Vikan


Vikan - 01.12.1960, Qupperneq 16

Vikan - 01.12.1960, Qupperneq 16
ÓTRYGGÐ Ein tíðasta ástæðan til hjónaskiln- aða er ótryggð. Ef við vissum hvernig við ættum að bregðast við í þannig aðstæðum eða öllu heldur hvernig við ættum að koma í veg fyrir þær mundi hjónaskilnuðum fækka til muna. Auð- vitað eru margar fleiri ástæður til þess að hjón kjósa að skilja, en marg- ar þeirra eiga rætur sínar að rekja til ótryggðar. Til að byrja með er bezt að slá því föstu, að algengara er að maðurinn taki hjúskaparheit sitt ekki alvarlega. Það er einnig liffræðilega sannað kyn- tilfinningar mannsins espast oftar og auðveldar en konunnar. Þar að auki verðum við að viður- kenna, að á sviði kynferðislifsins ríkir mikil tvöfeldni og i skjóli hennar finnst manninum hann hafa fullan rétt til að halda aðeins fram hjá. Við skulum einnig samþykkja það, að það eru ekki allir menn sem vilja eithvað nýtt og ókunnugt. Það eru til menn sem finnst alveg sjálfsagt að vera einni konu trúir. Hvers vegna haga margir menn sér þá eins og tryggð sé eitthvað úrelt og gamal- dags sem ekki er hægt að krefjast af þeim? Heilbrigt samlíf. Sérfræðingar hafa vakið athygli á þvi að helmingur allra giftra kvenna hefur enga ánægju af samlífi. Einnig eru margar konur sem sýna beinlín- is mótþróa þegar maðurinn fer fram á eitthvað, og þær eru ekki færar um að leyna þeim mótþróa. öðrum er nákvæmlega sama um þetta allt saman og sumar gera þetta af nreinni og beinni skyldurækni. Á sérhvern heilbrigðan mann hef- ur þetta allt saman mjög slæm áhrif. Og þó að konan vísi honum ekki bein- línis á bug, mun sú tilfinning að hún geri þetta ánægjulaust eða á móti vilja sínum hafa mikil áhrif á hann. Það hefur verið sagt að ekki séu til kaldar konur, aðeins klunnalegir og eigingjarnir menn. Það er kannske einum of mikið sagt en þó er það algengt. Hinn venjulegi maður getur bara ekki litið á konu sina frá því sjón armiði. Hann slær því aðeins föstu að hún sé köld eins og ís og að hann hafi gert mikið glappaskot þegar hann giftist henni, og að hann hafi að minnsta kosti fullan rétt til að leita þess sem hann vantar annars staðar. Fórnarlamb sinnar eigin siðsemi. Nú á dögum er litið mikið frjáls- legar á þessi mál, en á dögum afa okk- ar og ömmu, en samt eru það margir sem líta mjög gamaldags á þessa hluti. Fyrr á öldum trúði fólk því, að engin siðvönd kona gæti fengið á- nægju eða fullnæingu í samlífi við manninn sinn, og þótt undarlegt sé eimir enn þá eftir af þessari einkenni- legu trú. Það virðist mjög fjarstæðukennt, að maður geti orðið konu sinni ótrúr vegna siðsemiskenndar, en þeir eru virkilega til, sem gera konu sína að nokkurs konar dýrlingi, vegna þess að mæður þeirra hafa kennt þeim að líta á konuna, sem þeir elska, sem upp yfir allt hafna. Þannig maður var Frank t.d. Þó að hann, áður en hann gifti sig, liti alveg eðlilega á kynferðislífið, byrjaði hann eftir að hann var giftur, að efast um að hann væri fær um að leysa hjúskaparskyldur sínar af hendi. Hann elskaði konuna sína mjög mikið, en það var eitthvð sem kom i veg fyrir það að ást þeirra væri fullkom- in. Hann var gripinn sektartilfinningu i hvert einasta skipti. Margir reyna að sjá eftirmynd móð- ur sinnar í konu sinni, og það gerði Frank einnig. Þess