Vikan - 29.12.1960, Blaðsíða 5
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 11580 — Talstöðvabílar
óskar öllum viðskiptavinum sínum f jær og nær
gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir
viðskiptin á liðna árinu.
annan mann í fyrsta skipti, og sama máli
skiptir um að liitta nýfætt barn sitt.
Hins vegar þarf hún ekki að vera i vafa
um, að allt liiÖ yndislega og óumræðilega,
sem bún hefur heyrt talað um og lilakkað til,
það kemur. Fæstar mæður fara algjörlega
varliluta af ofurlitlu kjarkleysi eftir fæðingu.
En það riður á því, að þær viti það fyrir
fram, slíkt lijálpar þeim til að komast yfir
það, og að skömmum tima liðnum mun með-
göngutíminn með öllum hans óþægindum
vera gleymdur og horfinn út í veðnr og vind.
Fortiðin liverfur, en framtíðin verður fyrir
öllu.
Þegar karlmemi ætla að „falla saman“.
Þarna framdi ég refsivert athæfi, er ég skrif-
aði á blaðið önnur eins orð og þetta: ....
„meðgöngutiminn með öllum hans óþægind-
um“. Það er hætt við að ég skjóti öllum
verðandi mæðrum skelk i bringu með þvi,
svo að þær fari að óttast að níu mánuðir
meðgöngunnar séu óslitin dvöl í pyndingaklefa.
Ég hef það eitt mér til afsökunar, að orða-
tiltækið er tekið úr grein þeirri sem getið
var hér að framan. Heilsufarslega séð er með-
göngutíminn yfirleitt bezti tími konunnar, og
með óþægindum er aðeins átt við örðugleika
þá og höft, sem ástand þetta hefur i för með
sér fyrir konur, sem til dæmis vinna fyrir sér
sjálfar.
Sömuleiðis er átt við ótta þann, er ýmsar
konur verða slegnar og síðar mun verða
minnzt á hér. Og mundi það ekki oft og tiðum
einmitt vera þessi ótti, sem verður þess vald-
andi að meðgöngutíminn virðist þrunginn
þjáningum? Mér væri næst að halda það.
Það er jafnan ágætt efni fyrir skopteiknara
og skemmtisagnahöfunda, að lýsa framferði
föður, sem er æstur og yfirspenntur á taugum,
. . . ef ekki kolbrjálaður af ofvæni. Þó taka
kvikmyndastjórar út yfir .... allir skoða
hann sem hreinasta hræ .... þann stóra og
sterka karlmann, sem er að því kominn að
falla saman. Svo þegar allt er um garð gengið,
liggur við að hann þakki sér allt saman,
lætur vini og starfsbræður óska sér til ham-
ingju og býður þeim vindla á báðar hendur.
En ætli hann sé nú svo heppilegur i sinu
hlutverki?
Hann er þarna eins og „ titrandi taugahrúga“
og fer auðvitað ekki lijá þvi að með óstyrk
sinum verkar hann afar illa á konu sina. En
einmitt á þessum liluta meðgöngutímans
þarfnast hún hvað mestrar stoðar og styttu,
en hefur ekkert við flón að gera. Já, afsakið
að ég segi rétt eins og ég meina það.
Virk eða hlutlaus afstaða konunnar.
Meðan kona gengur með barn sitt, sækir
jafnan á hana kviði með köflum. Hún er þá
að hugsa um, hvort barnið sem hún eignast
verði rétt og fagurlega skapað, hvort fæðingin
verði afskaplega kvalafull . . . . og hvort hún
muni bera menjar hennar á eftir. Það getur
jafnvel komið fyrir, að hún spyrji lækninn
með lágri og skjálfandi röddu, hve margir
hundraðslilutar kvenna deyi af barnsburði.
En þetta er sem sagt aðeins með köflum,
og kemur oftast til af einhverju, sem hún hef-
ur heyrt . . . kerlingabókum, sem gamlar
frænkur hafa talið henni trú um.
Móðurgleðin og eftirvæntingin yfirvinnur
þó að jafnaði mjög fljótlega þessar amastundir
ótta og kvíða. Hitt er sannarlega von, að
kvíði sæki að henni, þegar líður að lokum
meðgöngutimans og fóstrið leggst i þá stöðu,
er það fæðist úr, þegar hreyfingar þess taka
að gerast hraðari og hún fer að búast við
fyrstu hríðunum.
Ótti þessi eykst og margfaldast, ef hún
skyldi eiga mann, sem er úr öllu jafnvægi
út af þvi að liann skuli eiga að verða faðir
á næstunni.
Tveggja sálrænna þátta gætir mjög í lífi
konunnar, á síðasta stigi meðgöngutimans:
Að halda aftur af fóstrinu og að fæða það.
Og þessir þættir endurspeglast í athöfn hennar
við fæðinguna. Þá er afstaða sumra kvenna
virk, en annarra hlutlaus. Ósjálfráð eðlishvöt
liennar, sem kemur henni til að halda aftur
af fóstrinu, kemur fram í „slow motion“, að-
gerðaleysi, meðan á fæðingu stendur, en eðlis-
livötin, sem óskar fæðingar, herðir á og flýtir
fyrir.
Afar virk afstaða getur einkennt eina fæð-
ingu, og of hlutlaus afstaða aðra. Af þvi er
svo með nokkurri varfærni unnt að gera sér
hugmyndir um sálarlíf hvers einstaklings og
taugaástand, ef hún siðar meir kynni að leita
sálfræðilegrar læknishjálpar.
En sú hlið málsins verður að biða annars
þáttar. ^
llngírú Yndisíríð
er enn á ferðinni og óskar lesendum
Vikunnar gleðilegs árs. Hún er ný-
komin á fætur eins og þið sjáið og
ætlaði að fara að púðra sig, en þá
fann hún hvergi púðrið. Hún segir,
að púðrið hljóti að vera einhversstað-
ar í blaðinu og biður ykkur að finna
púðrið fyrir sig. Þið eigið vinsamleg-
ast að tilgreina þá blaðsíðu, sem
púðrið er á og skrifa síðan fullt nafn
og heimilisfang þar fyrir neðan og
senda til Vikunnar. Síðan verður
dregið og verðlaunin eru Carabella
náttföt.
Púðrið er á bls.
Nafn
Heimilisfang
* Smiðum miðstöðvarkatla fyrir all-
ar gerðir oliukynditækja, með inn-
byggðum vatnshiturum. Einangrum
katlana.
* Sérbyggðir vatnshitarar (spíralar),
ýmsar gerðir. —
* Forhitarar fyrir hitaveitu.
* Lofthitunarkatlar, ýmsar stærðir.
* Olíuofnar fyrir beitingar- og vinnu-
hús.
* Frarakvæmum allskonar járnsmíði,
vélaviðgerðir og pípulagningar.
* Leggjum áherzlu á góða þjónustu
og vandaða vinnu.
Miðstöðvarkatlar vor-
ir fyrir súgkyndingu
eru óháðir rafmagni
og þvi sérstaklega
heppilegir þar sem
rafmagn er enn ekki
fyrir hendi. —
★
öllum fyrirspurnum
svaraö fljótt og vél.
Tækni
miðstöðvar-
katlar
Sparneytnir — Ódýrir.
YIXAN. 5