Vikan


Vikan - 27.10.1960, Side 4

Vikan - 27.10.1960, Side 4
'SPBSs Svartur og gljáfægður Cadillac rann hljóðlaust eftir götunum í auðmannahverfinu Jackson Heights á í.ong Isiand í New Yoric. Við stýr- ið sat roskinn maður, snyrtilega klæddur, með hanzka á höndum, og við hlið hans ung, glæsiieg kona. Þau töluðu ekki mikið saman, höfðu verið í „partíi“ og voru þreytt. Það var ekkert tiltökumál, — það sama mundi vera að gerast á þús- undum annarra staða í Ameriku, þar sem betriborgarar stunda sam- kvæmislífið og verða helzti síðbún- ir í háttinn. Allt í einu gall við byssuhvellur eða réttara sagt tveir í röð. Fram- rúða bílsins splundraðist, maðurinn féll saman við stýrið og konan aft- ur á bak; bæði voru dauð. Upp úr aftursætinu reis maður og tók við stjórn bílsins, stöðvaði hann fljót- lega og hljóp út í myrkrið. Sá dauði hét Anthony Carfano, „stór kall“ 1 glæpalífi borgarinnar, og var nú löngum og blóðugum ferli lokið. Daman, sem var svo óheppin að vera honum til samfylgdar þetta kvöld, hét Janice Drake, fyrrver- andi fegurðardrottning. Þarna var MAFIA að verki og beitti þeim aðferðum, sem tíðkast innan þeirrar hreyfingar. Antony Carfano hefur eitthvað gerzt óhlýð- inn, og þá var hann afgreiddur. Hann gekk annars undir nafninu Litli Augie og hafði verið mjög duglegur í undirheimum New York- borgar. Hann hafði líka fengið sinn skerf af þeim milljónum dollara, sem hreyfingin hafði i veltunni. Lögreglan sá strax, að líkur bentu til þess, að útsendari MAFIA hefði annazt morðið. Þau voru bæði skot- in gegnum hálsinn, en það er ein- mitt aðferð; sem þeir hafa mætur á. Þá getur fórnardýrið ekki talað, ef það skyldi nú vera með lífsmarki, þegar lögregluna ber að. í síðasta blaði Vikunnar var Sikil- ey gerð að umtalsefni. Þar er vagga MAFIA, hinnar alþjóðlegu glæpa- mannahreyfingar. Óhlýðni við lög- in hefur lengi þótt sjálfsagður hlut- ur á þeirri sólbrenndu eyju, og flestir af stórglæpamönnum Banda- ríkjanna eru frá Sikiley eða Ítalíu. Það hefur verið talað um, að Gyð- ingar ráði yfir viðskiptalífinu í New York, en ítalir yfir glæpunum. Fyrst í stað starfaði félagsskap- urinn aðeins á Sikiley, þar sem hann var stofnaður fyrir 150 árum. Síðan hreiddist hann út um Ítalíu og síðan til Ameríku og hefur náð þar einna mestum blóma. Að vísu hefur MAFIA agenta um allan heim, einkum þar sem eiturlyf eru verzl- unarvara, en óhætt mun að fullyrða, að höfuðstöðvarnar séu i Napoli og New York. MAFIA er löngu orðið alþjóðlegt vandamál og höfuðviðfangsefni lög- reglunnar í nokkrum löndum. Talið er, að félagsskapurinn í heild sé svo auðugur, að hann gæti keypt upp nokkur fjársterkustu fyrirtæki ver- Fyrirliöi Mafiafélagsskaparins á Sik- iley, Giuseppe (GencoJ Russo, sem er vellauöugur milljónari, stjórnmála- maöur og búgaröseigandi. V Mike Spinella þráir aö komast heim til Bandaríkjanna og hengir banda- riska fánann upp á vegg á milli sonar síns og dóttur. V Luciano er fremur einmana. Ilann situr oft einn viö borö sitt i Kali- forníuveitingahúsinu í Napólí. Al Capone var kallaöur helzti óvinur samfélagsins. Hann var tekinn til fanga fyrir slcattsvik og lézt áriö 191t0.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.