Vikan


Vikan - 27.10.1960, Síða 20

Vikan - 27.10.1960, Síða 20
CARTER BROWN: 11. hluti. Wheeler leynilögreglu- manni í Pine City hef- ur veriö faliö aö rann- saka moröiö á frænku lögreglustjórans þar í borg, en meöal þeirra grunuöu er Howard fyrrverandi spilavítiseigandi í Las Vegas, sem flúöi til Pine City, og var hin myrta þá- í fylgd meö honum. Wheeler grunar aö relcja megi orsakir morösins til Las Vegas, fer þangaö, kemst þar í kynni viö nektardansmær Gabriellu, sem segir honum ýmis- legt, nóg til þess aö hún er rekin úr starfi, heldur til Pine City og sezt aö hjá Wheeler, sem er pipar- sveinn. Wheeler f.er nú aö athuga Rex Schafer blaöamann, sem reynist hafa veriö náinn vinur hinnar myrtu, en Schafer þessi gerir allt til aö beina grun manna aö Howard, og fær lögreglu- stjórann þar í liö meö sér. Og nú er skammt stórra atburöa aö bíða í þessu máli. ÞaÖ er þá fyrst til aö taka. aö þau Wheeler og Gabriella heimsœkja Nínu Booth, sem einnig er á snœrum Hoivards Fletcher. Sú heimsókn veröur eins kon- ar uppgjör milli þeirra kvennanna, en Nínu bíöur og annaö uppgjör og alvarlegra. Skömmu síöar finnst hún myrt í íbúö sinni, og Wheeler fær þarna annaö morömáliö til rannsóknar. „Al,“ mælti hún og brosti, „og ég sem hélt að þú værir ekki uppnæmur fyrir smámunum. Að þú létir þér nákvæmlega á sama standa hvernig allt veltist, og hverjum degi nægja sína þjáningu." „Það ke™ur fyrir að ég verð að leita mér hugg- unar,“ svaraði ég. „Og þá er það helzt kaffið ..." .,Já, kaffið, það er alveg satt “ Hún brá við og hraðaði sér fram í eldhúsið. Þá var það að mér datt í hug hve skáld geta verið hversdagsleg í vali yrkisefna. Það var til dæmis einhver hag- yrðingur, sem hnoðaði saman langri drápu um griskan leirvasa. Skyldi hann hafa lotið svo lágt, ef hann hefði litið mjaðmir Gabriellu augum? Þær voru að minnsta kosti sonnettu virði, að mín- um dómi. Eftir svo sem tíu mínútur kom hún inn aftur og bar mér kaffið. Og þegar hún laut fram og setti bollabakkann á borðið, slútti blússan frá í hálsinn svo að sá niður á brjóstin — þar með varð ég þess vísari, að mig mundi seint skorta yrkisefni. En þegar hún tók sér sæti gegnt mér og dró fæturna undir sig í sessinum, sá ég fram á það, að ef ég færi að yrkja um hana á annað borð, yrði það fullstór Ijóðabók ...“ „Og hvað var það svo, ástin mín, sem þú ætlaðir að biðja mig um?“ spurði hún. „Hvað getur það eiginlega verið, sem ég hef ekki þegar veitt þér — og það óumbeðið?" „Já, það ... bíddu nú við,“ svaraði ég og svelgd- ist á kaffinu. Skaðbrenndi mig bæði á tungunni og í kokinu. „Já, það er nú það. Sem sagt — að þú hafir ekki verið hérna hjá mér í kvöld er leið ...“ „Ég skil,“ svaraði hún og bar ekki á að hún reiddist. „Þú ert eitthvað smeykur við að hús- eigandinn .. .“ „Nei, það er ekki beinlínis það, sem ég á við,“ stamaði ég. „1 rauninni er mér það ekki fyrst og fremst í mun að láta líta svo út sem þú hafir ekki verið hjá mér í kvöld er leið — heldur hitt, að þú hafir verið á allt öðrum stað, skilurðu?" „Nei; er einhver munur þar á?