Vikan - 20.10.1960, Blaðsíða 19
VETVANGUR SIGRA OG VONBRIGÐA
A
E'f til vill urðu mestu vonbrigðin hjá hástökkvaran-
um John Thomas. Hann var nýlega búinn að setja
heimsmet, sem hljóðaði upp á 2.23 metra,. og enginn
var líklegur til þess að ógna honum. Hann ætlaði sér
að spila mjög djarft, en taugar ungmennisins þoldu
ekki þá háspennu. Honum mistókust stökkin, og hann
missti af gulli og silfri.
Á Ólympíuleikum komast ekki allir á blað. Þeir eru venjulega vettvangur mik-
illa vonbrigða — og óvæntra sigra. Margir bafa lagt leið sina þangað með áralanga
þjálfun að baki, og kannski hefur lítilfjörlegt óliapp orðið tifþe^'s, að þeirra var
að engu getið. Kannski náðu þeir ágætum árangri, en það voru svo margir með
sama árangur eða örlitlu betri, að afrekið dugði ekki til úrslita.
Þegar íþróttafólki úr Iiinum óskyldu íþróttagreinum er stefnt saman á einn
stað, g'efur auga leið, að manngerðirnar verða margar og ólíkar. Ifér eru nokkur
sýnisborn af stóru fólki og smávöxnu, sem kom og þreytti kapp á Ólympíuleik-
unum i Róm í sumar. Það má nokkuð sjá af líkamsvexti þessa fólks, bvaða
iþróttir liað muni stunda. Það eru líkur til þess, að menn, sem eru eitthvað á
þriðia metra á bæð, séu við körfubolta riðnir, en lika gæti bugsazt, að þeir
væru hástökkvarar. Litlir menn og liprir geta verið snjallir dýfinga- og fimleika-
menn. Vöðvaknippin ferlegu eru sennillega kúluvarparar, lyftingamenn eða
glímumenn, og loks eru svo meðalmenn, sem ekki er gott að segja til um.
Early Brown frá Bandaríkjunum. Hún er
ekki beinlínis liðlega vaxin, en kúlan virð-
ist létt í höndum hennar. Hún hafði Þó
ekki við þeim rússnesku. Við gizkum á, að
miss Brown sé álíka að ummáli Og Gunnar
Huseby.
V
Kraftajötunninn er frá Bandaríkjunum. Sá
er glímumaður og heitir William Kerslalse
og hefur tvo fislétta dýfingamenn á öxlum
sér.
V
Fólk á förnum vegi
1Q VIKAN
Svo kemur rússneska
körfuboltastjarnan
Kruminch, 2,18 m á
liæð. Við hlið hans
stendur Kóreumaður;
þeir eru jd’irleitt
fremur smávaxnir
jtaðan.
„Fljótasti maður heims- £>
ins“ var hann kallaður
negrinn Ray Norton frá
Bandaríkjunum. En þeg-
ar til kastanna kom í
hörku úrslitanna, þá
hafnaði Norton í sjötta
sæti, bæði í 100 og 200
metra hlaupunum. Hann
virtist annars mjög ítur-
vaxinn og líklegur til af-
reka.
A
Við birtum hér mynd af Gunn Larking frá Svíþjóð. Svíar voru mjög hrifnir af
Þessari stúlku. Hún keppti í fimleikum. Ekki vitum við um árangur hennar, en
það voru nú aðallega'„línurnar", sem hrifu Svía.
Harold Conolly sleggjukastari og eiginkona
bans, liin tékkneska Olga Fikolova, mikil af-
rekskona i kringlukasti. Hún er raunar orðin
bandarískur ríkisborgari, eftir að Conolly flutti
hana heim með sér af Ólympíuleikunum í Mel-
bourne fyrir fjórum árum. Saga Conollvs er í
Iiæsta máta merkileg: Hann lamaðist og var
eklvi líklegur til stórræða, en tók upp iþrótta-
iðkanir sér til heilsubótar með þeim árangri,
að liann selti beimsmet nokkru fvrir Ólympíu-
leikana í Róm. Iieppnin var liins vegar ekki
með í borginni eilifu; Conolly komst ekki einu
sinni i úrslit, og frúnni brást líka bogalistin
Svo koma menn vonbrigð- [>
anna, — mennirnir, sem allir
spáðu öruggum sigri, en allt
brást á úrslitastundu. Þeir
keppnisreyndu sigra á Ólym-
píuleikum, hefur verið sagt,
en það reynist ekki cinhlítt.
Hinn þrautreyndi Roger
Moens frá Belgíu, sem var á
ferðinni hjá okkur í vor, tap-
aði með nokkurra sentimetra
mun fyrir áður óþekktum
Ný-Sjálendingi. Þetta fékk
svo mikið á kappann, að
hann grét sáran, — taldi sig
of gamlan til að hafa mögu-
leika til sigurs á næstu
Ólympíuleikum eftir fjögur
ár. Hér er Moens í hörku-
keppni við Þjóðverjann Ory-
wal og vinnur með sjónar-
mun.
VIKÁN 1 9