Vikan


Vikan - 01.12.1960, Side 10

Vikan - 01.12.1960, Side 10
Tíu mínútum eftir a8 hótelsendill- inn hafði afhent Grúsinskaju sím- skeytið, var hún búin að setja allt á annan endann. „Heyrið þér, dyravörður, hvenær fer næsta lest til Búdapest? ... Eftir klukkutima? Getið bér útvegað mér rúm í næturvagninum strax? Allt upptekið? Jæja, — þú útvegið mér bara far á fyrsta farrými ... Já, já, ég ætla með lestinni. Gefið mér sam- band við herra Witte ... Suzette, Suzette! Leggðu föt niður í litlu handtöskuna! Undirföt fyrir fjóra daga og einfaldan kjól. — Nei, — engan kvöldkjól ... Eruð það þér, Witte? Komið strax hingað inn til mín. Eg hef fengið góðar fréttir, — skeyti frá Anastasíu. Þér verðið sjálfsagt alveg undr- andi ... Já, þetta er ég, Grúsinskaja. Kæri Sardowský. ég geri ráð fyrir, að leiksýning hafi átt að vera á miðviku- dag. Mér þykir það ákaflega leiðin- legt, en við verðum að fresta bún- ingsæfingunni þangað til á fimmtu- dag ... Er það ekki hægt? Auðvitað er það hægt. Fyrir eins áhrifamik- inn umboðsmann og þér eruð er ekkert ómögulegt ... Af hverju? Eg er veik, — alvarleg fiskeitrun. Lækn- irinn getur skýrt það allt út fyrir yður ... Eg kem klukkan tiu á fimmtudagsmorgun á búningsæfing- una, og á fimmtudagskvöld dansa ég. Udp á það hljóðar samningurinn minn, og ég er ekki skyldug tii að gera meira. Þér komið þessu í lag. Halló, Witte, fáið yður sæti. Sigaretturnar standa þarna hjá yður." Eftir að Grúsinskaja hafði með góðum árangri skipað fyrir I allar áttir og undirbúið allt vandlega. þð að allt sýndist vera í ringulreið I fliótu bragði, sneri hún sér að Witte hljómsveitarstjóra og lagði hendurnar á axlir hans. „Witte, ég er að fara til Búdapest. Anastasia hefur eignazt son.“ sagði hún. og rödd hennar var mjúk. „Litla stúlkan! Það eru tvö ár, sfðan hún giftist. Anastasfa er tutt- ugu ára. Eg var einmitt nýorðin átján ára. þegar hún fæddist. Munið þér ekki lengur eftir þvf?" ..Auðvitað man ég eftir þvf. Eg óska yður til hamingju. Þér ijðmið af hamingju. Og samt eruð þér, — ef mér leyfist að segja bað, — raunveru- lega orðin amma. Beztu hamingju- óskir." Grúsinskaja stanzaði skyndilega á miðju gólfi. Hún endurtók setninguna hægt: „Já, þannig er það, nú er ég orðin amma." „Mér finnst það stórkostlegt, að þér skulið fara svona umsvifalaust af stað," sagði Witte og leit rann- sakandi á andlit hennar, sem allt I einu yar orðið sorgbitið. „Á morgun haldio þér á barninu I fanginu. Það er gott, að þér kunnið að meta þessa hamingju." „Það held ég lika, Witte. Þér vit- ið, hve líf mitt hefur verið snautt að ást. Nú byrjar allt á nýjan leik. Eg varð alltaf að halda því leyndu, að ég átti barn. Og nú verð ég að halda því leyndu, að ég er amma ... Það yrði stórkostlegt efni i blaðafyrir- sagnir: Grúsínskaja, stjarna rússneska ballettsins, orðin amma! — og mynd af mér með ungbarnið I fanginu, auðvitað. Witte, þér verðið þögull eins og gröfin, er það ekki? Þér hafið alltaf verið þögull. Og þér ætlið að lofa mér því að hafa æfingu með ballettinum á hverjum degi. Bún- ingsæfing verður á fimmtudag klukk- an tíu. Verið þér sælir!" Grúsinskaja þaut eins og eldflaug inn f lestina á siðasta augnabliki. Dyrunum var lokað um leið. Bil- stjórinn hafði rétt tíma til að rétta farangurinn inn um gluggann, og lestin