Vikan


Vikan - 20.10.1960, Blaðsíða 23

Vikan - 20.10.1960, Blaðsíða 23
WIKAI Útgefandi: VIKAN H,F. Riticjóri: Gfili Sigurðsson (ábm.) Auglýsingastjórl: Ásbjörn Magmisson, Framkvæmdastjórl: Hilmar A. Krlstjánsson. Rltstjórn og iuglýslngar; Skípholtí 33. Símar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf M9. Afgrciðsla og dreifing: BIaðadreIfing, Míklubraut 15, síml 15017. Verð i lausa- sölu kr. 15 Áskriftjrverð er 200 kr. árs- þríðjungslega, greíðist f/rirfram. Prent- un: Hilmir h.f. Myndamót; Rafgraf h.f. Þið fáið Vikuna í hverri viku I næsta blaði verður meðal annars ♦ Mafia ,stærsta glæpafélag í heiminum. ♦ Kiljan hefur stolið flestu frá mér. — Rætt við Karl Einarsson Dunganon, greifa af Sankti Kilda. ♦ Dansmærin í Beni Mússa, smásaga eftir Patrick Turnbull. ♦ Óskar Aðalsteinn: Brugðið á leik, 3. grein: Borgin í skóginum. Ástríðueldur, smásaga eftir Ingu Skarphéðinsdóttur. $ Dr. Matthías Jónasson: Seiður valdsins. ^ Hús og húsbúnaður: Fura í innréttingum. ^ Milli tveggja elda, smásaga eftir Omar Bigger. ♦ Vetrartízkan. Hér eru tvær eins myndir, að því er virðist. En neðri m.vndin eru frábrugðin þeirri efri í sjö atriðum. Reynið nú að finna þessi atriði, og verið ekki lengi. — Lausnin er á bls. 27. v.v.v.v •W.w •V.V.V.V. v.v.y.sv Hrútsmerkiö (21. marz—20. apr.): t þessari viku skaltu reyna a3 forðast allt óhóf, einkum skemmt- anir. Þú múnt verða að sinna ýmsu í vikunni, sem þú hefur ekki haft ástæðu til að sinna undanfarið, en nú er sannarlega kominn tími til þess. Þú færð bréf, sem gæti orðið til Þess að valda þér einhverjum áhyggj- um — af ástæðulausu. Fimmtudagurinn er mikill heilladagur fyrir konur. Heillatala 8. Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þér mun vegna vel í vikunni, ef þú hagar þér eins og samvizka þín býður þér. Þér hættir dálítið til þess að láta smá- muni angra þig þessa dagana, en nú fasrð þú svo mörgu að sinna, að þú gleymir beinlínis þessu smá- vægilega mótlæti. Einhver órói ríkir vegna hjartans mála, en ekki er víst að hann eigi sér djúpar rætur. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þetta verður einkar ánægjuleg vika, einkum þó fyrir karlmenn. Hætt er samt við, að þú missir af gullnu tækifæri um helgina, og verður það ef til vill til þess að valda þér talsverðum áhyggjum. En vertu ekki of bráður, því að eftir helgina býðst þér annað slíkt tækifæri og það ekki af lakara taginu. Einn hæfileiki þinn fær sérstaklega að njóta sín i þessari viku. Heillatala 5. Krabbamerkiö (22. júni—23. júli): Þú munt oft tefla á tvær hættur í þessari viku, en stjörnurnar þykjast sjá, að yfirleitt verði lánið með þér. Á vinnustað gerist spaugilegt atvik, sem á eftir að draga dilk á eftir sér. E’f þú ert ástfangmn, munt þú fá áþreifan- lega sönnun þess í vikunni, hvort hinn aðillinn elskar þig eða ekki. Varaztu að reiðast þótt þér finnist einn fjölskyldu- meðlimur gera á hlut þinn. Heillalitur gult Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág.': Þessi vika verður ■QTJB nokkuð varasöm. Umfram alit skaltu ekki lofa BfsS meiru en þú getur staðið við. Þú skalt varast að gylvH ganga í ábyrgð fyrir nokkurn mann. Konur ættu að varast það að verða of vingjarnlegar við mann, sem þær þekkja ekki nema lítilsháttar. Helgin verður mjög skemmtileg og óvenjuleg. Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þetta verður „spaugileg" vika — það mun ýmislegt gerast, sem kemur þér i gott skap. Þú munt fyllast bjartsýni, og ev það vel. Þar sem Amor er á ferðinni gerist ýmis- legt spaugilegt, en menn skyldii varast að taka hann alltof alvarlega. Þú skalt varast alltof miV:il peningaútlát. Þú ferð líklega að heiman um skamma hrið í einhverjum erinda- gerðum. Heillatala kvenna 4, karla 7. VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt): Þér virðast ætla að græðast peningar óvænt í þessari viku — að vísu verður það ekki stór fjárupphæð, en hún mun sann- arlega koma sér vel, eins og þú kemst að síðar. Þú skalt umfram allt hafa bæði augu og eyru opin á þriðjudag. Ekki er fyllilega ljóst hvers vegna, en allur er var- inn góður. Vini þínum verður á glappaskot, sem kann að koma illa við þig. Einhver ungur maður er að reyna að ná i þig. Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.): Það gengur mikið á i vikunni, og ef Þú ert ekki allt of fljótfær, getur vikan orðið einkar ánægjurík og fjölbreytileg. Ef þú átt skuld, sem fallin er i gjalddaga, skaltu borga hið skjótasta, ef þú vilt ekki hafa verra af. Skeyttu ekki skapi þínu á ástvini þínum af ástæðulausu. Þér virðist hætta til þess. Heillalitur bláleitt. BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Þessi vika verður eins ólík fyrri vikum og frekast má verða. Þú munt hafa í svo mörg horn að líta, að líklega gefst þér alls ekki tí ii til þess að sinna neinu fyllilega. Það versta er, að ekki geta stjörnurnar ráðlagt þér neitt, hvern- ig þú átt að haga þér, svo að þú verður að láta dómgreind þína ráða.' Umfram allt skaltu ekki missa þolinmæðina. GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): 1 vikunni verða nokkur þáttaskil hvað athafnasemi snertir. Þú munt verða miklum önnum kafinn, og líklega ræður þú fram úr flestöllum þeim verkefnum, sem þú færð að glíma við. Vikan er annars húsmæðrum til heilla, og væri vel af Þær gerðu þær breytingar, sem þær hafa lengi haft á prjónunum varöandi heimilið. VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þessi vika get- ur orðiö afar ánægjuleg, ef þú hefur aðeins dáíitið fyrir þvi sjálfur, sem ætti ekki að vera allt of erfitt. Þú verður aðeins að hafa vakandi auga fyrir því, sem gerist í kringum þig. Svikið loforð getur valdið einuhverjum erjum. Farðu varlega með peningana í þessari viku, því að þú munt Þarfnast þeirra í næstu viku. Heillataia 8. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Það gerist frem- ur fátt markvert í vikunni, þótt hún verði ekki beinlínis leiðinleg. Það skiptir miklu, að sambúð þín við félaga þína á vinnustað sé góð. Þú þarfnast hjálpar við að ráða fram úr þessu verkefni þínu, og skaltu ekki vera feiminn við að leita hjálpar vina þinna. U>

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.