Vikan


Vikan - 29.12.1960, Side 22

Vikan - 29.12.1960, Side 22
J&enJLf Ci£ölJMu£lr>K! Draumspakur maður ræður drauma fyr ir lesendur Vikunnar. Kæri draumráðningamaður. Um daginn dreymdi mig að mér fannst ég vura komin í Tivolí og fannst mér þar vera nokkuð breytt. Finnst mér þá koma maður, sem ég þekki. Og finnst mér hann vera fárveikur. Ég hjálpa honum þá inn í eitthvað sjúkraher- hergi, sem er þarna. Þar voru 2 rúm, sem snéru þannig að höfðalögin snéru saman og mynduðu rétt horn. Mér finnst ég lijálpa honum. Síðan fer ég upp í hitt rúmið af ]>vi að mér fannst hjúkrunarkonan vera að koma og ég vildi ekki láta hana sjá mig. Ein áhugasöm. Svar til Einnar áhugasamar. Þú munt hitta ungan mann sem þarfnast þín mjög. Þið munuð verða mjög samrýmd um stundarsakir, en samt muntu ávallt blygð- ast þín fyrir samband vkkar. Þér góðviljuð manneskja mun hjálpa ykkur mikið. líæri draumráðandi. Mig dreymdi í nótt, sem leið að bróðir minn, sem er búsettur i öðru landi var búinn að missa konu sína, lnin hafði dáið úr krabba- meini í nýrnunum og hann sagði að hún hefði dáið klukkan tíu í gærkvöldi. Ég var að furða mig á hvað liann var fljótur milli staða og enn furðulegra fannst mér livað hann tók þessu rólega, en ég grét þessi lifandis ósköp. Ég hugs- aði með mér livað það væri leiðinlegt að ég skildi ekki vera búin að senda henni belti af kjólnum, sem ég saumaði á hana fyrir nokkrum mánuðum, þegar bróðir minn var hér staddur. Hann sagði að henni hafi fundist kjóllinn mjög fallegur. Hún gat ekki notað hann vegna þess að hún var barnshafandi. Þess skal getið að hún er barnshafandi og átti von á sér í þessum mánuði, en ég hef ekki heyrt frá þeim svo lengi. Hún var lika barnshafandi, þegar ég saumaði kjólinn, þess vegna hef ég ekki enn sent belti. Ég grét ofsalega i svefninum. B. H. Svar til B. H. Draumur þessi er greinilegt tákn um að á næstunni muni þér berast fregn um fæðingu barns mágkonu þinnar. Venjulega táknar dauði endir einhvers málefnis, sem er í þessu tilfelli, barnsmeðganga mágkonu þinnar. Annað merki um þetta er beltið sem auðvit- að fellur ekki að henni fyrr en hún er aftur léttari. Krabbi er talinn merkja batnandi heilsufar, þrátt fyrir hvað hann táknar venjulega fyrir fólk f raunveruleikanum. Til draumráðandans. Fyrir nokkru dreymdi mig að ég var stödd inni á Gildaskálanum í Aðalstræti, ásamt systur minni. Finnst mér hún fara þar á bak við og koma aftur i tveimur kápum, annarri ljósblárri og fylgdi húfa með henni, líka blá. Hin kápan var gul að lit. Hún segist hafa fengið þær með tækifærisverði. Ég verð svo liissa á þessu og fer að hafa orð á því hvort henni finnist það fara nógu vel yfir axlirnar, en hún gefur litið út á það. Kápurnar voru báðar með frakka- sniði, en svo er ég líka allt í einu farin að verzla og eru það herranærföt, sem ég kaupi. Mér fannst ég þurfa að kaupa tvenn en ég hafði bara nóga peninga fyrir einu setti og í því vakna ég. Fyrir hverju er draumurinn? Linda. Svar til Lindu. Merking draumsins er sú að á næsjtunni komi eitthvað það fyrir sem mun koma þér og systur þinni í vandræði, þannig að þið munuð hljóta hina mestu hneisu. Frakkarnir og karlmannsfötin eru í þessu tilfelli tákn um gerfi hneisunnar, og verður þó málsstað- ur systur þinnar lakari heldur en þinn. Hvaö segja stjörnurnar um hæfileika yöar, ,ii,öguleika og framitíö? Viljiö þér fá svar viö /tessu þá sendiö upplýsingar um nafn, hewiulis- fang og ár, fœölngarstaö og hvenær sólarhrings- ins þér fæddust ásamt greiöslu i umslagi merkt nósihólf 2000 Kópavogi og svariö mun berast yö- n. . meö pósti. L luslegt yfirlit (sólkort) .......... kr. 50.00 /,'juslegt yfirlit meö hnattaafstööurn . . — 100.00 itpádómar fyrir eitt ár kostar ....... — 200.00 Nákvœmt yfirlit mcö hnattaafstööum — 500.00 AÖ gefnu tilefni tökum viö fram aö fœöingar- stund má helzt ekki skakka meira en 15 minútum. Pór Baldurs. Dúkkuvagga úr skókassa Heldurðu ekki, að brúðan þín kæri sig um að fá nýja vöggu? ESa kannski gætirðu gefið vinkonu þinni dúkkuvöggu? Hér sérðu, hvernig hægt er að búa til vöggu sem bæði er ódýr og auðvelt er að búa til. Hjá mömmu þinni get- urðu fengið skókassa og klemmur, sem oft eru notaðar til að setja aftur umslög, tvíarma með bólu á endanum. BARNAGAMAN Lokið er tekið af kassanum (sjá teikningu nr. 1) og kantarnir lagð- ir út til hliðanna og síðan teikn- arðu boga inn á lokið eins og sýnt Kjer á mynd nr. 2. Þá klippirðu bog- r jJann út (sjá mynd nr. 3) og tciknar ' eftir honum á hinn helming loks- ins. Þegar þú ert búin að klippa út báða bogana, þá hefurðu þar báða fæturna á vögguna, sem þú svo festir á með klemmunum. Til þess að gera svo vögguna reglulega fina málar þú hana að innan og utan með hvaða litum, sem þú vilt. Þetta er mjög fljót- gert. ★ Kisukotra Klippið allan ferkantinn út og límið hann á þunnan pappa. Síð- an klippið þið hvern hluta út fyrir sig og þá byrjið þið að reyna að setja hlutana saman, svo að þeir myndi eina mynd. Við ætlum ekki að segja ykkur hvernig myndin verður, en við lofum þvi að hún verður mjög skemmtileg. Þegar þú ert búin að koma myndinni saman geturðu litað hana og Þá verður enn skemmtiiegra að setja hana saman næst. 22 XUCAM

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.