Vikan - 04.08.1960, Qupperneq 24
HLJÓMPLÖTUR Á MARKAÐNUM
^kktítm kfit
En sá dóni! Hann dregur ekki einu
sinni gluggatjöldin fyrir þegar hann
fer í baö.
„Lœknirinn minn sagSi mér, aö
ég ætti helzt ekki að spila golf.“
„Þetta var ég búinn að segja
þér fyrir löngu siðan."
Reykjavík 27. júlí 1960.
Kæra Vika.
Við unga fólkið höfum alltaf haft ánægju af
að lesa Vikuna. Efni blaðsins hefur yfirleitt verið
„uppbyggilegra" heldur en flestra annarra biaða
hér og ekki skemmir, þegar nú er kominn ný
síða eða opna í blaðinu sem er ætluð unga fólkinu
sérstaklega, „Einkum fyrir unglingana". En þetta
unglingaefni finnst mér vera alltof einhliða. Það
er alveg eins og unglingar nú til dags hugsi ekki
„Murtan" nefnist skútulíkan, sem nú er fáanlegt
'ósamsett, ásamt smiðateikningum og leiðbeining-
um. Þetta er „kappsiglingaskúta", einmöstruð með
blýkjöl og hásigld mjög. Efniviðurinn er kross-
viður, tilsniðinn að miklu leýti. Samsetningin þarf
talsverðrar nákvæmni við, en þó ekki meiri en svo
að hver lagvirkur dregur ætti að geta leyst það
viðfangsefni vel af hendi. Og eflaust fer „Murtan“
vel í sjó; blýkjölurinn gerir hana stöðuga þótt hún
:sé hásigld. og þarf ekki að efast um að hún skríði
drjúgan í .sæmilegu leiði. Flestir drengir hafa
gaman af að smíða báta og sigla þeim, og þarna
fá þeir tækifæri til hvortveggja. Þess verður því
vafalaust ekki langt að bíða, að „Murtan" sjáist
víða á skriði á tjörnum og pollum, í blíðum byr
undir björtum seglum . . .
Kæra Vika.
Okkur langar til að biðja þið að birta myndir
af uppáhaldsleikurunum okkar, Tony Curtis og
Rock Hudson og utanáskrift þeirra. Með fyrir-
fram þökk,
Stína og Eýgló.
um neitt annað en létta músík, jazzleikara og
dægurlagasöngvara, því þetta unglingaefni saman-
stendur mest megnis af þessu háttar klausum. Ég
þykist vita, að ykkur gengur allt gott til með þessu,
og viðleitnin er auðvitað virðingarverð, en það
eru mörg atriði önnur en jazz og „djamm“, sem við
koma þessum svokallaða spillta ungdómi nú til
dags. Hvað segið þið t. d. um íþróttaþætti, viðtöl
við efnilega námsmenn, kynningu á hinum ým§u
atvinnugreinum landsmanna og störfum, og margt
fleira. Og ef um músík er að ræða, að láta sigilda
tónlist ekki verða útundan.
Ég er ef til of harðorður i ykkar garð og ég veit
að hér er uppfullt af alls konar tímaritum, sem
nær eingöngu birta lesefni, sem ekki er siðuðu
fólki samboðið að lita við, en þvi aðeins skrifa
ég þetta bréf, að ég álít, að Vikan, og reyndar tvö
eða þrjú önnur blöð, sé i sérflokki, hvað gott efni
snertir, og vill gera allt sem hægt er til þess að
gera lesendum sinum sem mest til hæfis. Og ég
efast ekki um að þið takið fegins hendi allri gagn-
rýni, svo framarlega sem hún er sanngjörn og
takið til greina óskir lesenda, eftir því sem við
verður komið.
Með fyrirfram þökk fyrir verðandi úrbætur.
Stefán Kristinsson.
