Vikan


Vikan - 29.12.1960, Side 10

Vikan - 29.12.1960, Side 10
Andlitsmynd af ungri stúlku. Skip í höfninni. Kári Eiríksson hefur haft heldur hljótt um sig, síðan hann kom frá námi á Ítalíu og efndi til svningar á verkum sínum i Listamannaskálanum. Ég frétti af honum á fasteignasölu og var farinn rð halda, að hann hefði horfið af listabrautinni t;i annarrar arðsamari atvinnu. Svo stóð ég hann rð verki með pensla og litabretti í salnum á "reyjugötunni. Hann hafði fengið inni þar og verið afkastasamur: Meðfram öllum veggjum voru myndir í bunkum, og á miðju gólfi var heilt borð þakið litahrúgum, túpum og öðrum áhöld- ira, Kári virtist í essinu sínu, og ég býst við því, að svo mikil málning hafi verið komin í buxurnar hans, að þær hefðu staðið einar. — Velkominn úr fasteignasölunni, sagði ég. •— Það var gott, að þú gazt slitið þig frá henni. — Það var ekki erfitt. Ég hef aldrei ætlað mér að standa i svoleiðis þrasi til lengdar. Maður var í símanum guðslangan daginn og svaraði þess- um sömu spurningum aftur og aftur. — Og málaðir alls ekki neitt? — Bara um helgar og stundum á kvöldin. Ann- ars verður maður svo svekktur á svona starfi, að það þarf hörku til að koma sér á strik við að mála á kvöldin. Ég er hættur því og geri það ekki aftur, nema mikla nauðsyn beri til. —- Ég er hræddur um, að Það hafi eitthvað orðið eftir af Þér í fasteignasölunni. Eru þetta ekki fokheldir hússkrokkar á þessum myndum. Ég sé ekki betur. — Jú, það er vist rétt. Kannski hefur maður uppgötvað þarna eitthvað nýtt, sem á eftir að blómstra. Ég hafði aldrei tekið eftir því, að fok- held hús væru „malerísk". Þú sérð, að þetta eru ekki svo galin mótív. — Ertu alveg að hætta að nota liti? — þetta er mest grátt hjá þér. — Ja, fokheld hús eru grá, ekki satt? Arinars held ég mikið upp á grátt og hvítt og svart. Ég fer mjög hóflega með sterka liti, eins og þú sérð á myndunum hérna. — Mest af þessum myndum eru alveg gerólíkar þeim, sem þú sýndir við komuna frá Italíu. Hvað kemur til? — Það er ekki gott að segja. Stundum losnar um mann, þegar maður hættir og gefur sig að öðru starfi. Þá er eins og hlutirnir séu öðruvísi — eða þá, að maður sér þá í nýju Ijósi, þegar byrjað er aftur. — Mér finnst Þetta alveg ótrúlegar framfarir hjá þér, og ég skil það varla, fyrst þú hefur ekki unnið svo mikið að því að mála. — Ég hef hugsað þeim mun meira. Það er rkki endilega vist, að maður bæti sig mest á því r,ð hamast eins og óður maður með pensil og liti. Svo getur verið, að ég sé enn þá að taka út þroska. — Það var talsvert af landslagsmyndum hjá þér á sýningunni. Ertu að falla frá þeim? — Nei, þær eru hér enn. Það þarf kannski að virða þær ögn fyrir sér til þess að sjá, hvað um er að ræða, og kannski er ekki lengur hægt að sjá, að þar sé um landslag að ræða, en margar af þessum myndum eru beint úr náttúrunni. Ég hef notað litina og jafnvel formin líka, en það er rétt, að stílfærslan er orðin nokkuð mikil. Þó eru þarna myndir frá Þingvöllum, sem ætti að vera hægurinn hjá að þekkja. — Þannig máluðu gömlu meistararnir, sagði Kári og hélt reglustikunni laust frá myndinni. ♦ — Nú er ekki verið að dunda við smáatriðin —• Ég sé, að þú notar brons. — Já, finnst þér það ekki fara sæmilega? Bronsið er svo „dekoratívt", en ég nota það bara einstöku sinnum. Sjáðu þessa hérna. Þetta er bara fantasia með andliti og einhverjum dularfullum jurtum. En bronsið fer ágætlega i henni með svarta litnum. — Er það nú tilviljun, að þessi mynd varð svona, eða var hún þrauthugsuð fyrir fram? — Ég býst við þvi, að hún hafi orðið til í mcðförunum að einhverju eða miklu leyti. Mál- verkið er ekki orðið eins útspekúlerað eins og þegar þeir voru að mála gömlu meistararnir. Á ég að sýna þér, hvernig þeir fóru að? Þeir höfðu sérstakan stokk, — ég get sýnt þér það með reglustikunni, — því línurnar voru svo hárfínar, að hvergi mátti skeika agnarögn. Það er gott að vera laus við svoleiðis vinnubrögð. — Þú hefur þá ekki þurft að vinna þannig í skólanum á Italiu? — Það var að vísu lögð á það mikil áherzla að kenna okkur ýmis gömul grundvallaratriði, en ekki beinlinis þetta, enda er það óþarft. En við áttum að vinna nákvæmlega í skólanum. — Þið hafið auðvitað notað fyrirsætur eins og í öðrum sambærilegum skólum. Áttuð þið þá að teikna þær og mála mjög nákvæmlega? — Skólinn ætlaðist til, að svo . væri gert, en það var svo sem ekki brottrekstrarsök, þótt mað- ur gerði það ekki. En maður fékk að vita það á kurteislegan hátt, að til þess þyrfti maður ekki að vera í skóla. Ég man það, að ég fór eitthvað að stílfæra módelið um of, og þá kom kennarinn og spurði mig, hvort ég hefði verið í Paris. Hann sagði það í þeim tón, að ég skildi, að þar var engin aðdáun á ferðinni. Framhald á bls. 33. Fólk á götunni. !□ VIAAM

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.