vegna var erfitt fyrir hann að líta á konu sína sem venjulega veru gerða af holdi og blóði, hann gat ekki einu sinni litið á hana sem fullnægingu langana sinna. Ár- angurinn af þessu varð svo sá að hann byrjaði að vera með annarri konu, sem var eins ólík móður hans og konu sem hugsast gat. Skyldurækni hans hélt honum föstum í hlekkjum hjóna- bandsins, en kynferðislanganir hans fengu hann til að leita út fyrir hjóna- bandið. Don Juan-flugur. Flestir menn ganga með einhvers konar Don Juan-flugur, og vegna þess hafa þeir oft ánægju af að vinna smá- ástarsigra. Oft hætta þeir öllu áður en það verður að raunveruleika, og úr öllu verður bara smágrobb manna á milli. Hinn raunverulegi Don Juan þjáð- ist aftur á móti af alvarlegri tauga- veiklun, jafnvægisleysi og við verð- um að segja það, að hann gerir allar þær konur hamingjusamar, sem hann giftist ekki. Hann getur nefnilega ekki, að sumu leiti vegna eðlis sins og að nokkru leiti vegna vana, verið einni konu trúr. Hann ímyndar sér að hann sé hinn fullkomni elskhugi, en hann hefur alveg rangt fyrir sér. Hann reynir alltaf að finna ást en gefur aldrei ást á móti. Það eina sem hefur nokkra þýðingu fyrir hann er að vinna sigra, hann hefur aðeins áhuga fyrir konu svo lengi sem hún veitir mótspyrnu. Don Juan maðurinn og kynvillmg- urinn likjast hvor öðrum meira en þeir vilja viðurkenna. Þeir hafa það báðir á tilfinningunni, að þeir séu ekki færir um að vera konunni það sem þeir eiga að vera, og þar af leiðandi þjást þeir báðir af sömu taugaveikl- un, og það er veiklun, sem ekki er hægt að lækna án læknishjálpar. Að fjarlægjast konu sína. Ef maður og kona hafa ekkert andlegt samband sin á milli, aðeins kynferðisleart. hefur það ekkert að segja þó að þau hvort fyrir sig full- nægi hvort öðru. En andlega sambandinu, sem hefur svo mikið að segja í hjónabandinu, er auðveldlega hægt að spilla. Það er kannske miskunnarlaust, en samt satt, að ef konan þroskast ekki á sama hátt og maður hennar, er mikil hætta a því að hún verði honum einskis virði. Skynsöm kona verður að taka tillit til þessa. Kona sem ekki hefur áhuga fyrir því sem maður hennar gerir, kærir sig ekki um að umgangast vini hans og finnst tómstundastarf hans asnalegt, ja, hún má ekki láta sér koma á ó- vart þó að maður hennar verði einn góðan veðurdag ástfanginn af annarri konu. Kannske byrjar það þannig, að hann tekur eftir því hvað hin konan hlustar vel á hann, hún virðist skilja hann. Og smám saman sér hann hvað hin konan er lagleg og hún æsir hann upp . . . og þá er ekki langt þangað til að hann sér hvað konan hans er hon um lítils virði og Þá er skammt Þang- að til hann fer að svikja hana. Hvernig þú skalt bregðast við. Ef að kona uppgötvar, að maður hennar hefur verið henni ótrúr, hugs- ar hún oft fyrst um skilnað, en það er alls ekki fullnægjandi lausn, ef hún elskar manninn enn og ef það eru börn í hjónabandinu. Ef að þú dag nokkurn stendur manninn þinn að því að halda íram hjá þér, þá reyndu að finna ástæð- urnar fyrir því og athuga hvort þú átt ekki nokkra sök á því. Reyndu einnig að ræða málið við hann rólega, en opinskátt. Gangi það ekki neitt, þá væri hægt að fá hjálp utan að frá, í. d. lijá lcekninum eöa ■prestinum... Vertu aldrei of stolt til að