Til er máltæki sem segir:
öll byrjun er erfið og það
gildir einnig í skákinni. Um
skákbyrjanir hafa verið
skrifaðar margar bækur og
svo verður eflaust ennþá
gert um mörg ókomin ár,
því alltaf eru menn að
finna upp ný varnarkerfi
við hinum ýmsu byrjunum
og þá leiðir það af sjálfu
sér að þá verður einnig að
finna upp nýjar byrjanir þegar hinar gömlu eru
hættar að duga. E’ins og að líkum lætur er það
mjög þýðingarmikið að geta byrjað skák sína vel,
kunna að staðsetja menn sína á sem bezta staði,
byggja vel upp eins og kallað er, búa sig sem bezt
undir væntanleg átök. Þegar t. d. kóngspeði er
leikið fram um tvo reiti, e2—e4, þá opnar það
leið fyrir bæði biskup og drottningu og segjum
svo að svartur svari alveg eins, e7—e5. Hvað er
þá bezta svarið hjá hvítum? Rf3 er bezt, því þá
hótar hv. að drepa peðið á e5 og það er mjög
mikilsvert að geta hótað einhverju á raunhæfan
hátt. Ekki borgar sig t. d. að leika Ddl—h5 og
hóta þannig peðinu, því þá valdar sv. peðið fyrst
með Rb8—c6 og leikur síðan hinum riddaranum,
Rg8—f6, hótar drottningunni og hún verður að
hörfa og er bezt geymd heima hjá sér. Allt drottn-
ingarflan í byrjun skákar borgar sig aldrei. Nú
skulum við sjá hve illa getur farið, þegar ekki
eru leiknir beztu svarleikir:
1. e2—elf e7—e5 2. Rgl—/3 /6 ?? (Svartur vald-
ar peðið sitt á rangan hátt. Hann á að valda það
með riddaranum sínum, Rb8—c6) 3. RfSxe5 !
(Hvítur sér strax veiluna og ræðst þegar til at-
lögu, fórnar manni fyrir árásarmöguleika).
3. — f6xe5 Jf. Ddl—h5 t Ke8—e7 (Ef 4,—g7—g6,
þá 5. Dh5xe5 f og síðan DxHh8) 5. Dli5xe5 f
Ke~l—/7 6. Bfl—clf f Kf7—g6 7. De5—f5 f Kg6—h6
8. d2—dlf f g7—g5 9. h2- hlf ! Kh6—g7 10.
Df5—/7 t Kgl—U6 11. hlfXg5 tt mát.
DÆGURLOG
Ævisaga Gittu Hænn-
ing er aðeins þrettán
ára löng — en hvílík
þrettán ár. Frá því
að hún var smábarn,
hefur hún raulað vis-
urnar með pabba sín-
um, þegar hann var að
æfa, og síðan á átt-
unda afmælisdaginn
sinn hefur hún lifað
það, sem alla unglinga
dreymir um: Verða
fræg, koma fram i út-
varpi og sjónvarpi og
syngja inn á hljóm-
.plötur. Næsta vetur
sjáum við Gittu von-
andi á kvikmyndatjaldinu í nýrri þýzkri kvikmynd,
„Schlagerparade 1960", en þar leikur hún eitt
aðalhlutverkið. Gitta hefur dvalið i Miinchen s.l.
vetur við töku myndarinnar og er henni spáð
glæsilegri framtíð sem kvikmyndaleikkonu. 1 kvik-
myndinni „Schlagerparade 1960" koma fram auk
Gittu margir þýzkir listamenn og konur ásamt
þeim Nínu og Friðrik og Vivi Bak hinni dönsku.
BRÉF
FÖNDUR
Svipmynd úr amerísku alþýðuóperunni Porgy
and Bess eftir George Gerswin •— fjögur lög,
Summertime, It Aint Necessarily So, sungin af
Lenu Horne og A Women is a Sometimes Thing,
Bess Oh Wheres my Bess, sungin af Harry Bela-
fonte. George Gerswin, sem er eitt vinsælasta tón-
skáld Ameríku, samdi Porgy and Bess á árunum
1933—34, og má segja, að þessi sérstæða ópera
hafi verið sýnd á leiksviðum víðs vegar um heim
nær óslitið síðan.
BRÉFAVIÐSKIPTI
Olga Björnsdóttir, Ekru, við pilt eða stúlku
14—15 ára og Kristín Hreggviðsdóttir, Hruna, pilt
eða stúlku 15—16 ára. Báðar á Eskifirði. William
Martin, 19 ára, Box 100, Group 3, R.R. 1, Winnipeg,
Manitoba, Canada, óskar eftir bréfaviðskiptum við
pilta og stúlkur. Reynold Ray Organ, 19
ára, 21229 Bloomfield Ave., Hawaiian Gardens,
California, USA, við pilta og stúlkur. Erla Hafliða-
dóttir, Ögri, N.-ls„ vdð pilta eða stúlkur 19—20
ára. Vigdis Heggvin, Box 10, Saudasjöen, Ryfylke,
Norge, við pilta og stúlkur 17—22 ára.
24
V I K A N