldni forseti, Hindenburg, bjó. Ein-
staka sinnum var ég viðstaddur sam-
ræður þeirra í garðinum,-sem fyrst
voru nokkuð kuldalegar, en urðu æ
vinsamlegri. Gamli marskálkurinn
viðurkenndi, að kanslaranum hefði
tekizt að útrýma versta óvini sínum,
sem var atvinnuleysið. Aðeins þegar
þeir ræddu um herinn, þykknaði dá-
lítið í sigurvegaranum frá Tannen-
berg. „Hugsið þér um pólitíkina, ég
skal sjá um herinn." Ég flaug oft
langar ferðir yfir þvert og endilangt
Þýzkaland, til þess að Hitler gæti í
eigin persónu fylgzt með þróun hin.s
nýja rikis.
Sapiskipti mín við „húsbóndann"
voru eins og bezt varð á kosið. Hitler
umgekkst mig — og gerði alltaf —
raeð fullkominni vinsemd, og ég
reyndi í hvívetna að haga mér þann-
ig, að á því yrði cngin breyting. Ég
var alltaf reiðubúinn að hlýða skipun-
um hans án þess að láta duttlunga
hans nokkurn tíma hafa áhrif á mig,
— eins og þegar hann vildi gera mig
að grasætu. „Fúhrer," sagði ég, ,.ég
gæti hermt eftir „hirðmönnum" yð-
ar, sem láta sem þeir séu stórhrifnir
af þessu mataræði yðar, en um leið
og þeir eru komnir út héðan, raða
þeir sig fulla af kjötmeti. Ég ætla
að segja yöur það strax, að fyrir mig
er einn diskur af steiktu svínakjöti
miklu meira virði en allt yðar gras."
Hitler hló og skipaði Kannenberg,
yfirbrytanum, að hafa tilbúið handa
mér steikt svínakjöt í hvert skipti,
sem ég borðaði í Kanslarahöllinni.
Ég var orðinn öllu vanur í þessu
starfi minu, en samt varð ég meira
en lítið undrandi, þegar foringinn
skipaði mér svo fyrir hinn 20. ágúst
1939: ,Baur, á morgun verðið þér að
flytja Ribbentrop til Moskvu." Dag-
inn eftir, þegar ég flaug yfir flugvell-
inum í Moskvu, áður en við lentum,
gat ég ekki varizt að hugsa: „Guð
minn góöur, hvað gerist. nú? Fyrir
átta dögum voru þeir eins og hundur
og köttur, en nú' blaktir hakakross-
inn um alla Moskvu!" Þegar Ribben-
trop steig út úr vélinni, munaði
minnstu, að „kollega" hans, Mólótov,
faðmaði hann að sér. Siðan gekk
hann fram hjá heiðursverðinum með
útréttan arminn sem nazistakveðju
og hvarf ásamt Mólótov og þýzka
sendiherranum, von der Schulenburg.
Allir vita ,hver afleiðingin varð af
þessum fundi þeirra „kolleganna":
Fyrst Pólland og svo heimurinn í
heild.
Það var ekki fyrr en daginn eft.ir,
að við komum aftur heim úr þessari
ferð, sem ég komst að því, er gerzt
hafði. Foringinn talaði ekki um ann-
að en Stalín og skipaði að leggja nið-
ur og eyðileggja allan andkommún-
ískan áróður. En hvað um það, —
Stalín hvarf brátt í skuggann, því
að árásin á Pólland var í undirbún-
ingi, stríðið var á næstu grösum.
Hitler trúði ekki á, að vesturveldin
mundu láta sig þetta néinu skípta.
Mér er enn i fersku minni samt.al,
sem hann átti við Ribbentrop og aðra
ráðherra einu sinni að loknum há-
degisverði. „Sjáið þér til, Ribbentrop.
Englendingar og Frakkar munu ekki
hreyfa sig. Það er blekking og ekkert
annað. Þeir hreyfðu sig ekki vegna
Vínar né Pragar, og þeir munu ekki
heldur gera það í þetta sinn." Után-
rikisráðherrann var á öðru máli.
„Sendiherrar mínir eru þeirrar skoð-
unar, að núna séu vesturveldin ekki
að gera að gamni sínu." Hann reyndi
Iengi að telja foringjann af áformum
sínum, en árangurslaust.
Það voru ekki liðnar tuttugu og
fjórar klukkustundir, þegar stjórn-
irnar i París og London birtu striðs-
yfirlýsingar sínar.
BORIS KONUNG LANGAÐI AÐ
SJÁ AFTUIt KASTALANN, ÞAR
SEM IIANN HAFÐI BÚIR SEM
BARN.
Þegar þær fimm þúsund fallbyssur,
sem stóðu i hring um Varsjá, hófu
skothríðina, stigu Hitler og Keitel
upp i D-2600, og ég flaug með þá í
hálftíma yfir þessu jarðneska helvíti.
Fáum dögum síðar gafst Pólland
upp.
