Vikan - 29.12.1960, Page 14
<1 bitð er nú ekki lengur ta'ið til tiðinda, þótt gervi-
hnöttum sé skotið á loft, nema eitthvað sérstakt komi
ti!. Mcrkasti atburðurinn í geimrannsóknum er líklega
tungiskoí Itússa, en upp úr því krafsi hafðist ljósmynd
af þeim helmingi tunglsins, sem frá jörðu snýr. Þá
tókst á árinu að senda dýr upp í háloftin og ná þeim
ósködduoum niður aftur.
Enda þótt iiðin séu 15 ár frá
lokum siðari heimsstyrjaldarinnar,
hafa GySingar ekki gieymt Adoif
Eichmann,böðlinum, sem myrti sex
milljónir af þjóðflokki þeirra á
stríðsárunum í Þýzkalandi. Á ár-
inu tókst þeim að hafa hendur í
hári hans. Hann hafði falið sig í
Suður-Ameríku, en útsendarar Gyð-
inga fundu hann og fluttu hann til
ísrael. Nú er böðullinn Eichmann
fangi þjóðarinnar, sem hann reyndi
að útrýma og þegar þetta er skrifað
er ekki enn vitað hvaða dóm liann
fær. Eichmann var einn af liryili-
legustu glæpamönnum nazista.
Hann hafði fullkomlega réttlætt
morðin á Gyðingum fyrir sjálfum
sér og segir enn: Ég hef einskis
að iðrast. ★
. A
Á árinu voru haldnir Ólympíu-
leikar. Vetrarleikar fóru fram í
Squaw Valley í Bandaríkjunum en
sumarleikarnir í Rómaborg. Þeir
voru einhverjir hinir glæsilegustu,
sem haldnir hafa verið og átti borg-
in eilífa ekki sízt þátt í því. En
annað er þó staðreynd: Á þessum
Olympíuleikum voru unnin betri
afrek en á nokkru öðru íþróttamóti
og heimsmetin stóðust illa átökin.
Einn af þeim sem hvað mesta at-
hygli vakti var kornungur Þjóð-
verji, Armin Hary, sem reyndist öll-
um fótfrárri og sést hér sigra í 100
metra hlaupi.
Sá atburður í samskiptum þjóða, sem stórpólitiskasta þýðingu hafði,
var án efa njósnaflug bandarísku flugvélarinnar U-2 yfir Rússland.
Rússar skutu flugvélina niður, og á myndinni sést flugvélin V-2. Hið
mikla vænghaf er vegna háloftsflugs Krússéf notaði þennan atburð sem
tilefni til hótana, og fyrir þær sakir slitnaði upp úr Parísarfundi æðstu
manna.
Meiri háttar náttúruhamfarir urðu á
nokkrum stöðum í heiminum, enda þótt
Kat!a bærði ekki á sér svo og önnur
eldfjöll á íslandi. Mestar urðu nátt-
úruhamfarir i Chile í S.-Ameríku. Þar
olli eldgos feiknarlegum jarðskjálftum
og flóðbylgjum, sem komu í kjölfarið.
Af þessum sökum eyddust borgir og
tugþúsundir manna létu lífið.
Þegar frá eru skildir Ól- D>
ympíuleikarnir, vakti hnefa-
leikaeinvígi Svíans Ingemars
Johansson og Floyds Patter-
sons frá Bandaríkjunum mesta
athygli af íþróttaviðburðum.
Johansson varð heimsmeist-
ari í fyrra, en nú sló negrinn—
Svíann niður. “
f byggingarlist voru unnin
mörg stórvirki á árinu, en einna
hæst ber byggingu nýrrar höfuð-
borgar Brasilíu. Hún er byggð
inni í landinu, skipulögð í smá-
atriðum fyrirfram og hinir fær-
ustu arkitektar hafa fjallað um
skipulag og teikningar. Þar verða
ýmsar byggingar með mjög ný-
stárlegu sniði og hinn frægi
brasilíski arkitekt, Oscar Nie-
meyer, á ekki hvað sízt heiður-
inn af frumlegum svip borgar-
innar.
14 VIKAN