brunaði af stað. Grúsinskaja kastar sér örbrevtt niður á flauels- klæt.t sætið. Kurteis samferðamaður hafði látið tösku hennar upp f netið. „Þakka yður fyrir. herra minn," sagði hún án þess að lfta á mann- inn og lokaði augunum. Hún var óendanlega breytt, — eins þrevtt. og hún hefði öll sfn þrjátfu og átta ár verið á stanzlausum hlaun- um og það væri í fvrsta skipti hér í lestinni, að hún gæt.i hvilt sig. Hugs- anir hennar voru allar á ringulreið af þrevtu. Án þess að opna augun aftur hallaði hún sér aftur á bak í sætið og sofnaði. Maðurinn, sem sat á bekknum á móti henni, skoðaði hana forvitnis- lega og braut heilann um. hver hún væri. „Það er enginn vafi á bví, að hún er af heldra fólki," hugsaði hann. „Mjög smekklega klædd. meira að segja óvenjulega smekklega klædd I þessum einfalda k.iói. Ekkert ógeðs- legt ilmvatn. Vönduð taska með mið- um frá góðum hótelum. Gift? Að öllum líkindum. Þessir fallegu svína- skinnshanzkar varna þvi. að hægt sé að sjá. hvort hún ber giftingarhring. Ekki kornung. að minnsta kosti tutt- ugu og átta ára, en falleg, meira að segja miög falleg. Dásamlegur vöxt- ur og fingerð, ólívubrún húð. Arnold von Stetten, en það var nafn mannsins, andvarpaði ósjálfrátt. Hann var tuttugu og níu ára, yfir- verkfræðingur hjá þekktu efnafræði- fyrirtæki og var á leið til Vinar til brúðkaups sfns. Brúður hans var ung stúlka úr góðri fjölskyldu, og hann elskaði hana. En á þessari stundu sat hann hér f þessari lest og horfði á þreytt andlit Grúsinskaju. „Truflar ljósið yður? Á ég að slökkva það?" spurði hann, þegar hann sá augnalok hennar hreyfast órólega. „Kærar þakkir, en það er einmitt mjög þægilegt eins og það er," svar- aði hún. Grúsinskaja lokaði aftur augunum og byrjaði að hugsa um Anastasíu og barnið. Það var ekki lengra þangað til en á morgun, að hún mundi halda á barninu i fangi sínu, volgri, hjálparvana og yndis- legri, litilli veru. Grúsinskaja reyndi að framkalla mynd dóttur sinnar fyrir hugskots- sjónum sínum, en árangurslaust. Hundruð hlæjandi og dyftaðra and- lita þrengdu sér fram. Herra Stetten horfði á konuna. Honum fannst þreytusvipurinn á andliti hennar ðsegjanlega hrífandi. Grúsinskaja skalf í svefninum. Stetten breiddi varlega ferðaábreiðu sínu yfir hana, og hún brpsti við honum hálfsofandi og hvislaði: „Þökk fyrir. Þetta er mjög vingjarnlegt af yður. Þakka yður fyrir." „Þessi ókunni maður er góður við mig," hugsaði hún, um leið og hún sofnaði, ,.og ég er ekki vön því. Eng- inn er blíður við mig, en allir eru hræddir við mig. Frægt fðlk mætir alltaf kuldalegri framkomu. Karl- menn hafa skotið sig min vegna, en enginn hefur verið verulega góður við mig." „Þökk fyrir," sagði hún aftur skýrt og greinilega. þó að hún hefði sofn- að inn á milli og siðan væri liðinn klukkutimi. Lestin þaut f geenum nóttina, og drunur hjólanna lét.u hátt 5 mvrkr- inu. Litlar stöðvar flugu fram hjá og skilti og Ijós, — og síðan var aftur allt dimmt. Allt f einu gerðist eitthvað ólýsan- legt: hræðilegur brestur, — angist- arvein, — brotið gler. — og allt varð dimmt og óraunverulegt. Þegar St.etten kom aftur til með- vitundar. fannst honum hann vera f rauðglóandi helviti, þar sem öskrin glumdu og klærnar læstu sig um allt. Járnbrautarslys, sagði undirvitund hans. Stynjandi revndi hann að ná