leyta stuðnings hjá öðrum. Ef að þú uppgötvar það, að þetta er að mik.lu leyti þér að kenna, skaltu gera tilraun til að laga þína eigin galla. Kannske geta eftirfarandi linur hjálpað þér: Láttu það aldrei í ljós að þú sért afbrýðissöm. Merki þess geta stund- um vakið eitthvað í manninum, sem áður hefur sofið. Þú getur átt á hættu að hann svíki þig vegna órétt- iátra ásakana og geri eitthvað sem hann hefur aldrei dreymt um að gera. Fallegt bros og gott skap er sterk- ara vopn en tár og kvartanir. Með gráti og kvörtunum geturðu kannski fengið hann til að vorkenna þér, en ekki til að eiska þig. Láttu ekki húsmóðurstörfin hindra þig í því að vera kona. Öll mikil vandamál skaltu ræða við mann þinn, en haltu honum frá smá- ergelsi. Talaðu opinskátt við mann þinn um öll vandamál sem viðkoma kynferðis- lífinu. Það er bezta og öruggasta leið- in til áð komast yfir þau vandamál. Bíddu með athugasemdir og að- finnslur þangað til þið eruð tvö ein. Þú mátt aidrei gera niðrandi athuga- semdir við mann þinn svo að aðrir heyri. Gerðu tilraun til að hafa áhuga fyrir vinnu hans og tómstundast.arfi. Reyndu að sjá um það að heimilið sé sá staður sem honum líður bezt á. Notaðu þér öll brögð hinnar kon- unnar. Þú getur einnig verið falleg fín og aðlaðandi og þar að auki dá- lítið dularfull. Gefstu ekki upp, Þó að þetta líti illa út til að byrja með. 1 raun og veru ert það þú, kona sem elskar hann og hugsar um hann, sem hann er að leita — Ég sem hélt að allir sjóliðar væru eins — — Hvað hefur hún, sem ég hef ekki miklu meira af? Eklcert eins gott og vatn Vatn er ódýrt og vatn er hollt og baðvatnið leysir ekki aðeins upp ryk og skít, Það leysir einnig upp gremju og áhyggjuefni dagsins og sléttir úr taugaflækjum. Bað getur verið hreinasta ánægjuefni. Ef þið takið ykkur bað á morgnana á það ekki að vera of heitt, þá verðið þið aðeins syfjaðar og illa upplagðar til vinnu. En á kvöldin getið þið haft það eins heitt og þið viljið. Eyðið baðsalti og baðolíu og þannig „luxus“ á sjálfar ykkur einhvern daginn þegar allt virðist ganga á móti ykkur og heimurinn er viðbjóðslegur staður. Biðjið fjölskylduna um frið og dragið ykkur í hlé nokkra tíma. Þið skuluð liggja grafkyrrar og blása sápukúlur eða leika ykkur að litlum gúmmídýnum og slappið af og munið að ykkur er sama um allt og alla. Þetta borgar sig í alla staðl. Næsta morgun vaknið þið með þá tilfinn- ingu að þið séuð i sumarfríi, og ykkur finnst þið vera orðn- ar nýjar manneskjur. Feimni Þegar fjögra ára dóttir þín fœst ekki til aö svara ókunnugum. Þú skalt ekki reiðast og þvinga hana til að svara, segja henni að hún sé óþekk og að fólk muni ekki éta hana, og ekki heldur spyrja hana, hvort hún hafi misst tunguna eða eitthvað þess háttar. Mörgum börnum er það eðlilegt að draga sig í hlé þegar fullorðið fólk talar við þau og er gott við þau. Ef við nöldrum stöðugt í þeim verða þau bara enn feimnari. Þú átt að svara vingjarnlega fyrir dóttur þína og reyna að leiða samtalið írá henni. Þegar hún sér hvernig þú kemur fram getur hún lært hvernig hún á að svara þannig að hún geti svarað sjálf þegar hún kemst yfir feimnina. En reynið alltaf að forðast að tala um barnið svo að það heyri. 16 VJKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.