Vikan - 10.03.1960, Side 25
Leikarapartý
áá
Það er mikið gert af því í
Holljnvood að halda ýmsar
samkomur í góðgerðarskyni.
Koma þá iðulega fram frægir
leikarar, sem annaðhvort
skemmta eða bara lieiðra
samkomuna með návist sinni.
Yfirleitt eru þessar samkom-
ur mjög fjölsóttar, enda þótt
aðgangseyrir sé liár, — og
þannig var einnig um kvöld-
verðarveizlu, sem Dean
Martin stóð fyrir ekki alls
fyrir löngu. Aðgangur kost-
aði hvorki meira né minna
en sem svarar 2500 krónum
fyrir hvern mann, en þang-
að komu lika margir frægir
leikarar, sem mönnum þótti
matur i að vera í návist við.
Judy Garland var
í sólskinsskapi og
hafði margt að segja
Dean Martin. Kann-
ski hafa þau rætt um
músík, en bæði hafa
gert góðar hljómplöt-
ur upp á síðkastið.
Gestgjafi kvöldsins, Dean Martin, fær hér hlýjar kveðjur
frá Janet Leigh (t. v.) og eiginkonu sinni, Jeanne, en
Keely Smith, ein launahæsta söngkona Bandaríkjanna, bíð-
ur eftir, að hún fái líka tækifæri til að bera fram sínar
kveðjur. Dean Martin mun annars hafa starfað manna
mest að góðgerðarstarfsemi í Hollywood, og hagnaðurinn
af veizlu þeirri, sem hér um ræðir, rann í hjálparsjóð
leikara.
Þarna hittust tveir
heimsfrægir dægur-
lagasöngvarar, Frank
Sinatra og Ðinah
Shore.
Bob Hope sagði
gamansögur af við-
skiptum við hinn
gamla félaga sinn á
sviðinu, Bing Crosby,
en June Allyson og
Debbie Reynolds
hlustuðu með at-
hygli.
Nýja stjarnan, Tony Perkins, brosti sínu breiðasta
brosi til einnar hinna yngstu kvikmyndaleikkvenna,
Valeriu Allen.
„Stórkostlegar
P A U L
A N K A .
‘1-k AÐ yerður varla sagt, að
p' þeir bandarískir dægur-
lagasöngvarar, sem eru í mest-
um metum í heimalandinu,
njóti .mikilla vinsælda í Frakk-
landi. Þó er ein undantekning:
Paul Anka. Hvert sinn, sem
hann kemur til Parísar, fær
hann aldeilis stórkostlegar við-
tökur. Stórkostlegar, — en ekki
alltaf að sama skapi þægilegar.
Til dæmis bar það einu sinni
við, þegar hann heimsótti að-
dáendaklúbb sinn í Versailles,
að hann var umlcringdur mörg-
um hundruðum unglinga, áður
en hann komst inn í ldúbbinn.
Paul og Mylene Demongeot.
móttökur"
Það lá við, að Paul yrði fyrir
meiðslum i gauraganginum.
Hann komst upp á vörubíl og
reyndi að flýja á honum, en
Framhald á bls. 33.