Vikan


Vikan - 27.10.1960, Side 10

Vikan - 27.10.1960, Side 10
Óskar Aðalsteinn. RRUGÐIÐ ÓEIK III. Grein. BORGIN í SKÓGINUM Við kveðjum byggðirnar við Sognsæ, förum með járn- braut um Mýrdal og áfram eins og leið liggur með Bergens- brautinni til Oslóar. Þú ferð í gegnum fjöllin og yfir stein- brýr sem liggja utan í liengifiugum og brúa djúpar gjár og dalskorninga. Skógurinn er gullinn i sólskininu. En allt i einu skellur á svartamyrkur. Þú ert á ieið inn í fjallið. Hér búa dvergar og bergj)ussar, svartáifar og drísildjöflar og aðrar kynjaverur þjóðsagnanna. Og þegar þú þýtur i gegnum fjallið, næstum fljótar en auga á festir, er þá ekki sem þú sjáir bregða fyrir glottandi ásjónu á myrkri rúð- unni, lítir neista hrjóta af afli dverga og heyrir tröllahlátra í gegnum eimreiðardyninn? Svo erum við aftur úti í sólskininu, — og sígrænt landið og skógurinn líða hjá, — en aftur dimmir og aftur birtir ... Um miðjan dag skiptum við um Jest. Og við förum i leika á brautarpallinum. Fram, fram fylking. — Hvort viltu heldur Kerlingarskarð eða Raufarhöfn? Þannig spyrja ræningjarnir, ég og fararstjórinn, þá sem við föngum hverju sinni: - - Kerlingarskarð, Kerlingarskarð, Kerlingarskarð. Næstum allir kjósa sér herjans Kerlingarskarðið, og ég stend liðfár uppi með Raufarhöfnina mfna — og ósigurinn að lokum. Svo erum við komin af fjöllum og til höfuðborgar Noregs, sem stcndur innst við Oslóarfjörð. Á langferðamanninn orkar þessi borg fyrst og fremst sem liflegur sveitakaupstaður. Þetta eru hús i skógi og nokkur stórmyndarleg verzl- unarliverfi niðri við höfnina. Þegar ég stig fyrsta sinni fæti á Karls Jóliannsgötu, aðalumferðaræð borgarinnar, fljúga mér strax i hug upphafsorðin í Sulti eftir Knut Ham- mn: „Það var á þeim árum, þegar ég áfaði um og svalt i Kristjaníu ...“ Já, hér átti þessi höfuðsnillingur virskra skáldsagnabókmennta langan og strangan reynsludag. En siðar á ævinni drakk hann hér full gleðinnar, umkringdur aðdáendum og vinum. Eftir eina slika Oslóarreisu komst hann þann veg að orði i bréfi til vin- ar síns, hálft i gamni og hálft í alvöru, — að hann hefði lifað svo og látið í höfuðstaðnum, að Jiann fengi hvergi að koma i gildaskála, næst þegar hann kæmi til bæjarins ... Margir segja, að Hamsun liafi orðið al't of gamall. Þeir hinir sömu ættu að minnast þess, að Knut Hamsun var siungur í list sinni allt til hinztu stundar. En nú skulum við litast um í borg- inni. Osló á mikið og veglegt ráðhús, höll á heimsmæhkvarða. skrevtta myndum eftir norska myndgerðarmenn. En hver talar um dauðlegar myndir dauð- legra manna, hegar hér blasir við aug- um sú myndin sem aldrei deyr: Aðal- catnr hessarar miklu hallar er hrika- ctór. 0» hag liggia marmaratrönnur upn á nært-’ hæð. Um bessar tröpnur er eiTifur straiimur hrúðhióna. Stúlkurn- ■>r eru f hvitum, skósfðum kjóíum, með bvift höfuðlin og blómvönd i fanginu, njftarnm ' '"'”rt'l m°ð hvitt hrióst. Og hegar em brúðhiónin konia. fara önn- ur. Þrotlaus straumnr, elfa lífsins. feg- nrsta mvndin i ráðhúsinu, mynd, sem Ti'rognerparken eöa VigelandfigarÖurinn ^ er giœsilegur aö skipulagi, og þar eru i~örg skemmtileg listaverk eftir mynd- liöggvarann Gustav Vigeland. Stórkost- Jcgust er súlan, sem liést hér á mynd- inni. Drangurinn var dreginn á ís austan úr SvíþjóÖ. og Vigeland hjó listaverkiö þar á staönum. ÞaÖ sýnir framrás kyn- slóöanna, svipaö og Alda aldanna hjá Einari Jónssyni. aðeins meistari meistaranna er og get- ur verið höfundur að. Og við höldum áfram að skoða merk- isstaði. Það er talsverð . ferð á okkur. Það má hvergi nema staðar stundinni lengur. Það er skotizt á milli frægra staða bæði í bil og fótgangandi. Við þrömmum áfram i steikjandi sólarhit- anum eins og hópur kappgöngumanna: Kæru borgarbúar, hér er fólk á ferð- inni, sem þarf að hafa hraðan á. — Allt í einu erum við i 500 m hæð yfir sjó, — á Holmenkollen. Fin utsikt over byen og fjorden. Gaman ’að sitja hér og drekka úr bjórkollu. Annars orkar hin mikla skfðabraut á mann likt og mynd af risabeinagrind frum- aldarskepnu, af ])vi það vantar snjóinn og enginn skiðamaður svífur i loftinu yfir stökkbrautinni. Og við höldum áfiam að masséra í gegnum Osló i leit að nýjum og nýjum merkisstöðum. í Vigelandsgarði erum við likt og í skógi af myndastyttum. Allt er þetta verk eins manns: Gustavs Vigelands. Hér sérð þú eðlisbundna baráttu karls og konu fyrir viðhaldi mannlegs lífs á jörðinni. Og maðurinn og konan og barnið eru mótuð þungum, þróttmiklum lfnum. Hér er hverri blæju svipt af manninum. Þú lítur hann eins og hann var skaptur í árdaga af anda og leir. Þessar myndir tala til þin öflugu máli um ósigranleik mannsins. Ef þú vissir það ekki áðnr, þá veiztu það nú, að þrátt fyrir allt er maðurinn fæddur á þessa jörð til að sigrast á heimsmyrkrinu og myrkrinu i sjálfum sér. í huga þér setur þú þessar myndir við hlið annarra stórvirkja högg- myndalistarinnar, sem þú hefur haft kynni af. Þú minnist stundar sem þú áttir eitt sinn i Thorvaldscnssafni i Khöfn: Þokkagyðjurnar stiga ofan af hiruim hvitn fótstöllum sinum og dansa svifléttum skrefum. Þú minnist stund- ar sem hú áttir eitt sinn í Hnitbjörgum með Útilegumanni Einars .Tónssonar, oa skvnjaðir fyrsta sinni í dýpstu inn- nm hinum há kröm og þá neyð. sem hióð bín leið á sinum þyngstu niður- lævingartimum. En hér gefst skammur timi lil um- hugsunar. KappTdaupið heldur áfram. Útsýn yfir Ósló, borgina, sem hefur ver- iö nefnd „stærsta sveitaþorp í heimi“. Ur.rhverfiö er mjög fallegt, sícógi vaxnar lueöir hiö efra og fjöröurinn iiiö neöra, en sjálf borgin er fremur leiöinleg og hefur lítiö upp á aö bjóöa af þeim lysti- semdum, sem menn leita eftir í stór- borgum. 1 □ VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.