andanum. Eitthvað risastórt festi hann við jörðina og hélt honúm niðri f mýrkrinu. Hann hafði engar kval- ir, en hann fann ekki til vinstri handar sinnar, — öll tilfinning endaði í öxlinni, sem virtist hafa bðlgnað upn í óheyrilega stærð. Óljóst heyrði hann örvilnunarvein. Hann rétti hægt úr öðru hn'énu og fann undir þvi eitthvað volgt, sem andaði. Af öllum kröftum reyndi hann nú að lyfta þessu, sem þrýsti honum niður. Aftur missti hann með- vitund. Löngu seinna fann hann til ákafs sársauka. Hann andaði djúpt, og allt I einu fékk hann fulla með- vitund. Honum var borgið. Hann lá I grasi gróinni akbraut meðfram járnbrautart.einunum. Ein- hver lýsti með kyndli þangað, sem hann lá, og horfði á hann. „Hann §r aðeins lítið slasaður," heyrði hann einhvern segja. „Vinstri höndin er lemstruð og annað ekki. Ferðaðist einhver með honum? Eða var hann einn?" „Konan," muldraði Stetten, Um leið og hann stóð riðandi á fætur. En hann gat staðið óstuddur. Vinstri hönd hans hékk sver og máttiau§ niður með síðunni. „Þér voruð hepþ- inn," heyrði hann ságt við hlið sér. „Konáh yðar hefur ekki heldur meiðzt neitt að ráði. Getið þér kom- izt einn að farartækjunum þarna yfir frá? Þaðan verða allir hinir slösuðú fluttir “ Þegar komið var með Grúsinskajú til hans, lagði hann handlegginn úrti herðar hennar. Hún hallaði sér þúng^ lega að honum, var ekki komin tii fullrar meðvitúndar, en gat þó geng- ið. Smáir fætur hennar hreyfðust eins og á svefngengli, og hún gekk hægt og með erfiðleikum, þó að hann styddi hana. „Lítið slasaðir verða fluttir inn í þorpið," var tilkynnt. Stetten lá við hlið konunnar í ný- slegnu heyi I vagninum. „En hvað þetta er yndislegt," hvislaði konan og lá með höfuðið á brjósti Stettens. Reglulegar hreyf- ingar vangans höfðu róandi áhrif á Stetten, og hann reyndi að ná taki á veruleikanum. Fyrir framan lágt gaflhús stóð fólk, sem hvíslaðist feimnislega á. Út úr húsinu kom kona með Ijósker. „Allt er tilbúið fyrir ykkur," sagði hún. Stetten hafði rennt sér niður af kerrunni, og Grúsinskaja rétti fram hendurnar til hans. Þegar hann beygði sig niður að henni, lagði hún hendurnar um hálsinn á honum og hvíslaði eitthvað á rússnesku. Hann lyfti henni upp. „Drottinn minn, hvað hún var létt!" Hann fékk verk i vinstri höndina, en gat þó valdið þessari byrði. 1 stofunni logaði á lampa. Stóra sveitarúmið var uppbúið Malara- konan gekk hljóðlega um. Hún færðl gestum sinum heitt vatn, te og korn- brennivín. Hún háttaði konuna var- lega ofan I mjúk sængurfötin. Síðan bauð hún góða nótt. Stetten drakk tvö glös af vininu, og skyndilega fór tilfinningin um það, að hann lifði, eins og villtur stormur um hann allan. „Við lifum!" hrópaði hann æstur. „Við erum raunverulega lifandi. Þetta hefði getað orðið endirinn á öllu, en allt fór vel. Við lifum." Hann stóð við rúmið og tók um brúnu höndina, sem lá máttlaus á rauðri sænginni. Grúsinskaja opnaði dökk augun og horfði þegjandi á hann. Svo lyfti hún hönd hans að vörum sér. „Þér eruð svo góður og vingjarn- legur," hvíslaði hún. „Enginn hefur áður verið svona góður við mig. Kærar þakkir." Hann dró til sin höndina og gekk út að glugganum. Þaðan leit hann á hana, og hún brosti til hans með Smásaga effir VICKI BAUM 10 UUCAM

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.