Vikan


Vikan - 01.12.1960, Side 27

Vikan - 01.12.1960, Side 27
hefst tími heimsékna Veturinn er sá tími sem heimilklífið skipar æðsta sess. Þá verður að leggja áherzlu á matargerð og bakstur, enda létt með hinum viðurkenndu krydd- og böktmayvörum Brúnkökukrydd Múskat Kúmen Rauðkál Hunangskrydd Negull, Kókosmjöl Karamellusósa Allrahanda Pipar Vanillusykur Lárviðarlauf Engifer Saltpétur Sitrónusykur Salatolía Karry Rúllupylsu-krydd Skrautsykur Sellofanpap]iír Kardemommur, , Matarsódi Möndlur í rúllum. Kanel, heill Súkkat Hnelukjarnar Smjörpappír Kanel Hjartarsalt Súpujurtir Vinsýra þvottalögurinn í þvottinn; í uppvaskið. blævatn, sótthreinsandi, bleikir, eyðir lykt og blettum. Brauðrasp er ómissandi við ýmiskonar pönnusteikur, kóte- lettur, fisk o- fl.; gefur matnum óviðjafnanlegt bragð og fallegan rauðgullin lit. Eplakaka með raspi og rjóma er vinsæll eftir matur. Heildsölubirgðir Slti|ikttH Vf SKTPHOLTI 1 • REYKJAVtK Sími 2-37-37. Uppsalir Framhald af bls. 5. verði. Þessi kynni leiddu til vin- áttu ,sem aldrei brást. Hrólfur tal- ar um þessa mætu menntafrömuði með djúpri virðingu fyrir lærdómi þeirra og afrekum i þágu islenzkra mennta. Eftir stutta ökuferð erum við hjá konungagröfunum. Mig undrar, hversu brattur sá gamli er á göng- unni, þegar við leggjum til upp- göngu á haugana. Hann heldur hvet- ur sporið en hitt og fellir ekki nið- ur talið um bókmenntirnar. Efst á háliólnum, þeim mesta, gerum við stanz. Og þarna flytur Hrólfur Nordenstreng okkur snjallt erindi um nokkra helztu fornlconunga Svíaveldis. Rödd hins aldna fræða- þular er óvenjuskýr og þróltmikil. Stundum snýst mál hans upp i beinskeytta orðaleiki. Hann talar í stuttum setningum, sem gneista af snilld. Okkur gefst tækifæri til að koma á sænskt menntamannsheimili i Uppsölum. Þetta heimili ber ekki svip neins Norðurlanda. Andrúms- loftið hér inni er jafnt íslenzkt og það er sænskt og öfugt. Hér er mik- ill bókakostur um samnorræn menningarverðmæti. Hér eru forn- liókmenntir okkar, og liér eru bæk- ur Laxness og önnur frábær bók- menntaverk, sem unnin hafa verið á Norðurlöndum nú á seinustu timum. Hér er okkur tekið með þeirri alúðargestrisni, sem útlendir þreyt- ast ekki á að lofa íslendinga fyrir, þegar þeir sækja þá heim uin langan veg. Þá stuttu stund, sem ég dvelst á þessu fyrirmyndarheimili, fæ ég ekki varizt þeirri hugsun, að sá andi og sá hugblær, sem liér ríkir, sé sá hinn sami og allt hið bezta i norrænni menningu er sprottið upp af og bar hvað fegurst blóm, meðan norrænt fólk taiaði einu og sömu tungu. Siðla dags erum við aflur i Stokk- hólmi. Langt að berast þórdunur. Það dimmir skyndilega, og regnið streymir úr loftinu. Mynd borgar- innar er eins og máð bókfell í vatn- inu. Um kvöldið gerir heiðbirtu, og borgarbúar efna til mestu hátiðar ársins á Skansinum. Það er mið- sumarsnæturgleðin, J ónsmessuhá- tíðin. Af Skansinum er víðsýni mikið yfir borgina. Litir hennar, ungir og hreinir eftir regnið, og spegl- unin í vatninu kyrr og skýr. Það eru tvær borgir, önnur á hólmun- um grænu, hin i kyrrum vants- fletinum. Og hvar sem þú leggur leið þína um Skansinn í kvöld, sérð þú dans- andi og fagnandi fólk. Þúsundir- irnar dansa og syngja. Gamlir og ungir stíga þjóðdansa og syngja kvæðin sín góðu. Það er dansað i stórum og smáum hópuin, á opn- um svæðum í kringum íðilgrænar maistengur, og á pöllum er dansað, og á gangstígum er dansað. Fortíð og nútið kallast á og verða eitt i söng og dansi. Rökkrið færist yfir, og borgar ljósin kvikna. Það verður mikill ljósagangur og göldróttur. Borgirn- ar tvær, sú á liólmunum og sú í vatninu, renna saman i eitt óað- greinanlegt haf skrúðljósa. Þar sem jólin byrja í nóvember Framli. af bls. 21. — Eruð þið ekki orðnir leiðir á jólunum, þegar þau svo loksins koma? ■—- Við erum aldrei leiðir, þegar bísnissinn gengur vel. — Hvaða vörur eru nú mest keyptar? — Gæruskinn og ullarvörur. Og svo margt og margt. Silfurmunir, hvaltennur, brúður í íslenzka bún- ingnum o. s. frv. -— Hvað hafið þið sent lengst? — Til Japan. Og Hong Kong. Um alian heim má segja. Það er að segja allan hnöttinn. Annar maður er áhrifamikill í Rammagerðinni. Hann lieitir Hauk- ur Gunnarsson. Hann er sérfræðing- ur í minjagripum og sölu þeirra, og þá náttúrlega ekki hvað sízt í sambandi við jólasendingar til útlanda. — Jólianncs sagði mér, að þær vörur, sem mest seldust í þessu væru gæruskinn og ullarvörur. Þú samþykkir það væntanlega? — Já, það geri ég liiklaust. — En hvað um smávörur eins og aska og rokka? — Þær fara meira til Vestur- íslendinga og annarra, sem þekkja meira til lands og þjóðar. Túristar kaupa meira praktíska hluti eins og gæruskinn og ullarvörur, mikið al' peysum t. d. Gagnvart krökkum cr mest um sölu á ullarvörum. — Þú ert fylgjandi þvi, að setja jólaútstillinguna upp svona snemma? — Já, þar sem hún á við eins og hér. Það væri náttúrlega hlá- legt að setja liana upp i matvöru- verzlunum, til dæmis. Og þó, kon- urnar geta náttúrlega farið að byrja á smákökunum þær geymast svo vel. — Hafa allar ykkar sendingar komið fram með skilum? — Já. allar okkar sendingar, sem frá okkur fara eru tryggðar lijá tryggingafélögum, og t. d. i fyrra kom ekki cin cinasta kvörtun yfir því, að sending hefði misfarizt. Hins vegar komu margir eftir svo sem tvo mánuði, frá þvi að send- ingin fór af stað, og kvörtuðu yfir að hún væri elcki komin fram. Þá var hún bara á leiðinni. Þetta fer svo hægt. — Hvaða vörur eru það, sem þið sendið til Hong Ivong? Ekki sendið þið gæruskinn þangað? — Nei, það eru fremur smávörur, sem hafa sérstakt gildi fyrir ísland. ★ VlKAtí 27

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.