Vikan


Vikan - 01.12.1960, Side 15

Vikan - 01.12.1960, Side 15
ÞEKKTU SJALFAN ÞIG «2)r. ffjattLíaó J onaáóon VEGIR FREISTIIVGAMA Þegar Iauslæti flæðir yfir bakka sína, eins og nú gerist með Islendingum, stafar það ekki af því, að hugsjón siðgæðisins hafi misst gildi sitt, heldur af því, að of margir einstaklingar leyfa undan- tekningu fyrir sjálfa sig. Enginn, sem brýtur siðgæðis- lögmálið, óskar eftir því, að það verði almenn regla. Sálfræðilega séð er freistingin bein afleiðing af boðorðinu. Maðurinn er tvíþættur að eðli: dýr, háð hvötum og ástríðum, og andi, sem heillast af hugsjón. Þess vegna öðlast maðurinn enga ró, fyrr en honum tekst að samræma andstæðufulla þætti í eðli sínu. HIÐ GUÐLEGA BANN. Á helgri bók er skráð, að guð leit yfir sköp- unarverk sitt og þótti það harðla gott. Siðan bannaði hann manninum að neyta ávaxta skiln- ingstrésins. Þá dundu yfir skelfingar synda- fallsins. Þetta ósamræmi milli fullkomleika sköpunar- verksins og mannlegs breyzkleika hefur um ald- ir valdið mönnum heilabrotum og hugarangri. Ef sköpunarverkið var fullkomið, hlaut mað- urinn að vera gæddur nægilegum viðnámsþrótti gegn freistingum. En ef sköpunarverkið var ófullkomið, þá hlaut skaparinn að vita það af alvizku sinni, að bann hans yrði brotið og maðurinn hrapaði i synd. í mörgum skarplegum kenningum hafa vitr- ir menn reynt að brúa þessa andstæðu. Sumar þeii-ra hafa reynzt æði fallvaltar. Hins vegar hefur andstæðan milli hins guðlega boðorðs og breyzkleika manneðlisins haldizt. Sálfræðilega séð er freistingin bein afleið- ing af boðorðinu. Dýrið þekkir ekkert boðorð nema lögmál síns eigin eðlis; það á þvi við engar freistingar að striða. En ástriðufullt eðli mannsins brýzt oft fram gegn „betri vitund“. Jafnvel bannið sjálft verður til þess að beina athygli okkar að hinu forboðna. Hinn slægi höggormur syndafallssögunnar er aðeins tákn höfundarins fyrir þá rödd, sem hljómar í eðli okkar sjálfra gegn banni. Þá myndast auðveld- lega klofið hugarástand: Ég geri það samt. Hjónaskilnaöir eru nú tlöari á Islandi en áöur, og fjóröa hvert barn, sem fæöist, er óskilgetiö. Þvi er hinn þröngi vegur dyggðarinnar varð- aður freistingum. Sex ólíkar manngerðir, sem lýst var í undan- farandi þáttum, auðkennast hver og ein af styrkri ástríðu til að gera ákveðna óskmynd að veruleika: óskmynd kærleikans, valdsins, heilagleikans, auðhyggjunnar, listarinnar, sannleikans. En hversu ofsafengin sem ástríð- an kann að vera, viðurkennir hver manngerð þau takmörk, sem boðorð siðgæðisins setja, jafnvel þótt ástríðan knýi einstaklinginn oft til þess að brjóta þau. Á þessari óhjákvæmilegu viðurkenningu hvil- ir gildi siðgæðislögmálsins. Jafnvtel afbrota- maðurinn viðurkennir sérstöðu sina: Ég geri það samt. SIÐGÆÐI OG SAMFÉLAGSBYLTIN G. Samfélagið er i sífelldri breytingu, og um leið breytist afstaða þess til siðgæðisins. Á ákveðnu skeiði i sögu þjóðanna gætir jafnvel nokkurs leiða á siðgæði. Maðurinn þráir þá að losna undan hömlu þess og lúta aðeins lögmáli sins einstaklingsbundna eðlis. Þá væri hann laus við þá sáru tvihyggju, sem annars þjakar hann. Nú á dögum þykir ekkert mas jafn þraut- leiðinlegt með okkar þjóð og tal um siðgæði. Utan veggja kirkjunnar gætir þess heldur hvergi i andlegri menningu okkar. Aldrei hefur nein viðhlítandi siðfræði verið kennd uppvax- andi kynslóðum. Öllu virðist hagað samkvæmt þeirri trú, að einstaklingurinn skuli aðeins hlita lögmáli síns eigin eðlis. Sú mannshugsjón er ekki ný. Endurfæðingar- Framh. á bls. 29. yiKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.