“ ..Allur munurinn, hvorki meira né minna," svar- aði ég. „Og bar að auki er þetta afar áríðandi fyrir mig. Ætlarðu að gera mér þennan greiða?" „Ætli það ekki. Fyrst það er svona áriðandi fvrir þig. vinur minn.“ sagði hún. en þó var ekki iaust við t.ortryggni í augnaráðinu. „Og hvar á ég svo e'ginlega að hafa verið í nótt sem leið?“ ..Hiá Howard Fletcher . . . Heima hjá honum, skilurðu ...“ Það var sjötta skilningarvitið, sem bjargaði mér eins og fyrri daginn. Ef ég hefði ekki beygt mig um leið og ég sleppti orðinu, mundi kaffi- bollinn sem hún var að drekka úr, hafa brotnað á hausnum á mér. Mér varð Það fyrst fyrir að spyrja sjálfan mig, hvort væntanlegir gestir mundu líta á kaffiskelluna á nýju veggfóðrinu sem einskonar abstrakt skreytingu. ..H.iá Fletcher ...“ æpti hún. „Hjá Howard Fletcher? Hvað heldurðu eiginlega að ég sé? Dækia. eða hvað ...“ „Ef þú gerir þetta, þá gerir þú það eingöngu fyrir mig. Ég verð að geta afsannað það ... að hann hafi myrt Nínu Booth. Og ég verð að játa að ég sé ekki annað ráð til þess.“ „Afsanna það.“ æpti hún enn. „Hann hefur áreiðanlega verið valdur að morðinu á henni, hvort sem hann hefur framið það sjálfur eða ekki. Og mér er satt að segja ómögulegt að skilja hvernig þú geur farið fram á slíkt og þvíiíkt við mig. eftir allt það, sem á undan er gengið ...“ Hún svipaðist um, bersýnilega eftir einhverju, sem hún gæti kastað í mig, en þegar hún sá ekki neitt lauslegt, sparkaði hún i sköflung mér með trjónuhvössum stígvélahælnum — og ég get full- yrt, að það er allt annað en notalegt, þegar vel er fylgt á eftir. Heitt kaffið gusaðist úr bollanum, sem ég hélt á, logbrenndi mig á lærum og hnjám svo að ég hafði ekki viðþol. „Allt í lagi,“ varð mér að orði. „Við skulum þá gleyma þessum orðum eins og ósögð væru, vina mín. Við skulum lofa þessum þrjótum að troða mig niður i svaðið, fyrst þeir hafa gaman af Því. Og ég ætti ekki að þurfa að vera í neinum vandræðum með vinnu, þótt, ég eigi ekki afturkvæmt i leynilögreglustarfið, blessuð vertu ... eins og það geti verið- örðugt fyrir lögreglumann, sem vikið hefur verið úr stöðunni fyrir rangan sakaráburð, að komast í sæmilega vinnu . .. Ekki trúi ég Því. Sem sagt — við skulum gleyma þessu ...“ „Vikið úr stöðunni? Fyrir rangan sakaráburð?" endurtók hún. „Já, en sleppum því. Nú færðu þér kaffi í ann- an bolla, og Þetta er útrætt mál,“ sagði ég. „Vit- anlega hefði mér átt að vera það ljóst, að ekki þýddi að færa þetta í mál . . .“ „Hvers vegna vilja Þeir troða þig niður í svaðið?" „E'infaldlega vegna þess, að ég tel að Howard Fletcher sé ekkert við þessi morð riðin," svaraði ég. „En nú hafa Þeir tekið hann fastan, og það verður ekki aftur tekið. Þar með er ég, sem sagt, dæmdur úr leik. Og það sem lakast er — það verður ekki nokkur leið að hafa hendur í hári morðingjans nema Fletcher sé látinn laus og megi fara, frjáls ferða sinna. En við skulum ekki vera að gera okkur neina rellu út af því, ástin mín. Ætli ég fari bara ekki að leggja sutnd á fjárhættuspil. Það er sagt að talsvert geti verið upp úr því að hafa — það er að segja ef maður kemst upp á lag með að beita brögðum ...