Oft sendi Hitler mig til þess að
sækja hina eða aðra þjóðhöfðingja,
sem ég flutti oftast nær til Berchtes-
gaden. Farþegar minir voru því oft
menn eins og Laval, Boris konungur
(sem lét alltaf annan flugmann víkja
sæti, svo að hann gæti setið við hlið-
ina á mér alla leið). Horty, Antonescu
og Ante Pavelich. Af farþegum mín-
um var Boris Búlgaríukonungur
langsamlega viðkunnanlegastur og
þægilegastur. Hann var fyrst maöur,
svo þjóðhöfðingi. Einu sinni beið ég
árangurslaust eftir honum til klukk-
an fimm í Wiener Neustadt, en eftir
þann tima mátti ekki leggja af st.að
t.il Sofíu. Ég hafði ströng fyrirmæli
um að fljúga ekki að næturlagi. Loks
klukkan 18.30 birtist konungur. Á
leiðinni í bílnum hafði hann séð
kastala, þar sem hann hafði átt heima
sem barn. „Ég átti þar margar ham-
ingjustundir í æsku. Mig langaði að
sjá hann aftur." Og hann brosti eins
og smástrákur.
Ég flutti einnig Prien, yfirmann
kafbátsins, sem sökkti herskipunum
tveimur í Scapa Flow, til Berlínar.
Prien var lítill og mjög fjörlegur
maður og mjög dáður af mönnum sín-
um. Þeir dvöldust eina viku í Berlín,
en síðan fór ég aftur með þá til
Wilhelmshaven. Ég sá þá stiga niður
í kafbátinn og sigla af stað. E’nginn
þeirra kom aftur.
Veturinn 1940 fór fyrir alvöru að
bera á geðvonzku foringjans. Hess
var flúinn, Mólótov orðinn dularfull-
ur og Franco, „þessi spænski
korporal", brosti og sagði nei, nei —
í hvert skipti, ;sem „húsbóndi" minn
ætlaðist til, að hann segði já, já.
Sigrarnir á Balkanskaga hresstu
hann þó upp. Síðan kom styrjöldin
við Rússland, og hann fleygði sér i
„gin Ijónsins".
HITLER TÓK f HÖND MÉR OG
SAGÐI: „VERIÐ ÞÉR SÆLIR,
BAUR.“
Stalingrað, loftárásirnar ofboðs-
legu á Þýzkaland, landgangan í
Normandí, tilræðið hinn 20. júlí, —
þetta eru punktarnir, sem mest ber
á í sögunni.
Mér var ljóst, að endalokin voru
að nálgast, þegar ég gat ekki leng-
ur flogið, því að möguleikarnir til
að komast upp úr byrgi Kanslara-
hallarinnar (þar sem Hitler hafði
hreiðrað um áig ásamt fylgdarliði
sínu að mér meðtöldum) og til flug-
vallarins voru hverfandi litlir. Ég
svaf þarna niðri ásamt Bormann,
Betz, Rattenhuber og Högl. Fimmtán
ár eru liðin, en samt finnst mér sem
þessar vikur, er ég dvaldist þarna
undir Berlinarborg, hafi endað i gær:
Hitler, sem rak Göring út „til þess
að hann gæti stjórnað gagnárásun-
um að utan", hjónaband hans og Evu
Braun, fréttin um samskipti Görings
og bandamanna og viðbrögð foringj-
ans („ég læt ekki hengja hann vegna
undangenginnar frammistöðu hans"),
aftaka Fegeleins, mágs Hitlers, sem
„liðhlaupa" (hann hafði neitað að
fara niður í byrgið), sjálfsmorð
Goebbels ásamt konu og fjórum börn-
um. Á hverjum degi gerðist einhver
ofboðslegur, hryllilegur atburður.
Hinn 30. apríl lét Hitler kalla mig
fyrir sig í síðasta sinn. „Baur, þér
eruð einn hinna fáu, sem aldrei hafa
svikið mig. Mig langar að kveðja yð-
ur, áður en ég dey. Ég ætla að fela
yður enn þá tvö verk. Sjáið um, að
likömum okkar, mínum og konu
minnar, verði eytt, og hjálpið Bor-
mann að komast til Dönitz." Hann
tók í hönd mér. „Verið þér sælir,
Baur" — og bætti svo við: „Það ætti
að skrifa á gröf mina: Hann var
fórnardýr herforingja sinna."
Nokkrum klukkustundum siðar
gekk ég fram hjá herbergjum Hitlers
og fann lykt af tóbaksreyk. Enginn
mátti reykja i návist foringjans, og
þá skildi ég, að hann var dauður.
SS-menn báru bæði líkin, vafin í
teppi, út í garð Kanslarahallarinnar,
helltu yfir þau benzíni og kveiktu í.
★
Stórkosllegar
móttökur
Framhald af bls. 25.
bifreiðarstjórinn var þrifinn
niður úr ekilssætinu, og lðg-
regluþjónn, sem reyndi að
skakka leikinn, fékk grjót-
hnullung í höfuðið. Það var
ekki fyrr en lögreglan hafði ek-
ið (50 óróaseggjum burt i lög-
reglubílum, að slagnum linnti.
En þótt slíkt beri við, á Paul
Anka líka friðsæla og rólega
daga i París á stundum, eins
og t. d. þegar hann er samvist-
uni við Mylene Deomgeot, sem
við minnumst einnig á annars
staðar hér á síðunni. Þeim fell-
ur sýnilega vel hvoru við ann-
að. Það þarf ekkert grjótkast
til að sýna það.
V I K A N
3»