Vikan - 04.08.1960, Síða 25
TEXTINN
Hér birtum við texta, sem Haukur Morthens
syngur á nýrri hljómplötu, sem bráðlega kemur
á markaðinn. Hljómsveit Jörn Grauengárds að-
stoðar Hauk á plötunni, en lagið er gamalt islenzkt
revíulag.
Gústi í Hruna
Hann Gústi i Hruna með harmonikuna
hann var sem funi sá sveinn.
Hann spilaði valsa með spriklandi galsa
og í splœs var hann alls ekki seinn.
Og enga ég veit um þar vestur i sveitum,
sem vildi honum neita um dans.
Þær unnu honum einum, þó oft væri í meinum
og læddust í leynum til hans.
Það var karl, sem kunni að
kyssa, drekka og slást,
klammeri hann kom af stað,
hvar, sem hægt var að uppdrífa það.
Það var karl, sem kunni að
kyssa, drekka og slást.
Enda sagði hann það oft: Það er ánægja min,
ástir, slagsmál og vin.
(Endurprentun bönnuð).
Mijanou Bardot, syst-
„ ir hinnar þekktu Bri-
gitte, hefur ávallt þótt
alger andstæða systur
sinar, látlaus, hæ-
versk og hlédræg,
næstum því feimin.
Hún hefur látið hafa
það eftir sér, að hún
hafi ekki minnsta á-
huga á að komast að
í kvikmyndum, en nú
nýlega kom það í
ljós, að hún brennur
í skinninu eftir að
verða kvikmyndaleik-
kona — og eins fræg
eins og stóra systir. Hinn kunni ameríski kvik-
myndaframleiðandi, Albert G. Zugsmith, hafði
fengið þá hugmynd, að hann gæti grætt offjár
á því að láta Mijanou leika í kvikmynd -— aðeins
vegna Bardot-nafnsins. Hann lét taka nokkrar
reynslumyndir af Mijanou í París, sem ekki að-
eins sýndu, að hún kunni að haga sér fyrir fram-
an myndavélina, heldur lika að hún bar ensku
setningarnar fram hárrétt. Zugsmith varð óður
og uppvægur, sendi tilboð til Mijanou og bauð
henni hlutverk í nýjustu mynd sinni, Seocpot poes
to College. Og hann neri saman höndunum, er hann
hugsaði um alla þá peninga sem Mijanou myndi
veiða i kassann.
Mijanou pakkaði niður og flaug vestur í snatri.
En er hún kom til Hollywood, dundi reiðarslagið
yfir. Það kom nefnilega í ljós, að ungfrú Bardot
kunni ekki stakt orð í ensku — ekki eitt einasta
orð! Setningarnar í reynslumyndinni hafði hún
einfaldlega lært utanbókar. Zugsmith, sem hefur
orð á sér fyrir að vera nokkuð skapbráður, sleppti
sér alveg og rak Mijanou öfuga út. Hann öskraði
upp, að hann hafi verið herfilega svikinn og það
rnundi hann aldrei fyrirgefa.
En Mijanou Bardot var ekki alveg á því að
fara heim aftur — loksins þegar hún hafði nú
komizt til kvikmyndaborgarinnar. Nú les hún dag
og nótt og lærir ensku af miklum dugnaði. Og
nýjustu fregnir herma, að nú hafi henni verið
boðið aö koma fram í sjónvarpi — og kvikmynda-
hlutverk hjá Paramount-félaginu.