“ „Al, ástin mín.“ Hún renndi sér niður úr stóln- um og kraup á kné við hlið mér. „Hvers vegna isagðirðu mér það ekki umsvifalaust, að þetta varðaði þig svo miklu?" „Þegar öllu er á botninn hvolft, þá varðar það mig ekki svo miklu," varð mér að orði. „Eins og ég sagði, þá hefur maður alltaf einhver ráð. Hitt er svo annað mál, að það er alltaf dálítið leiðinlegt að verða að láta þannig í minni pokann fyrir þeim, sem minna vita og minna geta; láta þá troða á sér og hælast svo um ...“ „Ég geri eins og þú baðst mig,“ hrópaði hún um leið og hún vafði örmunum svo fast um háls mér, að mér lá við köfnun. „Það skal engum líð- ast að troða á þér, þástin mín. Ekki á meðan mín nýtur við . . .“ „Nú fyrst þekki ég þig aftur, Gabriella litla," svaraði ég og sló þéttingsfast á öxl henni. „Hlust- aðu nú á. Þú komst Þangað sem sagt ekki fyrr en klukkan hálfellefu í kvöld er leið. I sömu .svifum og þú komst að byggingunni, þar sem Howard Fletcher býr, sástu hvar John Torch fór ■eftir hinni gangstéttinni, en hann veitti þér ekki athygli, og Þú heilsaðir honum ekki. Þú yfirgafst Fletcher ekki fyrr en á miðnætti. Hugsaðir svo ■ekki um þetta nánar þangað til í dag, þegar þú fréttir að Howard Fletcher hefði verið handtek- inn. Skilurðu hvað ég er að fara?" „Ég held að mér mundi veitast Það auðveldara að kenna þér að hafa rangt við í fjárhættuspil- um,“ svaraði hún hugsi. „En hvað um það. Ætli ■ég skilji ekki meininguna." „Stórkostlegt," varð mér að orði. Síðan spratt ég á fætur, greip hana í fang mér og dansaði með hana nokkra hringi. Að þvi loknu gekk ég að símaborðinu. Mér varð fyrst fyrir að hringja til þeirra í lög- reglustjóra skrifstofunni. Það var Annabella, sem varð fyrir svörum og ég reyndi sem ég gat að breyta röddinni í þeirri von, að hún bæri ekki kennsl á mig. „Gæti ég fengið að segja nokkur orð við lögfræðing Howards Fletchers?" spurði ég. „Það er mjög áríðandi mál ...“ „Því miður er það ekki hægt,“ svaraði Anna- bella. ;,Það eru að minnsta kosti einar tíu minút- ur síðan að herra Hazelton fór héðan. En ég geri hins vegar ráð fyrir að hann hafi farið beinustu leið til skrifstofu sinnar, svo að þér ættuð að geta náð tali af honum þar. Hann ætti að vera kominn þangað, ef hann hefur ekki tafizt." Ég lagði talnemann á. Greip símaskrána og fór að leita að númeri þessa herra Hazeltons. Það tók mig ekki langan tíma, en þegar ég hringdi, svaraði einkaritari hans mér því til, að hann ætti ákaflega annríkt, og hún mætti ekki trufla hann. „Segið honum að Wheeler leynilögreglumann langi til að hafa tal af honum og það sé mjög áriðandi,“ sagði ég. „Segið honum að það sé í sambandi við Howard Fletcher ...“ „Ég skal gera það, herra leynilögreglumaður," sagði einkaritarinn, „en ég geri ekki ráð fyrir að það hafi neina Þýðingu. Hann vill ekki láta neinn ónáða sig.“ „Segið honum þá, að skjólstæðingur hans verði að dúsa að sama skapi lengur í dyflissunni, og hann dregur það að tala við mig,“ varð mér að orði. Nokkur stund leið, svo heyrðist ónotaleg karl- FORSAGA 2D VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.