1 iiolly<vooii haía menn fumliö upp á nýj-
um sarakyœmiHloik. Er hann fálginn í því
ab einliver Xoikarinn þindur fyrir augun
á eár.snýr sár noltkra liringi og f»r svo
kossa frá 6 diímura t saralcv./rainu .Og svo á
hann a& gota upp á því, hverri þoirra
hann hefur aldrei veriö icvænturi
— Heldurðu að það geti verið
benzínstífla, Jónsi,
Það er nú kannski að bera í bakka-
fullan lækinn, að koma hér með leið-
beiningar og áminningar varðandi um-
ferðina og gætilegri akstur, en aldrei er
góð vísa of oft kveðin. Nú í sumar, er
ykkur langar til að skreppa eitthvert út
úr bænum um helgi eða í sumarfríinu,
fáið þið ef til vill lánaðan bílinn hans
pabba eða þið eigið kannski sjálf bíl eða
hafið umráð yfir bíl. En þá skuluð þið
ávallt muna eftir því, hvað þið eruð með
i höndunum. Bifreið er ekki aðeins
þægilegt og gagnlegt farartæki, sem gaman er
af að þeyast á um landið, heldur einnig dráps-
tæki, lifshættulegt ykkur — en þó fyrst og fremst
öðrum, ef ekki er varlega farið. Flest umferöa-
slys eru sögð orsakast af of hröðum akstri fram-
ar öllu öðru, svo við skulum rifja upp nokkrar
greinar úr umferðalögunupi, Þar sem rætt er um
ökuhraða. Aðalregla um ökuhraða er í 49. grein,
en þar segir:
Ökuhraöa skal ávallt miða við gerð og ástand
ökutækis, staðhætti, færð, veður og umferð og
haga þannig, 'að aksturinn valdi ekki hættu eða
ópægindum fyrir aðra vegfarendur né geri þeim
óþarfa tálmanir.
Hraðinn má aldrei vera meiri en svo, að öku-
maður geti haft fullkomna stjórn á ökutæki og
stoðvað það á þriðjungi þeirrar vegalengdar, sem
auð er og hindrunarlaus framundan og ökumaður
hefur útsýn yfir. Til þess að framfylgja þessari
reglu þurfa ökumenn að þekkja hemiunarhæfni
ökutækisins við mismunandi aðstæður.
Sérstaklega er þýðingarmikið, að ökumaður
þekki áhrif ökuhraðans á vegalengdina, sem
þarf til að stöðva ökutækið.
Hver einasti ökumaður verður að hafa það hug-
fast, að það líður nokkur tími frá því að hann
sér hindrun á akbraut, þangað til hann getur beitt
hemlum bifreiðarinnar. Þessi timi, viðbragðstím-
inn, er mismunandi hjá fólki, frá % sek. hjú þeim,
sem eru mjög viðbragðsfljótir, upp í 1% sek. eða
meira. Enn fremur fer bifreiðin verulega vega-
lengd frá því- að stigið er á hemla, þar til hún
stöðvast, þó að hemlar séu i góðu lagi.
Þegar bleyta er á vegum skal aka þannig, að
vegfarendur verði ekki fyrir aurslettum að óþörfu.
Um ökuhraða gilda ennfremur reglur um há-
markshraða.
I þéttbýli má eigi aka hraðar en 45 km á klukku-
stund. Utan þéttbýlis má eigi aka hraðar en 70
km á klukkustund.
ÓSKAMYNDIN
ROCK HUDSON
er fæddur 17. nóvember 1925 og hét upphaflega
Roy Fitzgerald. Var i sjóhernum á árunum 1944
—46, átti i erfiðleikum með að fá atvinnu er heim
var komið að lokinni herþjónustunni, og ákvað
þá að freista gæfunnar í Hollywood, þó að hann
kynni lítið annað en að keyra bíl En duglegur
umboðsmaður útvegaði honum strax nokkur smá-
hlutverk, jafnhliða því sem Rock gekk á leikskóla.
En smám saman vann hann hylli kvikmyndahús-
gesta og var treyst fyrir stærri hlutverkum. Var
kominn á „toppinn" árið 1952, og hefur síðan leikið
aðalhlutverk í fjölmörgum kvikmyndum sem hetja
og „sjarmör".
Fyrir 10 árum.
Þessi mynd birtist
á forsíðu Vikunnar
fyrir réttum tíu árum
og er af skemmti-
flokki, sem um þær
mundir var á ferð-
inni úti á landsbyggð-
inni. Þessi hópur, sem
nefndi sig Stjörnu-
kabarettinn saman-
stóð af KK-sextettin-
um, Soffm Karlsdótt-
ur, gamanvísna- og
dægurlagasöngkonu,
Núma Þorbergssyni,
sem flutti gamanþátt
ásamt Sofííu, Ingþóri
Haraldssyni, munn-
hörpuleikara og Svav-
ari Gests, sem var
fararstjóri, kynnti
skemmtiatriðin og
sagði brandara. Auk
þess lék Ölafur Pét-
ursson einleik á har-
moniku og Tríó Úlafs
Gauks, Kristján Magn-
ússon, Jón Sigurðs-
son og Ólafur Gauk-
ur, lék og söng.
'oéMHniS'
VI K A N
25